Fréttablaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 10
FÓTBOLTI Dave Merrington, maður-
inn sem þjálfaði Alan Shearer,
fyrirliða enska úrvalsdeildarliðs-
ins Newcastle, þegar hann var að
alast upp hjá Sout-
hampton, telur að
Shearer hafi allt
sem þurfi til að
taka við knatt-
spyrnustjórastöð-
unni hjá
Newcastle þegar
Sir Bobby Robson
lætur af störfum.
Merrington segir að engin til-
viljun hafi ráðið því hversu langt
Shearer hafi náð. „Alan var ávallt
afar sterkur persónuleiki og mjög
ákveðinn. Hann vissi nákvæm-
lega hvað hann vildi og hvert hann
ætlaði sér.“
Alan Shearer er fæddur í
Newcastle árið 1970. Hann hóf
feril sinn hjá Southampton og í
fyrsta leik sínum, gegn Arsenal,
skoraði hann þrennu. Shearer
gekk til liðs við Blackburn fyrir
metfé árið 1992. Þremur árum síð-
ar vann hann enska deildarmeist-
aratitilinn með félaginu. Hjá
Blackburn skoraði Shearer 112
mörk í 138 leikjum.
Árið 1996 var Shearer keyptur
til Newcastle, liðsins sem hann
hafði haldið með í æsku. Þar hef-
ur hann leikið allar götur síðan.
Shearer hefur skorað 105 mörk í
úrvalsdeildinni fyrir Newcastle.
Þrjú ár í röð náði Shearer því
afreki að verða markakóngur úr-
valsdeildarinnar. Tímabilið 1994-
95 skoraði hann 34 mörk fyrir
Blackburn. Tímabilið á eftir skor-
aði hann 31 mark fyrir Blackburn
og á fyrsta tímabili sínu með
Newcastle, 1996-97, skoraði hann
25 mörk fyrir lið sitt.
Shearer lék 63 landsleiki fyrir
Englands hönd og skoraði í þeim
30 mörk. Hann lagði landsliðs-
skóna á hilluna fyrir tveimur
árum.
Dave Merringon telur að
Shearer muni eiga auðvelt með að
hætta sem leikmaður og taka við
stjórastöðunni. „Öll hráefnin eru
til staðar fyrir hann. Það sem
hann þarf að átta sig á er að spila-
mennska og þjálfun eru tveir mis-
mundandi hlutir,“ sagði Merr-
ington í viðtali við BBC. „Ef hann
fær rétta fólkið í kringum sig held
ég að hann geti orðið frábær
knattspyrnustjóri.“
20. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
„Alan var
ávallt afar
sterkur per-
sónuleiki og
mjög ákveð-
inn.“
Ein með öllu
Nýja gólfþvottavélin SSB 430
frá Alto hentar einkar vel til
þrifa á svæðum þar sem erfitt
er að athafna sig. Afbragðs
hönnun gerir hana létta og
meðfærilega en tryggir þó
um leið að hún skilar
afköstum á við stærri og
dýrari tæki.
Hreint og þurrt á augabragði
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
GÓLFfiVOTTAVÉL
Tilboðsverð
án vsk. 269.790.-
m. vsk. 335.888.-
• Nett vél sem
afkastar miklu
• Skilar gólfinu
hreinu og þurru
• Rafgeymar og
hleðslutæki fylgja
Brasilíumaðurinn Ronaldo:
„Einn lélegasti leikurinn á ferlinum“
MADRID, SPÁNI, AP Brasilíumaður-
inn Ronaldo, leikmaður Real
Madrid, segir að frammistaða sín
gegn Real Sociedad um helgina
hafi verið ein sú lélegasta á ferlin-
um.
Í leiknum, sem endaði með
markalausu jafntefli, átti Ronaldo
aðeins eitt skot að marki, sem fór
langt framhjá. Honum var skipt út
af á 71. mínútu leiksins. Hluti
áhorfenda púaði á hann þegar
hann yfirgaf völlinn.
„Ég átti það skilið því þetta var
einn lélegasti leikur sem ég hef
spilað,“ sagði Ronaldo eftir leik-
inn.
Á laugardag mætir Ronaldo
sínum gömlu félögum í Barcelona
á Camp Nou. „Þetta verður frábær
leikur og ég verð tilbúinn,“ sagði
Ronaldo, sem hefur skorað þrjú
mörk fyrir Real á tímabilinu.
Shearer hefur
allt sem þarf
Gamall þjálfari Alan Shearer telur að hann gæti vel orðið næsti knatt-
spyrnustjóri Newcastle eftir að Sir Bobby Robson lætur af störfum.
Shearer hefur þrívegis orðið markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar.
Hann skoraði 30 mörk í 63 landsleikjum.
Evrópukeppnin í handbolta:
Grótta/KR
mætir Álaborg
HANDBOLTI Karlalið Gróttu/KR í
handbolta mætir danska liðinu
Álaborg HSH í 16-liða úrslitum
Áskorendakeppni Evrópu. Dreg-
ið var í keppninni í gær. Grótta
sló út portúgalska liðið
Francesco de Holanda í 32 liða
úrslitum keppninnar.
Haukar mæta spænska liðinu
C.B.M. Ademar Leon í 16 liða úr-
slitum Evrópukeppni bikarhafa.
Haukar slógu út ítalska liðið
Conversano, sem Guðmundur
Hrafnkelsson leikur með, í 32
liða úrslitum.
Fyrri leikirnir fara fram 7. og
8. desember og hinir síðari helg-
ina á eftir.
RONALDO
Ronaldo á æfingu með brasilíska landsliðinu fyrir vináttuleik gegn Suður-Kóreu sem fram
fer í dag. Hann hefur skorað þrjú mörk með Real Madrid síðan hann kom til félagsins.
AP
/M
YN
D
SHEARER
Alan Shearer í baráttu við Wayne Bridge, leikmann Southampton, í leik liðanna um síð-
ustu helgi á St. James´ Park. Shearer hóf feril sinn hjá Southampton.
AP
/M
YN
D
GRÓTTA/KR
Leikmenn Gróttu/KR eiga erfiðan leik fyrir
höndum gegn danska liðinu Álaborg HSH.
Grótta/KR er að taka þátt í Evrópukeppni í
handbolta í fyrsta sinn.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.05 Stöð 2
Íþróttir um allan heim
(Trans World Sport)
16.00 Sjónvarpið
Landsleikur í fótbolta
(Eistland-Ísland)
18.00 Sýn
Sportið
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
19.00 Vestmannaeyjar
Handbolti kvenna (ÍBV-FH)
19.30 Skjár 1
Mótor
22.15 Sjónvarpið
Landsleikur í fótbolta endurs.
(Eistland-Ísland)
22.30 Sýn
Sportið
ALLIR
Á SKAUTA!
Skautaholl.is