Fréttablaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 12
1. Við brauðbakstur er mikilvægt
að hnoða deigið vel til að tryggja
að það lyfti sér vel. Reglan er að
þegar menn telja að nóg sé hnoðað,
þá er gott að hnoða aðeins lengur.
2. Vilji maður fá stökka skorpu á
brauð er gott að skvetta smá vatni
inn í ofninn þegar brauðið er sett
inn.
3. Forðist að nota gamalt ger og
passið að olía eða smjör komist
ekki í beina snertingu við gerið.
Ég reyni að klára að baka fyrirjólin í nóvember því í desem-
ber er ég að spila alla virka daga
með Sinfóníhljómsveitinni og um
helgar leik ég á tónleikum með
ýmsum kórum og með Páli Ósk-
ari Hjálmtýssyni,“ segir Monika
Abendroth, hörpuleikari frá
Þýskalandi, sem hefur búið á Ís-
landi síðan 1976. Moniku finnst
gott að eiga smákökur til að bjóða
gestum á aðventunni en finnst
þeim ofaukið þegar sjálf jólin eru
gengin í garð með tilheyrandi
veisluhöldum. „Ég geymi samt
kannski eitthvað til að baka með
dóttur minni sem er í Þýskalandi
en ætlar að koma til mín fyrir jól-
in. Mér finnst svo mikilvægt að
við gerum eitthvað svona sam-
an.“
Monika segir að núorðið sé
hægt að kaupa „Stollen“, hina
dæmigerðu þýsku jólaköku, í ís-
lenskum bakaríum. „Ég baka
ekki Stollen-kökuna sjálf en
kaupi hana stundum eða fæ hana
senda frá ættingjum í Þýska-
landi.“ Monika segist reyna að
blanda saman þýskum hefðum og
íslenskum í jólabakstrinum. Hún
kynntist meðal annars laufa-
brauði þegar dóttir hennar var í
grunnskóla á Íslandi og finnst
skemmtilegur siður að skera
laufabrauð. Hún tekur stundum
laufabrauð, hangikjöt og íslensk-
ar smákökur með sér til ættingja
og vina í Þýskalandi þegar hún
fer þangað yfir jólin og því hefur
verið mjög vel tekið. Hér kynnt-
ist hún líka þeim sið að baka og
skreyta piparkökur en þær var
hún vön að kaupa tilbúnar í
Þýskalandi.
Monika hefur leikið á hörpu
með Páli Óskari um nokkurt
skeið og hann hefur fengið að
kynnast jólabakstrinum hennar
aðeins. Hún segir að flórentín-
urnar sem hún ætlar að gefa okk-
ur uppskrift af séu í miklu uppá-
haldi hjá Palla. „Þessar smákök-
ur eru einfaldar og fljótlegar og
henta því mjög vel fólki eins og
mér sem hefur lítinn tíma aflögu
fyrir jólaundirbúning.“
Monika hefur aðlagast vel ís-
lensku samfélagi en henni líður
samt stundum eins og hún sé
svolítið landlaus. „Ég er eigin-
lega hvorki Þjóðverji né Íslend-
ingur. Ég sagði einu sinni við vin
minn að mér fyndist ég hvorki
fugl né fiskur en hann benti mér
á að sennilega væri ég bara
fljúgandi fiskur og þá varð ég
ánægð.“
2 20. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
Kökublaðið
Blandari BL306
300wött 1lítra skál
Verð 3.990,-kr
Brauðrist TT390
Verð 4.900,-kr
Töfrasproti HB600
Verð 3.790,-kr
Matvinnsluvél FP470
m/blandara
Verð 10.500,-kr
Tilboð 8.990,-kr
Hrærivél KM400
750wött 4,2 litra
Verð 38.900,-kr
Tilboð 29.900, kr
R A F T Æ K J A V E R S L U N
HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • S ÍMI 590 5000
í baksturinn
Tilboð
Tilboð
Blandar saman íslensk-
um og þýskum hefðum
Monika Abendroth
hörpuleikari hefur lít-
inn tíma fyrir jóla-
bakstur en vill ljúka
honum að mestu fyrir
aðventuna.
MONIKA ABENDROTH
Jólasmákökurnar verða
að vera fljótlegar en þó
umfram allt ljúffengar.
60 g hveiti
75 g sykur
1 tsk. vanillusykur
30 g smjör
100 g súkkat
150 g möndluflögur
2 dl rjómi
200 g súkkulaði
Aðferð:
Blandið hveiti, sykri og vanillu-
sykri saman. Bræðið smjör í
potti, bætið súkkati og möndlum
út í og síðan rjóma. Hrærið þetta
vel saman og bætið að lokum
hveitiblöndunni út í. Setjið bökun-
arpappír á plötu og mótið kökur
með teskeið. Bakið í ofni við 160-
180˚C í um 15 mínútur eða þar til
smákökurnar eru ljósbrúnar og
flatar. Látið kökurnar kólna.
Bræðið súkkulaði (til dæmis
rjóma) og penslið því ofan á kök-
urnar.
Flórentínur
fyrir jólin
4 eggjahvítur
4 dl sykur
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk vanillusykur
1 1/2 tsk vínedik
50 g Síríus
suðusúkkulaði
(konsum),
brytjað
3 dl rjómi
ávextir
100 g Síríus
súkkulaði
með fyllingu
1 fíkjustöng
1 dl Nóa
súkkulaðirúsínur
brætt suðusúkku-
laði
Aðferð:
Hitið ofninn í 170˚C. Þeytið
eggjahvítur vel og blandið um leið
sykrinum smátt og smátt saman
við. Þeytið mjög vel. Blandið lyfti-
dufti, vanillusykri, vínediki og
suðusúkkulaði varlega saman við.
Látið deigið í smurt lausbotna
form. Bakið í 1-1 1/2 klst. eða þar
til botninn hefur myndað góða
skel. Látið botninn á disk og setjið
fyllt rjómasúkkulaði ofan á og því
næst þeytta rjómann. Látið ávext-
ina, fíkjustöngina og súkkulaðirús-
ínurnar ofan á rjómann. Bræðið
suðusúkkulaði og hellið í mjóum
ræmum ofan á ávextina. Athugið
að botninn verður mjög óregluleg-
ur.
Uppskrift frá Nóa Síríus.
Súkkulaðipavlova
fyrir sælkerann
Kökur:
300 g smjörlíki
1 dl sykur
400 g hveiti
1 egg
Krem:
50 g jurtafeiti
50 g smjörlíki
1 egg
50 g flórsykur
1 tsk. vanillusykur
Súkkulaðibráð:
100 g Síríus suðusúkkulaði (kons-
um), brætt
Setjið hveitið og sykurinn í skál,
myljið smjörlíkið út í, vætið í með
egginu og hnoðið. Kælið deigið.
Breiðið deigið út og mótið litlar
kökur. Bakið ofarlega í ofni við
180˚C í 6-8 mín.
Krem:
Hitið allt efnið saman í potti og
hrærið í á meðan. Gætið þess að
blandan sjóði ekki. Kælið þar til
kremið er orðið hæfilega þykkt og
hrærið í við og við á meðan. Leggið
kökurnar saman með linu kreminu
á milli.
Súkkulaðibráð:
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og
setjið ofan á kökurnar.
Uppskrift frá Nóa Síríusi.
Orður
fyrir aðventuna
Brauðbakstur
HEILRÆÐI