Fréttablaðið - 20.11.2002, Side 24
Angelina Jolie og fyrrum eigin-maður hennar, Jonny Lee Mill-
er, virðast hafa náð saman á ný.
Eins og kunnugt er
tilkynnti Angelina
það í viðtali eftir
að hún fór frá Billy
Bob Thornton að
hún elskaði Jonny
enn og ætti þann
draum heitastan að
þau gætu byrjað
upp á nýtt. Þetta
virðist hafa gengið eftir og þau
Miller sáust meðal annars láta vel
hvort að öðru á hóteli í London ný-
lega en Jolie er stödd í London um
þessar mundir við tökur á Tomb
Raider 2.
Fyrirsætan og söngkonan Capricehefur gengið til liðs við leikhóp-
inn sem er að sýna söngleikinn
Rent á West End. Kaliforníuljóskan
mun taka að sér hlutverk tvíkyn-
hneigðu listaspírunnar Maureen
Johnson í söngleiknum, sem á sér
stað í New York upp úr 1980.
Caprice mætir galvösk til leiks þó
ferill hennar sem söngkona hafi
farið frekar illa af stað árið 2000
með hinni misheppnuðu smáskífu
Oh Yeah!
Liz Hurley leikur nú aðalhlut-verkið í öfugsnúnasta meðlags-
greiðslumáli velferðarkerfissög-
unnar en hún hefur
neitað að taka við
myndarlegum fjár-
framlögum frá
barnsföður sínum
Steve Bing, sem
hyggst draga hana
fyrir dómstóla
vegna málsins.
Bing vill stofna
sjóð fyrir son þeirra Damian, sem
er hálfs árs, og hefur einnig boðist
til að greiða móðurinni 100.000
pund fyrir heilbrigðisþjónustu gutt-
ans en Hurley vill ekki sjá neitt af
þessu. Hún segist vera fullfær um
að ala drenginn upp án hjálpar föð-
urins og afsannar um leið að hún
hafi verið á eftir Bing vegna pen-
inganna.
12 20. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
MR. DEEDS kl. 4 og 6
HALLOWEEN kl. 8 og 10
STUART LITLI kl. 4
ROAD TO PERD... kl. 5, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
kl. 6FÁLKAR
BLOOD WORK kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05 Sýnd kl. 8 og 10
YA YA SISTERHOOD kl. 8 VIT455
THE TUXEDO kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT474
HAFIÐ kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT453
MAX KLEEBLE´S.. kl. 4 VIT441
INSOMNIA kl. 10.10 VIT444
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT 461Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 479
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 480
kl. 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 5.40, 8 og 10.20DAS EXPERIMEN
TÓNLIST Umboðsmaður Heru reyndi
hvað hann gat til þess að halda þeim
stóru tíðindum að hún hefði verið
valin til þess að hita upp fyrir Nick
Cave frá henni. Hann ætlaði að
koma henni á óvart og vildi að hún
frétti af því eftir sömu leiðum og
aðrir landsmenn.
„Ég er ennþá í „sjokki“ og ekki
komin á það stig að verða stressuð
enn,“ segir Hera, sem er mikill að-
dáandi Cave. „Ég átti bara að sjá
þetta í blöðunum. Fjölskyldan mín
vissi þetta á undan mér. Svo frétti
ég þetta þannig að vinkona mín
hringdi í mig og spurði út í þetta. Ég
vissi ekki neitt og svaraði bara neit-
andi.“
Draumar Heru virðast vera að
rætast einn af öðrum. Fyrst fékk
hún að fara á tónleikaferð um land-
ið með æskugoðinu Bubba
Morthens, þar sem þau sungu meðal
annars saman dúett, og nú bætist
upphitun fyrir Cave á ferilskrána.
Hún segir að dúett með Cave sé ekki
á dagskrá en að hún gæti hæglega
trítlað upp á svið og hoppað inn í
hlutverk Kylie Minogue í laginu
„Where the Wild Roses Grow“ ef
hún yrði beðin um það.
Í dag kemur í búðir ný breiðskífa,
„Not Your Type“, sem varð til fyrir
hálfgerða slysni. „Við ætluðum að
taka upp nokkur lög mjög vel. Síðan
gekk þetta svo vel að við ákváðum að
gera plötu. Strákarnir eru búnir að
vera æðislegir. Guðmundur Péturs-
son stjórnaði upptökum og ég er
rosalega ánægð með þetta.“
En hvað á hin 19 ára stúlka eigin-
lega við með titli plötunnar? „Þetta
er eftir fyrsta laginu. Ég samdi það
þegar ég var 15 ára. Þá var ég gjör-
samlega búin að fá ógeð af góðum
strákum með rembingsrómantík.
Mig langaði miklu frekar að vera
með töffurum því að mér fannst það
meira spennandi. Góðu strákarnir
voru allt of miklir sykurpúðar. Það
er ekkert spennandi ef það er ekk-
ert spennandi að gerast,“ segir hún
og hlær sakleysislegum hlátri. Tit-
illinn hlýtur þó að gefa í skyn að það
liggi meira á bak við hláturinn henn-
ar en virðist í fyrstu.
biggi@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að tónlistarmaðurinn Nick Cave
leikur hér á landi 9. desember. Nýsjálensk-íslenska snótin Hera fær þann heiður
að opna tónleikana á Broadway.
Vill töffara en
ekki sykurpúða
HERA
Hera gefur í dag út breiðskífuna „Not Your Type“.
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
KVIKMYNDIR
Oftar en ekki er eitthvað athyglis-vert á ferðinni þegar kvikmynd-
ir annars staðar en frá Bandaríkjun-
um eða Bretlandi slæðast hingað í
kvikmyndahús og Das Experiment
(Tilraunin) frá Þýskalandi er engin
undantekning frá þeirri reglu.
Myndin fjallar um atferlisfræðilega
tilraun þar sem hópur manna er ráð-
inn í hlutverk fanga og fangavarða
sem eiga að lifa innilokaðir eftir
settum reglum í hálfan mánuð. Svo
er sagt að handritið byggi að ein-
hverju leyti á svipaðri tilraun sem
vísindamenn við Stanford háskóla
gerðu. Án þess að barna söguna fyr-
ir þeim sem eiga eftir að sjá mynd-
ina er óhætt að segja frá því að þessi
tilraun þróast öðruvísi en menn
gerðu ráð fyrir.
Að sumu leyti minnir þessi mynd
á skáldsöguna Lord of the Flies
(Flugnahöfðinginn) sem fjallar um
strákahóp á eyðieyju þar sem bæði
góðir og einkum slæmir þættir
mannlegrar náttúru fá að leika laus-
um hala. Tilraunin er mjög áhrifa-
mikil mynd og fræðandi um margt
sem maður kannski hefði heldur
kosið að vita ekki. Það er kannski
tímanna tákn að myndin skuli vera
þýsk, því að sínu leyti má líta á hana
sem uppgjör við Hitlers-tímann, þar
sem heil þjóð tók þátt í þjóðfélagstil-
raun með skelfilegum afleiðingum.
En til þess eru vítin að varast þau.
Þráinn Bertelsson
Þýsk þjóðfélagstilraun
DAS EXPERIMENT TILRAUNIN
Aðalhlutverk: Moritz Bleibtreu, Christian
Berkel, Oliver Stokowski, Wotan Wilke Möhring.
Handrit: Don Bohlinger, Christoph Darnstädt.
Kvikmyndastjórn: Oliver Hischbiegel.
TÓNLIST
Organkvartettinn Apparat hef-ur gefið út fyrstu breiðskífu
sína. Eins og nafnið gefur til
kynna er mikið um hljómborðsleik
á plötunni og útkoman er bara
mjög góð. Platan hefur vélrænt yf-
irbragð þar sem bjöguð rödd syng-
ur eins og vélmenni í flestum lag-
anna. Röddin hæfir lögunum vel
þó svo að stundum verði hún nokk-
uð þreytandi og geri lögin keimlík-
ari en þau þyrftu að vera.
Lagið „Cruise Control“ er mjög
gott en minnir kannski fullmikið á
Rammstein. Þarna fer góð keyrsla
saman við tölvupopp níunda ára-
tugarins. Sömu sögu er að segja af
„Stereo Rock & Roll“, sem er vel
heppnað. „Ondula Nova“ er í anda
Sigur Rósar með rólegri byrjun og
kröftugum lokakafla. Gott lag.
Umslag plötunnar hittir vel í
mark og sýnir hljómsveitina ná-
kvæmlega eins og hún hljómar.
Stirðbusalegir dótakarlar sem
lýsa upp drungalegt íslenskt um-
hverfið með rafmagnið að vopni.
Freyr Bjarnason
Gott apparat
APPARAT ORGAN QUARTET
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Síðumúla 3-5
H
e
r
r
a
n
æ
r
f
ö
t