Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 1
AFMÆLI Flippaðar steingeitur bls. 30 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 10. janúar 2003 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 16 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD MYNDLIST Freygerður Dana Krist- jánsdóttir sýnir tvö verk á sýningu sinni í MOJO á Vegamótastíg 4. Annað er háðsádeila á fálkaorðuna, hitt er um rollur á réttum eða röng- um hillum í lífinu. Rollur á hillum STJÓRNMÁL Kjördæmisráð Samfylk- ingarinnar í Reykjavík ákveða í dag hverjir skipa framboðslista flokksins í Reykjavík. Samfylkingin kynnir lista TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur hina árlegu Vínar- tónleika sína í Háskólabíói í kvöld. Garðar Thór Cortes syngur einsöng og Lucera Tena leikur einleik á kastanettur með hljómsveitinni. Peter Guth stjórnar. Árlegir Vínartónleikar BÍÓ Kvikmyndamaraþon verður haldið í Loftkastalanum í kvöld. Allar sextán myndir Stanley Kubrick verða sýndar í einum rykk. Fjórar þeirra hafa ekki verið sýndar áður á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og viðurkenningar verða veittar fyrir áhorfsseiglu. Popp og aðrar veitingar verða í boði. Kubrick-maraþon EINELTI Helvíti á Jörð FÖSTUDAGUR 8. tölublað – 3. árgangur bls. 24 BÆKUR Þjóðverjar bitust um réttinn bls. 24 STJÓRNMÁL „Það hefur ekki komið fram nein áskorun eða tillaga op- inberlega frá formanni Samfylk- ingarinnar um að ég fái sérstaka stöðu innan Sam- fylkingarinnar. Það hafa aðallega verið bollaleggingar í fjölmiðlum um það hverju hann væri hugsanlega að velta fyrir sér. Ég tjái mig því ekkert um málið á þessu stigi,“ sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir. Eins og fram kom í Fréttablað- inu í gær hefur Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar- innar, rætt við flesta þingmenn flokksins í trúnaði til að afla fylg- is tillögu um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem forsætisráð- herra, komi til stjórnarmyndunar af hálfu Samfylkingarinnar að loknum kosningum í vor. Það ku vera sannfæring Össurar að það sé langbesta leiðin til að viðhalda því mikla skriði sem er á flokkn- um samkvæmt könnunum. Auk þess sé Samfylkingin skuldbundin til að taka eins vel á móti Ingi- björgu Sólrúnu og kostur er. En kannast hún sjálf ekki við þessar bollaleggingar? „Ég mundi aldrei fara með það í fjölmiðla hvað okkur Össuri fer í milli,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Forysta Samfylkingarinnar er einhuga um að henni verði fengið hlutverk í brúnni en skiptar skoð- anir eru um hvort rétt sé að til- nefna forsætisráðherraefni nú. „Í mínum huga er fullkomlega eðlilegt að stefna að því að Ingi- björg Sólrún verði ráðherra. Það er hins vegar ekki tímabært að tala um einstök ráðuneyti eða hver verður forsætisráðherra,“ sagði Margrét Frímannsdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar. Menn hafa velt fyrir sér með hverjum hætti innkoma Ingi- bjargar Sólrúnar í landsmálin verður og hvert hlutverk hún fær innan Samfylkingarinnar í kom- andi kosningabaráttu. „Það er auðvitað búið að vera að spá í ýmislegt í þessu sambandi í Samfylkingunni en niðurstaða liggur ekki fyrir. Ég vænti þess að hún geri það öðru hvoru megin við helgina,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Eitt af því sem menn hafa velt fyrir sér er hvort hyggilegt gæti verið að flýta landsfundi og halda hann fyrir alþingiskosningar, í stað október í haust. „Ég sé enga sérstaka ástæðu til þess. Við munum finna út úr þessu með öðrum hætti,“ sagði Ingi- björg Sólrún, en í Fréttablaðinu í gær þakkaði hún sterka stöðu flokksins í könnunum málaefna- starfi formannsins. the@frettabladid.is REYKJAVÍK Suðaustan 10-15 m/s. og talsverð rigning undir hádegi, en styttir upp. Hiti 4 til 9 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 10-15 Skúrir 7 Akureyri 3-8 Rigning 4 Egilsstaðir 3-8 Rigning 2 Vestmannaeyjar 8-13 Skýjað 6➜ ➜ ➜ ➜ + + + + LANDSINS FORNI FJANDI Hafísinn er nú kominn inn fyrir lögsögu Íslands út af Vestfjarðamiðum. Næst landi er hann 48 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Ísinn er talsvert þéttur og má þar greina stóra borgarísjaka sem eru allt að 400 fet á hæð. Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug í gær og mun áfram fylgjast með hver þróunin verður. M YN D /T F- SÝ N Samkvæmt mati varaformanns Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hvorki játar því né neitar að henni verði teflt fram sem forsætisráðherraefni. Hún segir það skýrast öðru hvoru megin við helgina hver hennar staða verður innan flokksins. Ekki tímabært að skipa í ráðherraembætti NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 66% 71% FORSETAEMBÆTTIÐ Ný ráðsmanns- hjón hafa verið ráðin til forseta- embættisins á Bessastöðum og koma þau frá Akureyri. Fyrri ráðs- maður, Sigurður Einarsson mat- reiðslumeistari, og eiginkona hans létu af störfum eftir aðeins sex mánaða starf og báru við miklu vinnuálagi. Ný ráðsmannshjón, Jó- hann Gunnar Arnarsson danskenn- ari og eiginkona hans, Kristín Ólafsdóttir blómaskreytingameist- ari, óttast þó ekki vinnuálagið og segjast hlakka til að taka við starf- anum. Saman hafa þau rekið Blómaverslun Akureyrar síðustu fjögur árin: „Við förum suður strax og við höfum selt blómabúðina. Það ætti að ganga fljótt og vel fyrir sig því þetta er góður og traustur rekstur,“ segir Jóhann Gunnar, sem lærði til danskennara hjá Hermanni Ragn- ars og kenndi við dansskóla hans um tíma. Kristín, eiginkona hans, er hins vegar menntaður þjónn auk þess að vera lærð í blómaskreyt- ingum. En Jóhann kann fleira fyrir sér en að dansa og selja blóm: „Ég hef bæði mikla reynslu í matreiðslu og framreiðslustörfum enda verið við hótelstörf um ára- tugaskeið; verið hótelstjóri bæði á Flúðum og á Núpi í Dýrafirði,“ seg- ir Jóhann Gunnar, sem nú tekur stefnuna á Bessastaði en þar hefur verið ráðsmannslaust eftir að síð- ustu ráðsmannshjón hættu störfum snemmsumars. ■ Nýr ráðsmaður forsetaembættisins: Danskennari á Bessastöðum Miðað við framburð krufning-arlæknis er líklegt að eldri sakborningurinn í líkamsárásar- málinu úr Hafnarstræti verði sýknaður. Læknirinn telur að pilt- urinn sem lést hafi fengið ban- væna áverkann eftir spark frá yngri sakborningnum. bls. 2 Framkvæmdastjóri Áfengis-varnaráðs segir áfengissala gjörsamlega virða auglýsinga- bann að vettugi. Íþróttafélagið Fjölnir hefur verið kært til lög- reglu. Formaður sambands aug- lýsingastofa segir menn samtaka í að ganga eins langt og hægt er. bls. 8 ÞETTA HELST „Í mínum huga er það fullkomlega eðlilegt að stefna að því að Ingibjörg Sólrún verði ráðherra.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.