Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 19
SÝNINGAR
Freygerður Dana Kristjánsdóttir sýnir
tvö verk á sýningu sinni í MOJO á Vega-
mótastíg 4. Annað er háðsádeila á fálka-
orðuna, hitt er um rollur á réttum eða
röngum hillum í lífinu. Sýningin stendur
út janúar.
Anna Guðrún Torfadóttir myndlistar-
maður sýnir verk unnin með blandaðri
tækni í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík.
Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning-
una Án samhengis - allt að klámi í
Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á
árinu 2000. Sýningin stendur út janúar
og er opin á opnunartíma Café Presto,
10-23 virka daga og 12-18 um helgar.
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur
fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo
nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4.
hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9-
17 og stendur til 31. janúar.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unn-
in á þessu ári sérstaklega fyrir sýninguna í
kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn
og eilífðin. Sýningin í Hallgrímskirkju er
haldin í boði Listvinafélags Hallgríms-
kirkju og stendur til loka febrúarmánaðar.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. janú-
ar.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í
Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykjavík-
urminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Inga
Svala fjallar um og endurvekur draum-
sýnina um hið fullkomna samfélag. Hún
leggur fram hugmynd að milljón manna
borgarskipulagi í Borgarfirði og á norðan-
verðu Snæfellsnesi. Sýningin er opin alla
daga klukkan 10-17. Henni lýkur 19. janú-
ar.
Á Kjarvalsstöðum eru sýnd nokkur verk
eftir Jóhannes S. Kjarval úr Kjarvalssafni.
Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni
lýkur 31. janúar.
Íslandsmynd í mótun - áfangar í korta-
gerð er yfirskrift sýningar í Þjóðmenning-
arhúsinu. Sýnd eru þau kort sem markað
hafa helstu áfanga í leitinni að réttri
mynd landsins. Sýningin stendur þangað
til í ágúst.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru
verk eftir um 50 listamenn sem fæddir
eru eftir 1950.
Í Nýlistasafninu við Vatnsstíg 3B standa
yfir sýningar á verkum eftir Giovanni
Garcia-Fenech og JBK Ransu. Innsetning
Garcia-Fenech nefnist Sex hausar, innan-
dyra. Yfirskriftin á sýningu Ransus er
Abstrakt expressjónin og geómetrían.
Safnið er opið miðvikudag til sunnudags
klukkan 13-17. Sýningarnar standa til 12.
janúar.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Norræna
húsinu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá
klukkan 11 til 17.
Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýningu
á íslensku landslagi unnið í gler í Galleríi
Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafn-
arborg.
Sýning á bútasaumsverkum eftir 10
konur stendur nú yfir í Garðabergi, félags-
miðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í
Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla
daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17.
Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí i8,
Klapparstíg 33. Meðal annars eru verk
eftir Eggert Pétursson, Rögnu Róberts-
dóttur, Þór Vigfússon, Kristján Guð-
mundsson, Sigurð Guðmundsson, Roni
Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg Guðna
og Tony Cragg til sýnis og sölu. Opið er
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11-18 og
laugardaga frá kl.13 til 17 eða eftir sam-
komulagi.
FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003
Verslun Dalvegi 2 • Kópavogi • Sími 564 2000 • www. quelle.is
ÚtsalaSTÓR
999,-
Buxur•Blússur•Peysur•Pils
Fatna›ur í öllum stær›um
Þýsk
gæði!
Hleðsluborvél 14,4 volt með
aukarafhlöðu í vandaðri tösku
með borum og skrúfbitum. Með
vélinni fylgir skrúfbitasett frá
BOSCH að verðmæti kr. 990.-
FRÁBÆR
K A U P !
Pottasett 4 hluta.
Eðalstál, hitaeinangrandi
handföng, orkusparandi botn,
glæsilegt útlit.
Komi
ð
aftur b
eint á
útsölu
na!
Útsala
kr. 2.990,-
Útsala
kr. 6.790,-
Rétt ver›
kr. 8.900,-
Shopper - Bæjartaska.
Taska sem alltaf er gott að
vera með! Mjög þægileg og
rúmgóð handtaska, mörg
innri og ytri hólf. Sérstakur
vasi fyrir farsíma.
Útsala
kr. 1.299,-
Rétt ver›
kr. 1.999,-
Verkfærasett.
73 hluta frábært sett úr
Chrom-Vanadium-Stáli í
góðri tösku. Smáhlutabox í
loki.
Útsala
kr. 4.400,-
2.990,-
Yfirhafnir•Draktir•Jakkar
Þú færð ekki betra verð!
Vandað úr með
skiptanlegum skífum.
5 mismunandi
útskiptanlegar skífur í
fallegum kassa.
Tölva.
Létt og
handhæg
með öllum
aðgerðum.
Útsala
kr. 299,-
Útsala
kr. 990,-
Útsala
kr. 1.990,-
Útsala
kr. 6.900,-
án aukarafhlö›u
kr. 4.400,-
Gæ›amerki Quelle í
fi‡skaland
Útvarp. Sjálfleitari,
heyrnatól, 2 rafhlöður.
Ótrúleg gæði.
MYNDLIST Illgresi er talið boðflenna í
flestum görðum. Þessi sömu blóm
vekja hins vegar gleði þegar við
rekumst á þau úti í náttúrunni.
„Þetta sama má segja um
mannlífið. Sumt fólk viljum við
hafa á einum stað, en alls ekki á
öðrum. Í þessu er mikill tvískinn-
ungur,“ segir Þuríður Sigurðar-
dóttir, sem í kvöld opnar sýningu á
olíumálverkum í Galleríi Hlemmi.
Myndefni hennar eru einmitt
falleg blóm, sem fólk vill ekki sjá í
garðinum hjá sér en fagnar annars
staðar. ‘Óboðnir gestir’ er heiti
sýningarinnar.
Þuríður segist einnig hafa velt
því mjög fyrir sér hvort það gangi
hreinlega í myndlist nú á dögum
að mála olíumálverk af blómum.
„Þetta myndefni er svo banalt í
rauninni, svo ofboðslega hefð-
bundið og á kannski ekki upp á
pallborðið. En mér finnst gaman
að ögra bæði sjálfri mér og öðrum
með þessu.“
Hún segir að þessi málverk séu
afrakstur tveggja ára vinnu. Hún
byrjaði á þeim um það leyti sem
hún var að ljúka námi í Listahá-
skóla Íslands fyrir um tveimur
árum. En hún segist hafa beðið eft-
ir rétta tímanum til þess að sýna
þessi verk.
„Ég vildi sýna þau í svartasta
skammdeginu, því ég er alveg viss
um það að ef svona blóm voga sér
upp úr grasinu í garðinum á þess-
um árstíma þá myndum við alla
vega ekki eitra fyrir þeim eða rífa
þau upp með rótum eins og við
gerum á sumrin.“
En hvernig skyldi hún líta á
framtíðina eftir að hafa söðlað um
og helgað sig myndlistinni eftir
farsælan söngferil?
„Auðvitað fer maður af stað
með bjartsýni. Þetta er að minnsta
kosti það sem mig langar helst til
að gera. Svo verður bara að koma í
ljós hvernig það gengur.“ ■
Þuríður Sigurðardóttir sýnir ný olíumálverk:
Óboðnir gestir í svart-
asta skammdeginu
ÞURÍÐUR SIGURÐAR-
DÓTTIR
Þuríður stendur þarna
við eitt blómamálverka
sinna sem næstu vikurn-
ar blasa við fólki út um
gluggana á Galleríi
Hlemmi.
Hljómsveit
Geirmundar
Valtýssonar
Laugardagskvöldið 11. jan.
Miðaverð aðeins kr. 500 til kl. 01
eftir það kr. 1.000
Æfingar í Víkinni
Mánudagar
Börn, 9-13 ára byrjendur
15.30-16.30
Börn, 5-8 ára byrjendur
16.30-17.30
Æfingar í Breiðagerðisskóla v/Breiðagerði
Unglingar og fullorðnir, framhaldshópur
Mánudagar 19.00-20.30
Miðvikudagar 19.00-20.30
Föstudagar 19.40-21.10
Unglingar og fullorðnir, byrjendur
20.30-22.00
20.30-22.00
21.00-22.00
Karatedeild Víkings
Komdu þér í gott form og...
Kýldu á karate með karatedeild Víkings í vetur
Upplýsingar hjá Jóhanni í síma 5530877
(johannbj@hotmail.com)
www.vikingur.is