Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 24
10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988
STÓRÚTSALA
Útsaumspakkningar
Prjónagarn
Föndurvörur
Miki› úrval!
BÆKUR Bandarískir bókaútgefend-
ur hafa komist að raun um að fátt
er jafn líklegt til að auka bókasölu
en tenging verksins við kvik-
myndir. Carl Lennertz hjá mark-
aðssamtökum óháðra bókaversl-
ana segir í viðtali við USA Today
að þótt kvikmyndaveggspjöld
standist ekki alltaf kröfur fagur-
fræðinga þá veki þau mikla at-
hygli og nái augum miklu fleiri
hugsanlegra lesenda. „Bíógestir
eru, því miður, miklu fleiri en les-
endur og þeir eru mikið líklegri til
þess að kaupa bókina þegar hún
fær tengingu við kvikmynd sem
þeir þekkja.“ The Hours eftir
Michael Cunningham, sem sækir
innblástur í Mrs. Dalloway eftir
Wirginíu Woolf, varð ekki met-
sölubók fyrr en hún vann Pulitzer-
verðlaunin 1999. Hún öðlaðist síð-
an nýtt líf þegar kvikmynd með
Nicole Kidman í aðalhlutverki var
gerð eftir henni en 250.0000 bæk-
ur hafa selst með Kidman og öðr-
um leikurum á kápunni.
Sömu sögu er að segja um bók-
ina Catch Me If You Can en hún
rokselst núna með þeim Leonardo
DiCaprio og Tom Hanks á káp-
unni, en þeir fara með aðalhlut-
verkin í samnefndri kvikmynd. Þá
er ævisaga geðtruflaða stærð-
fræðingsins John Nash, A Beauti-
ful Mind eftir Sylviu Nasar, skóla-
bókardæmi um þetta. Þegar hún
kom fyrst út í kilju var hún prýdd
mynd af Nash sjálfum en nú selst
hún eins og heitar lummur með
kyntröllinu Russell Crowe, í hlut-
verki Nash, á kápunni. ■
HEIMILDARMYND „Ég var sjálfur
lagður í einelti frá því ég var sjö til
átta ára allt þar til ég út-
skrifaðist úr grunnskóla
og man eftir því að þá
langaði mig að gera eitt-
hvað til að vekja athygli á
þessu þegar ég yrði eldri,“
segir Sigurður Hólm
Gunnarsson, sem fram-
leiddi heimildarþáttinn
Einelti - Helvíti á Jörð
ásamt félaga sínum Krist-
birni Helga Björnssyni.
„Við kynntumst svo í heim-
speki í FB og í einhverju
kaffispjallinu kom hug-
myndin um að gera þátt
um einelti upp.“
Þeir félagar byrjuðu vinnuna í
mars í fyrra og hafa nú selt Náms-
gagnastofnun styttri útgáfu af
þættinum og er gert ráð fyrir að
hann verði sýndur í tengsl-
um við kennsluefni í grunn-
skólum strax á þessu ári. Þá
ætla þeir að ræða bæði við
RÚV og Stöð 2 um sýningar
á lengri gerð þáttarins.
„Við höfðum ekkert fjár-
magn þegar við byrjuðum
og ákváðum að gera þetta
allt í sjálfboðavinnu þar til
annað kæmi í ljós,“ segir
Kristbjörn. „Við fengum
svo mjög færa tökumenn,
Björn Ófeigsson og Sigurð
Pálmason hjá 8mm product-
ions, til liðs við okkur og
framan af var aðalvandamálið að
finna peninga til að greiða þeim.
Kvikmyndasjóður gekk þó fljót-
lega til liðs við okkur og þá komst
meiri skriður á framleiðsluna.“
Þátturinn er um hálftíma lang-
ur og byggir á reynslusögum og
viðtölum við fólk sem hefur orðið
fyrir einelti. Þau velta fyrir sér af-
hverju þau urðu fyrir þessu og
koma með sínar hugmyndir að
lausnum. Þá koma sálfræðingar og
kennarar einnig með innlegg í um-
ræðuna.
Sigurður segir vinnuna við þátt-
inn hafa verið mjög skemmtilega
en erfiða. Gömul sár hafi verið ýfð
og hann þurfti því að takast á við
eigin reynslu á meðan. „Góð við-
brögð fólks hafa síðan orðið til þess
að manni finnst þetta hafa verið
þess virði en ég hef fengið mikið af
pósti og hringingum síðan umræð-
an um þáttinn fór af stað.“ ■
BÆKUR „Ég fann fyrir áhuga á bók-
inni erlendis strax í haust þegar
ég var á fyrirlestraferðalagi í Sví-
þjóð. Áheyrendur voru mjög
áhugasamir og lítið forlag festi
sér hana,“ segir Steinunn Jóhann-
esdóttir, höfundur Reisubókar
Guðríðar Símonardóttur. Norsk
forlög hafa einnig sýnt bókinni
mikinn áhuga og rétt fyrir jólin
tryggði þýski útgáfurisinn
Rowohlt sér útgáfuréttinn þar í
landi. Nokkur forlög bitust á um
réttinn sem var því seldur á upp-
boði og Steinunn segist ekki vita
betur en að tilboðið sem gengið
var að sé mjög gott.
Reisubók Guðríðar kom út á Ís-
landi árið 2001 en í henni spinnur
Steinunn sögulega skáldsögu sem
hún byggir á margvíslegum heim-
ildum. Að baki verkinu liggur sex
ára rannsóknarvinna og ferðalög
á söguslóðir í Alsír og Marokkó, í
Frakklandi, Þýskalandi, Englandi,
Hollandi og Danmörku.
Steinunn segir það hafa komið
Svíum verulega á óvart hversu
langt norður átök kristinna manna
og múslima hafi teygt sig á 17. öld
og þessi staðreynd hafi vakið
mikla forvitni. Hún segist ekki
geta sagt til um hvað það er við
bókina sem heillar erlendu forlög-
in en bendir á að saga Guðríðar sé
einstök og spennandi. „Sögusviðið
tengir svo saman lönd og álfur og
það er alltaf ákveðinn hópur sem
hefur áhuga á sögulegum skáld-
sögum sem byggja á mikilli heim-
ildavinnu.“ ■
RUSSELL CROWE
Andlit hans selur fleiri bækur en söguper-
sónurnar sem hann túlkar og bókaútgef-
endur hafa sætt sig við að þegar kemur að
sölu og markaðssetningu jafnast enginn á
við Hollywood.
Bíó og bækur:
Frægir leikarar rokselja bækur
Reisubók Guðríðar Símonardóttur:
Þýskir útgáfurisar tókust á um bókina
STEINUNN
JÓHANNES-
DÓTTIR
„Sögusviðið, sem
er meðal annars
Evrópa á 17. öld,
virðist höfða til
Þjóðverja en það
kom hingað
þýskur blaða-
maður í haust
sem var mjög
forvitinn um efni
sögunnar og
spurði mikið út í
hana.“
SIGURÐUR H. GUNNARSSON OG KRISTBJÖRN H. BJÖRNSSON
Réðust í gerð heimildaþáttarins Einelti - Helvíti á Jörð til að vekja athygli á því hversu alvarlegar afleiðingar einelti getur haft. Þeir hafa
fundið fyrir miklum áhuga á verkefninu enda mikil vakning í gangi um þetta vandamál, ekki síst í tengslum við stofnun samtakanna
Regnbogabörn. Þátturinn tengist þó samtökunum ekkert.
Innsýn í víti
Sigurður H. Gunnarsson og Kristbjörn H. Björnsson gerðu
heimildaþáttinn Einelti - Helvíti á Jörð til að vekja athygli á alvarlegum
afleiðingum eineltis. Námsgagnastofnun hefur fest kaup á þættinum
og viðræður um sýningar í sjónvarpi standa yfir.
Námsgagna-
stofnun hefur
þegar keypt
sýningarréttinn
á þættinum í
grunnskólum
og félagarnir
ætla að ræða
bæði við RÚV
og Stöð 2 um
sýningar í sjón-
varpi.
YOGA Fyrir þá sem eru að ganga í
gegnum eða hafa lokið krabbameinsmeðferð
Ný námskeið hefjast 13. janúar
Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m. a. byggir nám-
skeiðin á sinni eigin reynslu. Tilgangur námskeiðisins er að
takast á við daglegt líf að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig
líkamlega og andlega auk þess að sættast við líkamann.
Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar að Bolholti 4, 4. hæð
til vinstri.
Skráning og upplysingar gefur Arnhildur í síma 895-5848
40-70% afsláttur
Bæjarlind 12,
Kópavogi, sími 544 2222
Útsalan í fullum gangi