Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003
afsláttur
15%
til
25%
KVIKMYNDIR Yfirvöld í Norður-
Kóreu halda áfram að setja út á
söguþráð nýju James Bond-
myndarinnar. Þau segja að mynd-
in opinberi greinilega „ófriðsæl-
an hug“ Bandaríkjamanna til
landsins.
Kvikmyndin „Die Another
Day“ hefur þegar verið stimpluð
sem „móðgun“ af hópi nema sem
aðhyllast sameiningu Suður- og
Norður-Kóreu. Fréttastofan
KCNA segir nýju Bond-myndina
„sýna að Bandaríkin vilji í stríð
þar sem yfirvöld þar líti á þjóð-
ina sem öxul hins illa“. Í síðasta
mánuði hvöttu stjórnvöld Banda-
ríkin til þess að hætta að sýna
myndina en í henni sést Bond,
sem leikin er af Pierce Brosnan,
pyntaður af norður-kóreskum
hermönnum.
Suður-Kóreubúar voru heldur
ekki par hrifnir af myndinni en
af öðrum ástæðum. Þeir áttu
erfitt með að sætta sig við það að
Bond skuli sjást njóta ásta í
Búddaklaustri í myndinni. ■
JAMES BOND
Norður-Kóreubúar segja nýju Bond-mynd-
ina skerða ímynd þjóðar sinnar og að hún
sýni það greinilega að Bandaríkin vilji í
stríð við landið.
Norður-Kóreumenn enn óánægðir með Bond:
Opinberar ófriðsælan
hug til landsins
SEX AND THE CITY
Vinkonurnar í Beðmálum í borginni ætla
að gefa karlpeningnum í New York eitt ár
til viðbótar.
Sex and the City:
Kynlífið að
klárast í New
York
SJÓNVARP Framleiðendur sjónvarps-
þáttanna „Sex and the City“ hafa
ákveðið að síðasti þáttur sjöttu
seríunnar verði einnig sá allra síð-
asti sem gerður verður. Þátturinn
hefur notið mikilla vinsælda og
meðal annars unnið til nokkurra
Emmy-verðlauna. Þátturinn er
einnig talinn hafa átt þátt í að
skapa afslappaðra viðhorf banda-
rísks almennings til kynlífs.
Fimmta serían er nú að klárast
í Bandaríkjunum og hefst fram-
leiðsla á lokaseríunni í mars á
þessu ári. Tuttugu þættir verða
gerðir fyrir síðustu seríuna en
það eru sjö fleiri en venjulega.
Aðeins átta þættir voru gerðir
fyrir fimmtu seríuna eftir að aðal-
leikkonan Sarah Jessica Parker
og mótleikkona hennar Cynthia
Nixon urðu báðar óléttar. ■
Leikhús opnar á ný í
Moskvu:
Borgarbúar
hræddir að
mæta
HRYÐJUVERKAÓTTI Leikhúsið í Moskvu
sem uppreisnarmenn úr hópi
Tsjetsjena réðust inn í 23. október
síðastliðinn verður opnað á ný 8.
febrúar næstkomandi. Umsátur
uppreisnarmannanna stóð í fjóra
sólarhringa og 129 gíslar létu lífið
þegar hersveitir stjórnarinnar
réðust til inngöngu.
Þrátt fyrir að 100 aðgöngumið-
ar hafi selst á fyrsta klukkutíman-
um eftir að leikhúsið var opnað
aftur hefur lítið selst af miðum
síðan. Ein af þeim fyrstu sem
keypti sér miða var Aliona
Strikalina, en hún var í leikhúsinu
þegar árásin var gerð.
Hún sagðist búast við að endur-
koman í leikhúsið vekti upp slæm-
ar tilfinningar en hún væri þó alls
ekki hrædd. Leikhússtjórinn Ge-
orgí Vasiljev viðurkenndi að erfitt
yrði fyrir Moskvubúa að komast
yfir óttann, en stjórnvöld ætla að
leggja sitt af mörkum og þekktir
einstaklingar hafa verið valdir til
að vera viðstaddir sýninguna 8.
febrúar.
Dúman hefur styrkt leikhúsið
með 400.000 dollara framlagi, sem
fyrst og fremst verður notað til að
borga listamönnum laun, en þeir
hafa verið launalausir í þrjá mán-
uði, eða síðan árásin var gerð. ■