Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 2
2 10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR Þjóðminjasafnið við Suðurgötu hefur verið lokað frá árinu 1998 og sér ekki fyrir endann á endurbót- um á húsinu sem þar hafa staðið yfir allar götur síðan. Margrét Hallgrímsdóttir er þjóðminjavörður. „Ég vinn í Þjóðminjasafninu og er þar dag- lega. Ég fór síðast í gær í Safnahúsið við Suðurgötu með sýningarhönnuðum og sér- fræðingum safnsins en við erum að undir- búa viðamestu sýningu Þjóðminjasafnsins frá upphafi sem fjallar um lífið í landinu frá landnámi og fram til dagsins í dag. Þó safnahúsið við Suðurgötu sé lokað þá er starfsemin í fullum gangi.“ SPURNING DAGSINS Hvenær fórstu síðast í Þjóðminjasafnið? KJARAMÁL Félag íslenskra flugliða undirbýr málshöfðun gegn Atl- anta vegna ágreinings um túlkun á kjarasamningi félagsins. Í fé- laginu eru þeir sem starfa í far- þegarými svo sem flugfreyjur og flugþjónar. Gísli Hall, lögfræð- ingur félagsins, fer með málið fyrir hönd þeirra. Una Guðlaugsdóttir, formaður Félags íslenskra flugliða, segir að tími sé kominn til að láta reyna á samninga félagsins fyrir dómi. „Ágreiningurinn snýst um túlkun á kjarasamningum. Hann hefur staðið yfir í marga mánuði og er ekki nýr af nálinni.“ Una segir að þeir flugliðar sem störfuðu við flug til og frá Íslandi hafi fengið greitt sam- kvæmt samningnum. Eftir að Samvinnuferðir-Landsýn hættu starfsemi er ekki lengur flug til og frá landinu og þeir sem störf- uðu við það eiga einungis kost á að fljúga á milli hafna erlendis. Öðrum flugliðum félagsins sem fljúga á milli erlendra flughafna hefur ekki staðið íslenskur kjara- samningur til boða, heldur hafa þeir gert samninga við erlenda áhafnarleigu. Þeir fela í sér verk- takagreiðslur og eðli málsins samkvæmt takmarkaðan veik- inda og sumarleyfisrétt. Erling Aspelund, upplýsinga- fulltrúi Atlanta, segir beðið eftir stefnu félagsins og fyrr sé lítið hægt að tjá sig um málið. ■ Félag íslenskra flugliða: Ætlar að stefna Atlanta ÁGREININGURINN SNÝST UM TÚLKUN Á SAMNINGUM Þeir sem starfað hafa Íslandi hafa fengið greitt samkvæmt samningum en hinir eru á verktakagreiðslum í gegnum erlenda áhafnarleigu. STELLA Í FRAMBOÐI Framleiðendur ánægðir með viðtökurnar. Aðsókn: Stella yngri slær við Stellu eldri KVIKMYNDIR Eftir tvær vikur í sýn- ingu hafa 24 þúsund áhorfendur séð kvikmyndina Stella í fram- boði: „Við erum ánægð með þetta. Það tók fyrri myndina, Stella í or- lofi, helmingi lengri tíma að ná þessum áhorfendafjölda,“ segir Halldór Þorgeirsson, framleið- andi myndarinnar, sem er ánægð- ur með aðsóknina. „Við vonum bara að sem flestir sjái myndina, helst 70 þúsund manns,“ segir hann. ■ DÓMSMÁL Prófessor sem krufði piltinn sem lést eftir líkamsárás í Hafnarstræti telur piltinn hafa látist af völdum áverka sem hann fékk er hann féll með hnakkann í götuna. P i l t u r i n n , Magnús Freyr Sveinbjörnsson, sem var tvítugur er hann lést, féll í göt- una eftir spark frá Gunnari Friðrik Friðrikssyni, sem þá var nítján ára. Fjöldi vitna var á vettvangi að- faranótt 25. maí í fyrra. Þó nokkuð bæri í milli dró framburður vitn- anna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær upp heillega mynd af at- burðarásinni. Baldur Freyr Einarsson, sem er 23 ára og er ákærður ásamt Gunnari, lenti í hörðum átökum við Magnús. Baldur hafði and- stæðinginn fljótt undir og lét höggin dynja á honum. Flest töl- uðu vitnin um mörg högg í andlit; veitt með hnefum, fótum og höfði. Starfsmaður á skyndibitastað við götuna dró Baldur af Magnúsi. Baldur gekk þá til félaga sinna og hvatti þá til að ráðast að fórnar- lambinu. Gunnar hljóp að Magnúsi, sem var risinn á fætur. Gunnar segist hafa sparkað í bringu hans en flest vitnin töldu hann hafa sparkað í háls eða höf- uð. Við spark Gunnars lyppaðist Magnús niður og hann féll aftur fyrir sig. Vitni sögðu brothljóð hafa heyrst þegar hnakki hans skall á malbikinu. Sjálfur sagði Gunnar að Magnús hefði ógnað sér. Ekkert vitnanna studdi þetta. Krufningarlæknirinn segir höfuðkúpubrotið sem leiddi til heilablæðingar og dauða ekki eins og eftir barefli heldur eftir fall á sléttan flöt. Það kæmi heim og saman við fallið í götuna. Svo virðist því sem Baldur verði ekki sakfelldur samkvæmt ákæru um stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða. Hann kann þó að verða dæmdur eftir mun vægara ákvæði fyrir sinn þátt. Verjandi Gunnars leiddi líkum að því að Magnús hefði fengið banvæna áverkann fyrir spark Gunnars. Áhrifin hafi þó ekki komið fram fyrr en einmitt við sparkið. „Ég hygg að sá sem hlot- ið hefði þennan áverka hefði ekki haldið meðvitund,“ sagði krufn- ingarlæknirinn hins vegar um þann eina áverka sem hann telur vera banamein Magnúsar. Læknir sem annaðist Magnús á sjúkrahúsi talar í skýrslu um eitt eða fleiri högg sem valdið hefðu höfuðkúpubrotinu. Þessi læknir var ekki kallaður fyrir dóminn. Úr því á að bæta þegar málinu verður haldið áfram á þriðjudag. gar@frettabladid.is Eldri pilturinn virðist saklaus Miðað við framburð krufningarlæknis er líklegt að eldri sakborningur- inn í Hafnarstrætismálinu verði sýknaður. Hann telur að pilturinn sem lést hafi fengið banvæna áverka eftir spark frá yngri sakborningnum. GUNNAR FRIÐRIK FRIÐRIKSSON OG BALDUR FREYR EINARSSON Sakborningar í Hafnarstrætismálinu huldu andlit sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. For- seti Íslands fékk hjartnæma hugvekju um ofbeldi frá Baldri og vitnaði til hennar í nýárs- ávarpi sínu. Baldur er ákærður fyrir tvær líkamsárásir auk árásarinnar í Hafnarstræti. Vitni sögðu brothljóð hafa heyrst þegar hnakki hans skall á mal- bikinu. SAMTÖK AMERÍKURÍKJA Ralph Gonsalves, forsætisráðherra St. Vincent, og Luigi Einaudi, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka Ameríkuríkja, ræðast við. Fundur Samtaka Ameríkuríkja: Afskekktar eyjur stökk- pallar KINGSTOWN, ST. VINCENT, AP Ráða- menn í ríkjum Norður- og Suður- Ameríku óttast að hryðjuverka- menn muni nota afskekktar eða varnarlausar eyjur í Karíbahaf- inu til þess að ráðast á megin- landið. Þetta kemur fram á fundi Samtaka Ameríkuríkja sem nú fer fram á Karíbahafseyjunni St. Vincent. Að sögn Luigi Einaudi, aðstoðarframkvæmdastjóra sam- takanna, stendur til að endur- meta allar öryggisáætlanir álf- unnar með þetta í huga. Bandaríkjunum stafar mest ógn af erlendum hryðjuverka- samtökum og því eru þarlendir ráðamenn afar áhyggjufullir. Talið er að hryðjuverkamönnum muni reynast auðvelt að notfæra sér litla flugvelli á Karíbahafs- eyjum, eða strandlengjur þar sem eftirlit er bágborið, sem stökkpall í árásum á meginland Norður-Ameríku. ■ LONDON, AP Til skotbardaga kom milli lögreglu og manns sem hef- ur haldið við í íbúð í austanverðri London í 15 daga síðan hann not- aði byssu til að ógna lögreglu- mönnum sem ætluðu að fjarlægja bíl fyrir framan íbúð hans. Mað- urinn skaut þremur skotum að lögreglumönnum fyrir framan íbúðina í gær og einn lögreglu- mannanna svaraði skothríðinni. Nokkuð er síðan lokað var fyr- ir rafmagn og hita í íbúðinni. Mað- urinn hefur varist kuldanum sem ríkt hefur undanfarna daga með því að brenna húsgögn í íbúðinni. Síðdegis var gripið til þess ráðs að skjóta táragasi inn í íbúð- ina en lögreglumenn voru þá orðnir vonlitlir um að sjá fyrir endann á umsátrinu. Samninga- viðræður við manninn höfðu þá stundum virst vera að bera ár- angur en fóru jafnan aftur í sama gamla farið. Þetta er þegar orðið lengsta lögregluumsátur í sögu Bretlands og hefur staðið frá því annan í jólum. Íbúar í 40 íbúðum nærri umsátursstaðnum halda sig innan dyra og treysta á lög- reglu til að færa sér helstu nauð- synjar. ■ Umsátrið í London: Skaut á lögreglumenn LÖGREGLUMAÐUR MEÐ HRESSINGU Lögreglumenn fá heitan drykk til að halda á sér hita en maðurinn sem setið er um brennir húsgögn. Sjóvá-Almennar: Kaupa Toyota VIÐSKIPTI Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf. keyptu í gær 25% hluta- fjár í Eignarhaldsfélaginu Stofni ehf., sem er móðurfélag P. Samú- elssonar hf. og fleiri tengdra fé- laga. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að leitað hafi verið til Sjóvár-Almennra um að gerast kjölfestufjárfestir í Stofni. Sjóvá-Almennar telja félagið góð- an fjárfestingarkost og hafa átt traust samskipti við P. Samúels- son um áratugaskeið. Heimildir herma að kaupverð hlutarins sé 600 milljónir króna og eru kaupin fjármögnuð með eigin fé. Bogi Pálsson hættir sem for- stjóri P. Samúelssonar, sem er um- boðs- og söluaðili fyrir Toyota-bif- reiðar og einn stærsti bifreiðainn- flytjandi landsins, í kjölfar kau- panna. ■ 23 KÍLÓ AF HASSI Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli lagði á síð- asta ári hald á rúm 23 kíló af hassi, 1.513 grömm af kókaíni, 1.190 grömm af amfetamíni, 44 grömm af marijúana og 403 steratöflur. Þá framkvæmdi toll- gæslan 476 fíkniefnaleitir þar sem farþegar voru teknir afsíðis í skyndileit og í 65 tilfellum fund- ust fíkniefni eða áhöld til neyslu. FÍKNIEFNI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.