Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 4
4 10. janúar 2003 FÖSTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Verður Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir næsti forsætisráðherra?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að versla á vetrarútsölunum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
9,8%
55,6%Nei
34,6%
EKKI FORSÆT-
ISRÁÐHERRA
Rúmur helmingur
telur að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
verði ekki næsti
forsætisráðherra.
Veit ekki
Já
HÖNNUN „Ég teiknaði þetta merki
fyrir 20 árum og brá í brún þegar
ég sá Eimskipafélagið kynna það
sem sitt. Ég er frekar ósáttur,“
segir Ágúst Ágústsson, sem rek-
ur Framrúðuna við Viðarhöfða í
Reykjavík, um nýtt merki Eim-
skipafélagsins sem leyst hefur
gamla hakakrossinn af hólmi.
Nýja merkið er teiknað af aug-
lýsingastofunni Hvíta húsinu en
upphaflega merkið teiknaði
Ágúst fyrir prentsmiðjuna
Eyrúnu í Vestmannaeyjum:
„Ég teiknaði mörg merki á
þessum árum en er nú hættur
því. Ég veit hins vegar ekki
hvernig Eimskipafélagið myndi
bregðast við ef ég tæki gamla
hakakrossinn þeirra og setti á
fyrirtækið mitt. Kannski ég geri
það,“ segir Ágúst.
Eins og sjá má eru merkin tvö
ekki nákvæmlega eins. Hitt er
víst að þau byggja á sömu hug-
mynd og útfærslan keimlík; tvö E
sem skarast hvort á móti öðru.
Samkvæmt upplýsingum frá
starfsfólki upplýsingadeildar
Eimskipafélagsins var mönnum
þar með öllu ókunnugt um tutt-
ugu ára gamalt merki Ágústar
þegar nýja merkið var valið og
kynnt. ■
Nýtt merki Eimskipafélagsins:
Líkt merki prent-
smiðju í Eyjum
MERKIN TVÖ
Merki prentsmiðjunnar er til vinstri.
Njóttu þess
að vera til
um leið og
þú hugar að
heilsunni
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknir hefur
sent tilmæli til heilsugæslu-
stöðva um tannvernd og flúor-
notkun en þau sem tóku gildi árið
1996 eiga ekki við lengur.
Tilmælin eru unnin af nýstofn-
aðri Miðstöð tannverndar, sem
aðsetur hefur í Heilsuverndar-
stöðinni, í samvinnu við Land-
læknisembættið. Komið hefur í
ljós að flúorlökkun, flúorskolun
og flúorsogtöflur eru einungis
talin nauðsynleg þar sem tann-
átutíðni er há eða aukin hætta er
á tannátu. Ekki er auðvelt að skil-
greina hvaða hópum er hættara
við tannátu en öðrum en tannáta í
barnatönnum er oftast vísbend-
ing um að sérstakt eftirlit skuli
haft með fullorðinstönnum við-
komandi. Fullorðinsjaxlar sem
eru að vaxa þarfnast flúorauka,
en stærstu fullorðinsjaxlarnir
eru að koma upp við 6 og 12 ára
aldur.
Í tilmælunum segir enn frem-
ur að tannburstun með flúortann-
kremi að styrkleika 1% F, tvisvar
sinnum á dag, viðhaldi lágmarks-
flúorstyrk í munnholi og sé því
afar áhrifamikill þáttur í dag-
legri vörn gegn tannátu, hjá öll-
um aldurshópum. Aukin áhersla
er því á mikilvægi tannburstunar
hjá öllum aldurshópum. ■
Landlæknir um tannvernd:
Tannburstun mikilvæg
TANNBURSTUN ALLTAF JAFN MIKILVÆG Í BARÁTTUNNI VIÐ KARÍUS OG BAKTUS
Landlæknir hefur sent frá sér ný tilmæli um tannvernd.
VIÐSKIPTI Ríkisbönkunum var
miskunnarlaust beitt í valdabar-
áttu kaupsýslumanna um áhrif í
Íslandsbanka, Tryggingamiðstöð-
inni og Fjárfest-
i n g a r f é l a g i n u
Straumi. Þetta er
meðal þess sem
kemur fram í
Morgunblaðinu í
greinaflokki Agn-
esar Bragadóttur
blaðamanns. Í
greinunum er rak-
in saga baráttu
Orca hópsins, einkum þeirra Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra
Baugs, og Þorsteins Más Bald-
vinssonar, forstjóra Samherja, við
ráðandi öfl í umræddum fyrir-
tækjum.
Samkvæmt frásögn Morgun-
blaðsins gegndi Landsbankinn
lykilhlutverki í að tryggja ráðandi
hlut erfingja Sigurðar Einarsson-
ar, útgerðarmanns í Vestmanna-
eyjum, í Tryggingamiðstöðinni.
Þar er fullyrt að Kjartan Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins og bankaráðs-
maður í Landsbankanum, hafi
beitt sér fyrir viðskiptum Lands-
bankans sem tryggðu óbreytt yf-
irráð í Tryggingamiðstöðinni.
Fingraför afmáð
Samkvæmt grein Morgun-
blaðsins var haldinn fundur í hús-
næði Skeljungs við Suðurlands-
braut þar sem komið var í veg
fyrir að Jón Ásgeir næði yfir-
höndinni í Tryggingamiðstöðinni.
Á fundinn voru mættir, sam-
kvæmt frásögn Morgunblaðsins,
Kjartan Gunnarsson, Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ og for-
maður bankaráðs Íslandsbanka,
og Einar Sveinsson, forstjóri Sjó-
vár-Almennra og varaformaður
bankaráðs Íslandsbanka. Aðrir á
fundinum voru Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson, stjórnarmaður í
Tryggingamiðstöðinni, Kristinn
Björnsson, forstjóri Skeljungs, og
Brynjólfur Bjarnason, þáverandi
forstjóri Granda og núverandi
forstjóri Símans. „No comment,“
var svar forstjóra Símans um frá-
sögnina af fundinum.
Niðurstaða fundarins var sú að
menn myndu sameinast um að
tryggja eignarhlut fjölskyldunnar
í Tryggingamiðstöðinni. Þegar
niðurstaða var fengin stóð einn
fundarmanna upp, samkvæmt
frásögn Agnesar, og tók upp vasa-
klút. „Jæja. Þá er bara eitt eftir,“
sagði hann og pússaði vatnsglasið
sem hann hafði drukkið úr.
Skömmu síðar keypti Lands-
bankinn hlut fjárfestingafélags-
ins Straums sem Jón Ásgeir taldi
sig hafa tryggt sér kauprétt á.
Hluturinn var síðan seldur fjöl-
skyldunni í Vestmannaeyjum.
Spurður út í það hvort frásögn-
in af fundinum væri rétt svaraði
Kjartan Gunnarsson: „Mér finnst
þessar greinar Agnesar Braga-
dóttur mjög skemmtilegar og lip-
urlega skrifaðar.“
En eru þær sannleikanum sam-
kvæmt?
„Ég hef ekkert meira um þær
að segja en þetta.“
Beittir þú þér að einhverju
leyti fyrir því að Landsbankinn
ætti þessi viðskipti?
„Þessi viðskipti voru aldrei á
borði bankaráðs bankans svo ég
muni til.“
Ræddirðu þessi viðskipti við
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóra Landsbankans?
„Ég hef ekki afskipti af ein-
stökum viðskiptaákvörðunum í
Landsbankanum nema þær séu
þess eðlis eða af þeirri stærð að
þær séu bornar undir bankaráð-
ið.“
Eins og bófahasar
„Þetta er bara eins og bófahas-
ar,“ segir Guðmundur Árni Stef-
ánsson, alþingismaður Samfylk-
ingar og varaforseti Alþingis. „Ef
þetta er nærri lagi að svona sé
gangurinn í viðskiptalífinu þá er
ástæða til að hafa nokkrar áhyggj-
ur. Í þessari ótrúlegu lesningu er
staðfest að í viðskiptum og stjórn-
málum blandast hvað öðru og
stjórnarflokkarnir eru með putt-
ana í öllu saman. Við í Samfylk-
ingunni höfum bent á að þetta svo-
kallaða frelsi á markaðnum virð-
ist ekki eins algilt og menn vilja
vera láta. Það er ótrúlegt ef satt
reynist að framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins skuli með
beinum hætti vera þátttakandi að
jafn afdrifaríkum ákvörðunum og
þarna voru teknar. Ríkisbankarn-
ir eru notaðir samkvæmt þessu
úti á markaðnum til að ráða örlög-
um fyrirtækja. Sumt sem þarna
er skráð kemur manni á óvart en
annað ekki, enda hefur þetta verið
undirliggjandi. Satt að segja var
maður að vona að það væri liðin
tíð að pólitíkin væri örlagavaldur
um líf og dauða í íslensku atvinnu-
lífi. Orðið samkeppni er hjáróma
þegar verið er að gera samninga
upp á milljarða. Ég spyr bara hvar
neytandinn sé í þessu öllu saman“.
Dramatísk barátta
um viðskiptavöld
Morgunblaðið segir framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins hafa beitt sér fyrir því að
Landsbankinn tryggði stöðu ráðandi eigenda í Tryggingamiðstöðinni. Kjartan Gunnarsson ber
af sér afskipti af málinu. Guðmundur Árni Stefánsson segir atburðarásina eins og bófahasar.
HÖRÐ BARÁTTA
Frásögn Morgunblaðsins af átökum um
völd í Tryggingamiðstöðinni er dramatísk.
Þar er fullyrt að framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins hafi beitt sér fyrir því að
hrinda sókn til valda í fyrirtækinu.
„Mér finnst
þessar greinar
Agnesar
Bragadóttur
mjög
skemmtilegar
og lipurlega
skrifaðar.“
rt@frettabladid.is
haflidi@frettabladid.is
Íslenski skipastóllinn:
Færri skip
en stærri
SKIPASTÓLLINN Færri skip voru á
aðalskipaskrá í upphafi árs en í
byrjun þess síðasta. Undanfarin
ár hefur skipum fjölgað en nú
fækkar um 57 skip í flotanum.
Þrátt fyrir fækkunina er heildar-
brúttótonnatala skipastólsins
4.756 tonnum hærri en fyrir ári.
Skýringuna er að finna í í stórum
skipum sem skráð voru á síðasta
ári. Ef litið er á fjögur síðustu ár
sést að heildarfjöldi skipa er nán-
ast sá sami. Árið 2000 voru 2.412
skip á skrá en 2.408 um síðustu
áramót. Skipin hafa hins vegar
stækkað töluvert, heildarbrúttó-
tonnatala skipastólsins hefur
hækkað um rúm 7.300 tonn. ■
Vaxtahækkun
afturkölluð:
Gert að
beiðni ríkis-
stjórnar
VEXTIR Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur
ákveðið að verða við ósk ríkis-
stjórnarinnar og lækka nýlega
ákvarðaða vexti leiguíbúðalána og
annarra peningalána en viðbótar-
lána. Er þetta gert í ljósi þeirrar
lækkunar sem orðið hefur á ávöxt-
unarkröfu húsnæðisbréfa og hús-
bréfa undanfarnar vikur.
Vextir vegna viðbótarlána verða
óbreyttir 5,6% en þeir voru lækk-
aðir við síðustu vaxtaákvörðun í
árslok 2002. Vextir vegna lána til
almennra leiguíbúða munu lækka
úr 5,8% í 4,9%. Vextir annarra pen-
ingalána munu hins vegar lækkað-
ir úr 5,8 í 5,7%. Vextir þessara
lánaflokka verða því óbreyttir frá
fyrra ári. Jafnframt hefur stjórn
Íbúðalánasjóðs ákveðið að endur-
skoða vexti reglulega í ljósi vaxta-
þróunar á fjármálamarkaði. ■