Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003
KÓNGAFÓLK James Hewitt, fyrrver-
andi ástmaður Díönu prinsessu,
segist hafa áhuga á að selja þau
fjölmörgu ástarbréf sem þau
sendu hvort öðru. „Já, ég varð
áhugasamur þegar mér var boðin
há peningaupphæð fyrir bréfin,“
sagði Hewitt í viðtali við Larry
King á sjónvarpsstöðinni CNN.
Í þættinum kom fram að
Hewitt hafi verið boðnar um 520
milljónir króna fyrir bréfin, sem
munu vera 64 talsins. Að sögn
Hewitt stóð ástarsambandið yfir í
fimm ár. Voru bréfin skrifuð þeg-
ar hann tók þátt í Persaflóastríð-
inu fyrir hönd Bretlands. ■
HEWITT
James Hewitt segist hafa átt í fimm ára ástarsambandi við Díönu prinsessu.
Fyrrverandi ástmaður Díönu prinsessu:
Ástarbréfin til sölu
Jazzballett
Jazzballett
Dugguvogi 12
*Leið 4 stoppar stutt frá
Innritun í síma
553 0786
eftir kl. 15.00
* Spennandi Jazzballett og freestyle námskeið fyrir:
• 6-7 ára
• 8-9 ára
• 10-12 ára
• 13-14 ára
• 16-18 ára
* Krefjandi og skemmtilegt jazzballet námskeið fyrir
eldri og lengra komna.
Kennsla hefst 13 janúar.
TÓNLIST Hvítt píanó sem kóngur-
inn sjálfur, Elvis Presley, átti eitt
sinn hefur verið selt fyrir um 56
milljónir króna. Það var Michael
Muzio, formaður Blue Moon
Group-fyrirtækisins, sem keypti
hljóðfærið af upptökustjóranum
Robert A. Johnson frá Memphis.
Muzio vonast til að píanóið
verði til sýnis víðs vegar um
Bandaríkin og fari síðan á sýn-
ingu á væntanlegu rokksafni í
Disney World.
Að sögn kunningja Presley
hafði hann gaman af því að spila
á hljóðfærið á heimili sínu,
Graceland. Presley mun hafa
keypt píanóið skömmu eftir að
hann keypti Graceland og notað
það til ársins 1969. Þá gaf
Priscilla Presley, eiginkona hans,
honum nýtt Steinway-píanó. ■
Píanó sem Elvis Presley átti:
Selt á 56 milljónir
PRESLEY
Elvis Presley spilaði á hvíta píanóið sitt
fram til ársins 1969.
MADONNA
Níunda platan frá Madonnu er væntanleg.
Madonna:
Ný smáskífa
væntanleg
TÓNLIST Söngkonan Madonna ætlar
að gefa út smáskífuna „American
Life“ í apríl. Þetta verður fyrsta
smáskífan af níundu plötu hennar,
sem væntanleg er síðar á árinu.
Platan hefur enn ekki fengið
heiti en uppi hefur verið orðróm-
ur um að hún muni heita „Ein Sof“
sem þýðir óendanleiki.
Jonas Ackerlund, sem leik-
stýrði myndbandi söngkonunnar
við lagið „Ray of Light“ mun stýra
upptökum á myndbandinu við
„American Life.“ ■
Hörkuleg átök þeirra ÖssurarSkarphéðinssonar og Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra
í Kryddsíld Stöðvar 2 á gaml-
ársdag eru enn
til umræðu á
kaffistofum
landsins. Þar
kölluðu formenn-
irnir hvorn ann-
an dóna og ásak-
anir um ósæm-
andi orðbragð
flugu yfir skálum. Hefur þáttur-
inn gengið manna á meðal undir
nafninu Dónaþátturinn. Nú hafa
gárungarnir rifjað upp fræga
ræðu Davíðs Oddssonar í beinni
útsendingu þegar hann tók á
móti heimsmeisturum okkar í
bridds á Keflavíkurflugvelli,
sem jafnan var kennd við
Bermúdaskál. Í minningu henn-
ar og alls þess görótta mjaðar
sem veittur var í Kryddsíldinni
er nú farið að kalla þáttinn
Bermúdasíldina.
Hörkugangur var hjá Edduforlagi um jólin, þar sem
fokdýr orðabók Marðar Árna-
sonar seldist í yfir fimm þúsund
eintökum og tilhugalíf Jóns
Baldvins í
sykruðum um-
búðum Kolbrún-
ar Bergþórsdótt-
ur seldi á annan
tug þúsunda.
Uppgangur fé-
lagsins helgaðist
þó ekki síst af al-
gerum skiptum í forystu félags-
ins, þegar Halldór Guðmunds-
son var látinn víkja fyrir Páli
Braga Kristjónssyni sem for-
stjóri. Páll hefur síðan brillerað
við rekstur Eddu og er sagt að
Björgólfur Guðmundsson, sem
á 68% félagsins, sé mjög
ánægður með þróun mála. Unn-
ið er að því að finna framtíðar-
starf fyrir Halldór innan félags-
ins og er þar meðal annars rætt
um frekara þróunarstarf fyrir
orðabókardeild forlagsins, sem
þykir eiga mikla möguleika. Þá
er talað um að Halldór, sem er
einn ráðgjafa Ingibjargar Sól-
rúnar, verði aðstoðarmaður
hennar ef hún verður ráðherra í
vor.
FÓLK Í FRÉTTUM
AP
/M
YN
D