Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 27
FÓLK Ástralska leikkonan Nicole
Kidman fær sína eigin stjörnu á
„Walk of Fame“ á mánudag.
Stjarna leikkonunnar verður sú
2111. í röðinni. Aðeins þrír Ástral-
ir hafa áður fengið stjörnu á gang-
stéttinni frægu, en það eru Erroll
Flynn, Olivia Newton-John og
hljómsveitin Bee Gees.
Talið er að nýjasta mynd Kid-
man, „The Hours“, verði tilnefnd
til Óskarsverðlauna. Leikkonan er
sem stendur í heimalandi sínu en
varð himinlifandi yfir fréttinni. ■
27FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003
KVIKMYNDIR Leikarinn Bruce Will-
is hefur tekið að sér aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni „Me
Again.“ Þar mun hann leika
mann sem vaknar minnislaus á
hótelherbergi og sér að lík ligg-
ur á gólfinu.
Tökur á myndinni hefjast í
apríl eftir að Willis hefur lokið
að leika í framhaldsmyndinni
„The Whole Ten Yards.“ Dean
Parisot, sem gerði hina vinsælu
gamanmynd „Galaxy Quest“,
verður leikstjóri.
Bruce Willis er með mörg
járn í eldinum því til stendur að
hann leiki í þremur nýjum kvik-
myndum á næstunni. Sú fyrsta
er mynd sem byggð verður á
skáldsögunni „Hostage“ eftir
Robert Crais. Önnur myndin
verður byggð á sögunni „Tenkill-
er“ eftir Elmore Leonard og sú
þriðja og síðasta verður fjórða
Die Hard-myndin en þar er enn
verið að leita að góðum handrits-
höfundi. ■
Opið til
hálf átta
í kvöld
afsláttur við kassann
ekkert
brudl-
E
R
A
N
L
a
n
d
li
s
t
362kr.kg
Merkt verð 659kr.
Gildir til sunnudags 12. janúar eða á meðan birgðir endast
nytt
kortatímabi
l
´
Ferskur kjúklingur
Úrbeinaðar, skinnlausar, íslenskar og ferskar
KJÚKLINGABRINGUR: 30% afsláttur við kassann!
Opnum klukkan tíu
Bruce Willis:
Leikur minnis-
lausan mann
WILLIS
Bruce Willis leik-
ur á næstunni í
fjórðu Die Hard-
myndinni.
Nicole Kidman:
Fær stjörnu meðal þeirra bestu
NICOLE KIDMAN
Er orðin ein skærasta stjarna Hollywood
eftir leik sinn í myndinni „Moulin Rouge“.
LEIKHÚS Skáldið sjálft, Samuel
Beckett, mætti ekki í leikhúsið
þegar fyrsta leikrit hans, Beðið
eftir Godot, var frumsýnt í litlu
leikhúsi í París fyrir hálfri öld.
Skáldið hefði þó vart þurft að
þjást af frumsýningarskjálfta, því
þrátt fyrir að áhorfendur og gagn-
rýnendur tækju verkinu illa í
fyrstu hefur það gengið fyrir
fullu húsi um allan heim síðan.
Í tilefni hálfrar aldar afmælis
leikritsins hefur það nú verið sett
upp í Gate Theatre í fæðingar-
borg skáldsins, Dyflinni. Leik-
stjóri afmælisuppfærslunnar,
Walter Asmus, var góður vinur
Becketts, en þeir kynntust í
Berlín árið 1970. Í viðtali við
Reuters-fréttastofuna sagði Asm-
us að ef Beckett væri á lífi væri
hann trúlega hissa á því hversu
vinsælt leikritið er í dag. „Hann
væri áreiðanlega ánægður, því
hann vildi gjarnan að fólk sæi
leikritið þrátt fyrir að hann tæki
sig aldrei mjög alvarlega sem
skáld,“ segir Asmus. „Ég þekkti
hann vel og veit að hann var ljúf-
ur og yndislegur maður, en undir
niðri kraumuðu tilfinningar og
sýn hans á veröldina var oft
vægðarlaus.
Í leikritinu skrifar Beckett
meðal annars um vonleysið, trúar-
brögðin og dauðann. „Það er engin
flétta í verkinu,“ segir Asmus.
„Það segir bara frá tveimur
mönnum sem bíða eftir manni
sem aldrei lætur sjá sig. Bók-
menntafræðingar hafa frá upp-
hafi deilt um meininguna, en
flestir eru þó sammála um að í
leikritinu sé fengist við óöryggi
mannsins gagnvart örlögum sín-
um.“
Asmus segir ástæðu vinsælda
verksins byggjast á persónunum
tveimur sem í örvæntingu eru í
leit að frelsi. „Fólk samsamar sig
vegna þess að því finnst það vera
á sama báti. Við lifum á tímum
þegar menn leita sem aldrei fyrr
að lausnum,“ segir Asmus.
Írska nóbelskáldið Samúel
Beckett lést árið 1989, 83 ára að
aldri. ■
Enn beðið eftir Godot
Leikrit Samuel Beckett heldur áfram að laða að milljónir áhorfenda þótt
það sé orðið fimmtugt. Nú hefur verið sett upp sýning í Dyflinni í tilefni
hálfrar aldar afmælis leikritsins.
NÓBELSKÁLDIÐ BECKETT
Hafði skarpa og oft vægðarlausa sýn á ver-
öldina og þoldi illa að vera í sviðsljósinu.