Fréttablaðið - 10.01.2003, Side 10

Fréttablaðið - 10.01.2003, Side 10
10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR EVRÓPA KVIÐDÓMUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Al ic an te Al ic an te Suma rhúsa - eige ndur á Spá ni! Bei nt leigu flug. Ver› lækku n 32.245 kr. Ver› frá: *Verðdæmi: M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. 36.630 kr. á mann ef 2 ferðast saman . Innifalið er flug og flugvallaskattar. Munið, að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum 5.000 kr. og VR ávísunum að eigin vild og lækka ferðakostnaðinn. * Flugdagar eru 11. og 24. apríl, 21. maí og alla miðvikudaga í sumar. Flogið er í beinu leiguflugi með Flugleiðum í morgunflugi. Félagsmenn í Félagi Sumarhúsa- eigenda á Spáni fá 2.000 kr. afslátt á mann, ef 20 sæti eða fleiri eru bókuð saman. Sala er hafin á ód‡ru sumarfargjöldunum til Alicante. Niðurstöður skýrslu eig-endanefndar Lands- virkjunar eru mjög traust- ar og í samræmi við stað- reyndir, að sögn Guðmund- ar Ólafssonar, lektors í hagfræði við Háskóla Ís- lands. „Þetta er valinkunnir menn sem gerðu þessa skýrslu og niðurstöðurnar eru í samræmi við þær niðurstöður sem ég fékk fyrir næstum tveimur árum síðan,“ segir Guð- mundur. „Nú geta menn ekki notað arðsemi virkj- unarinnar sem einhverjar mótbárur gegn byggingu hennar. Þetta tekur af öll tvímæli um það að þetta er gott efnahagslega séð og allar líkur á að þetta sé miklu betra heldur en kemur fram í skýrslunni, því þetta er mjög varfærið mat.“ ■ Guðmundur Ólafsson: Tekur af öll tvímæli Kolbrún Halldórsdóttir: Ekkert áhættumat Hjálmar Árnason: Pólítísk skylda að virkja Þorsteinn Siglaugsson: Dugir rétt fyrir lánunum Smári Geirsson: Andstæðingar fá á baukinn Eigendanefndin hefurekki lagt sjálfstætt mat á forsendur Lands- virkjunar, eins og ég taldi að borgarfulltrúar hefðu beðið um,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. „Ég gagnrýni nefndina fyrir að meta ekki þær forsendur. Ég gagnrýni líka fjölmiðla fyrir að taka niðurstöðu- orð skýrslunnar hrá. Nefndin er meðvituð um áhættuna vegna stofn- kostnaðar, álverðið og orkunotkunina. Þessir þættir eru allir orðaðir í skýrslunni og mér finnst því niðurstöðurnar um áhættuþætti í ósamræmi við innihald hennar. Niður- staðan gerir ekki grein fyrir áhættunni, sem þeir samt segja frá í skýrsl- unni. Áhættumat vegna þessarar framkvæmdar hefur enn ekki farið fram.“ ■ Niðurstaðan, nota benefrá óháðum aðilum, segir að forsendur séu réttar, vinnulag er rétt, út- reikingar réttir og að- ferðafræðin. Byggt á því er niðurstaðan sú að Kára- hnjúkavirkjun sé hag- kvæm fyrir Landsvirkjun, fyrir fjárfesta og fyrir þjóðfélagið allt,“ segir Hjálmar Árnason, formað- ur iðnaðarnefndar Alþing- is. „Þá standa menn frammi fyrir þeirri póli- tísku spurningu hvort skynsamlegt sé að ráðast í framkvæmdina eða ekki. Svarið hlýtur að vera já- kvætt. Ef Landsvirkjun hagnast á þessu og þjóðfé- lagið sömuleiðis, þannig að stoðum verði rennt undir velferðarkerfi okkar, þá er það beinlínis pólitísk skylda okkar að leggja út í verkið.“ ■ Mér finnst nefndin ekkihafa verið nægjan- lega gagnrýnin á þær for- sendur sem lagðar eru til grundvallar. Hún tekur í rauninni bjartsýnustu for- sendur án þess að rýna mikið í þær. Mér finnst arðsemiskrafan sem Landsvirkjun gerir, og nefndin leggur engan dóm á, vera mjög lág,“ segir Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. „Frá sjónarhóli eigenda hlýtur þetta að snúast um það að þeir eru að fara í verkefni sem ber áhættu miðað við sambærileg verkefni upp á 8-9%. Ef allar forsendur standast þá stendur það rétt undir vöxtum af lánsfé. Það er sambærilegt við það að einstaklingur taki lán í banka til að kaupa hluta- bréf og geri ekki meiri ávöxtunarkröfu en svo að bréfin standi undir vöxt- unum af lánunum.“ ■ Ég er afskaplega ánægð-ur með niðurstöðu nefndarinnar og vil taka það fram að ég hef alla tíð verið sannfærður um það að Landsvirkjun ynni þessa vinnu mjög faglega. Niðurstaðan kemur mér því alls ekki á óvart,“ segir Smári Geirsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. „Ef þeir sem hafa efast um arðsemi þessa verk- efnis draga ekki í land eft- ir þetta veit ég ekki hvað ætti að gera að verkum að þeir endurskoðuðu sinn málflutning. Þetta á að vera nægjanleg staðfest- ing á því að Kárahnjúka- virkjun er arðsamt verk- efni fyrir Landsvirkjun og Ísland. Þeir sem hafa hald- ið uppi þeim málflutningi að Landsvirkjun væri nán- ast ófær til þess að meta þetta verkefni fá þarna al- varlega á baukinn.“ ■ Skiptar skoðanir um skýrslu Landsvirkjunar Mjög skiptar skoðanir eru um greinargerð eigendanefndar Landsvirkjunar um arðsemismat og fjárhagslega áhættu vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Virkjunarsinnar segja greinargerðina taka af öll tvímæli, vopnin hafi nú verið slegin úr höndum andstæðinga. Andstæðingar virkjunar segja hins vegar að greinargerðin breyti í sjálfu sér engu, eigendanefndin leggi ekki sjálfstætt mat á for- sendur sem liggi að baki skýrslu Landsvirkjunar. ISLAMABAD, AP Á sama tíma og efnahagsástandið í heiminum hef- ur verið í lægð eftir að hryðju- verkamenn gerðu árásir á New York og Washington 11. septem- ber 2001 hefur hagur pakist- anskra fyrirtækja vænkast og fjárhagur pakistanska ríkisins batnað verulega. Herför Banda- ríkjamanna gegn hryðjuverkum, stríðið í Afganistan og eftirleikur þess hafa orðið til þess að pakist- anskt efnahagslíf er í mikilli upp- sveiflu. „Árásirnar 11. september voru vendipunkturinn,“ segir Terry White, talsmaður bandaríska sendiráðsins í Islamabad. „Pakist- an rétt skjögraði áfram fyrir þann tíma.“ Það er að mörgu leyti kald- hæðnislegt að stríðið gegn hryðju- verkum hafi reynst Pakistönum svo vel. Þarlend stjórnvöld höfðu stutt við bakið á harðlínustjórn Talibana í Afganistan og því var í fyrstu alls óljóst hver staða Pakistana yrði í stríði Bandaríkj- anna gegn hryðjuverkum. Stjórn- völd sneru hins vegar við blaðinu og lýstu stuðningi við stefnu Bandaríkjanna. Í kjölfarið byrjaði efnahagurinn að vænkast. Banda- ríkjastjórn veitti Pakistan eins milljarðs dollara aðstoð, meiri- hlutann í formi styrkja. Að auki voru efnahagsþvinganir á hendur landinu felldar niður.. Eftir stríðið í Afganistan hafa pakistönsk fyrirtæki hagnast á uppbyggingarstarfi í hinu stríðs- hrjáða nágrannaríki sínu. Þá hafa Pakistanar sem búa erlendis stór- aukið peningasendingar til ætt- ingja heima við og þannig styrkt efnahaginn. Bankakerfið hagnað- ist líka þar sem peningasending- arnar fóru nú í gegnum þá en höfðu áður farið óformlegri leiðir. Bættur hagur fyrirtækja hefur skilað sér í bættri afkomu ríkis- sjóðs og gjaldeyririnn hefur styrkst. Það er þó ekki víst að hinn almenni Pakistani hafi orðið svo mjög var við uppsveifluna. 45 milljónir lifa ennþá undir fátækt- armörkum samkvæmt opinberum tölum. ■ Uppsveifla í kjölfar hryðjuverkaárása Hryðjuverkaárásirnar á New York og Washington höfðu slæm áhrif á efnahagslíf flestra landa. Í Pakistan hefur þróunin verið þveröfug. GÓÐÆRI Í KAUPHÖLLINNI Verðmæti hlutabréfa í fyrirtækjum sem eru skráð í kauphöllinni í Karachi hefur hækk- að um 112% frá því farþegaþotum var flogið á World Trade Center og Pentagon. Það er meiri hækkun en hjá nokkurri annarri kauphöll. Óku jeppa í gegnum rúðu: Einn maður í haldi INNBROT Einn maður er í haldi lögreglu í tengslum við innbrot í verslunina Hans Petersen á Laugavegi 178. Það var um klukkan hálf sjö í gærmorgun að brotist var inn í verslunina með óvenjulegum hætti. Jeppa var ekið inn um stóran glugga versl- unarinnar. Þjófarnir létu síðan greipar sópa. Þeir virtust helst hafa verið á höttunum eftir staf- rænum myndavélum. Myndavél- ar verslunarinnar sýndu þjóf- ana, sem að öllum líkindum voru tveir, en að sögn lögreglu var ekki hægt að greina hverjir þetta voru. Eftir um það bil hálfa mínútu á vettvangi flýttu þjófarnir sér í jeppann á ný og óku á brott. Þjófarnir komust undan en jeppinn fannst stuttu síðar mannlaus í Bólstaðarhlíð. Hafði jeppanum, sem er af gerðinni Isuzu Trooper, verið stolið í fyrrinótt í Kópavogi. ■ HERÞOTUR REKAST SAMAN Tvær tyrkneskar herþotur rákust sam- an við æfingar. Flugmenn vél- anna björguðu sér í fallhlífum. DANMÖRK Anders Fogh Rasmus- sen hefur gefið út þá yfirlýsingu að til greina komi að hlutlausir sérfræðingar fari yfir allar skýrslur dönsku umhverfismats- stofnunarinnar. Ástæðan er nýjasta bók danska tölfræðings- ins Björn Lomborg, „The Skept- ical Environmentalist“, sem vak- ið hefur hörð viðbrögð meðal vís- indamanna og ráðamanna í Dan- mörku. Fagmennska Lomborg er dregin í efa og nokkrir erlendir vísindamenn hafa nú þegar lagt mat á innihald nýju bókarinnar og gefið henni falleinkun. Lomborg hefur lengi verið und- ir verndarhendi Fogh, sem skipaði hann í embætti forstöðumanns umhverfismatsstofnunarinnar á síðasta ári. Nú er forsætisráðherr- ann undir þrýstingi frá danska þinginu, sem samþykkt hefur til- lögu þess efnis að farið verði ofan í saumana á vinnubrögðum stofn- unarinnar. Lomborg hefur áður verið gagnrýndur fyrir skrif sín um um- hverfismál og varð hann umdeild- ur þegar hann sendi frá sér bókina „Hið sanna ástand heimsins“ fyrir nokkrum árum. Þar heldur hann því fram að fullyrðingar umhverf- isverndarsamtaka um ógnvænlegt ástand náttúru jarðar séu oftar en ekki stórlega ýktar. ■ Tölfræðingurinn Björn Lomborg veldur usla: Falleinkunn frá vísindamönnum BJÖRN LOMBORG Lomborg er umdeildur um allan heim vegna skrifa um umhverfismál. Sýknaður af ákæru: Löglegt að bera sig NOREGUR Norskur ökumaður sem girti niður um sig þegar lögregl- an ætlaði að mæla áfengismagnið í blóði hans var sýknaður af ákæru um að hafa reynt að hindra lögregluna í starfi. Að sögn Aftenposten mættu lag- anna verðir á heimili mannsins eftir að hafa fengið vísbendingar um ölvunarakstur. Hann gerði sér lítið fyrir og klæddi sig úr buxunum og neitaði að fara í þær aftur. Þrátt fyrir sýknunina hlaut maðurinn skilorðsbundinn dóm og sekt fyrir ítrekaðan ölvun- arakstur. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.