Fréttablaðið - 10.01.2003, Qupperneq 17
17FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003
MING
Yao Ming, leikmaður Houston Rockets, átti
fínan leik gegn Orlando Magic í fyrrakvöld.
Hann skoraði 23 stig og tók 11 fráköst.
NBA-deildin:
Jordan vann
gömlu
félagana
KÖRFUBOLTI Michael Jordan, leik-
maður Washington Wizards, skor-
aði 14 stig, tók 10 fráköst og átti
sjö stoðsendingar í 101:98 sigri á
fyrrverandi félögum sínum í
Chicago Bulls í NBA-deildinni í
körfubolta í fyrrakvöld.
Þetta var annar sigur Wizards
á Bulls á skömmum tíma og þar
með hefur Jordan unnið allar fjór-
ar viðureignir sínar gegn Bulls
síðan hann gekk til liðs við Wiz-
ards.
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki
skoraði 30 stig og tók 14 fráköst
þegar Dallas Mavericks vann Atl-
anta Hawks, 117:99. Þetta var sjö-
undi sigur Mavericks í síðustu
átta leikjum. Liðið hefur nú unnið
29 leiki í NBA-deildinni og aðeins
tapað fimm.
Kínverski nýliðinn Yao Ming
skoraði 23 stig og tók 11 fráköst í
91:81 sigri Houston Rockets á Or-
lando Magic. Tracy McGrady,
sigahæsti leikmaður deildarinnar,
skoraði 27 stig fyrir Magic. ■
Stjörnuleikurinn í körfu-
bolta:
Flake með
flest atkvæði
KÖRFUBOLTI Darrel Flake, leikmað-
ur KR, hlaut flest atkvæði í net-
kosningu fyrir byrjunarlið hins ár-
lega stjörnuleiks í körfubolta sem
haldinn verður á Ásvöllum í Hafn-
arfirði á laugardaginn.
Flake, sem mun spila með
Norðurliðinu í leiknum, fékk 466
atkvæði en Damon Johnson, leik-
maður Keflavíkur og Suðurliðins,
varð annar með 454 atkvæði.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
KR, mun þjálfa Norðurliðið en
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkur og íslenska landsliðs-
ins, verður þjálfari Suðurliðsins. ■
GOLF Tiger Woods var á mánudag
útnefndur sem „Kylfingur ársins“
á PGA-mótaröðinni, fjórða árið í
röð.
Woods, sem er að jafna sig eft-
ir aðgerð á hné, vann fimm mót á
síðasta ári, þar af tvö af stóru
mótunum. Engum öðrum tókst að
vinna fleiri en tvö mót í PGA á síð-
asta ári.
„Ég er afar stoltur að vinna til
þessara verðlauna fjórða árið í
röð,“ sagði Woods, sem hefur
einnig unnið til hæstu peninga-
verðlauna allra golfara síðast lið-
inn fjögur ár.
„Það er frábært þegar einstak-
lingur vinnur eitt af stóru mótun-
um, svo ég var sérstaklega
ánægður með að vinna tvö í fyrra,
auk þriggja annarra í PGA-móta-
röðinni.“
Jonathan Byrd, sem sigraði á
Buick áskorendamótinu, var val-
inn „Nýliði ársins“ og Hale Irwin
„Ellismellur ársins“. Það eru
kylfingarnir sjálfir sem sjá um
valið. ■
FÁ STYRK FRÁ SÍF
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur
fengið 400 þúsund króna styrk frá SÍF. Fari
svo að landsliðið nái einu af þremur efstu
sætunum á mótinu tvöfaldast upphæðin.
Hér sjást Guðjón Valur Sigurðsson og Ólaf-
ur Stefánsson með saltfiskkassa sem
landsliðið fékk að gjöf og munu strákarnir
gæða sér á honum meðan á heimsmeist-
aramótinu stendur.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.00 Sýn
Sportið með Olís
18.30 Sýn
Trans World Sport (Íþróttir um
allan heim)
19.00 Egilshöll
Reykjavíkurmót karla fótb.
(Léttir-KR)
19.15 Keflavík
Bikarkeppni karla körfub.
(Keflavík-UMFN)
20.00 Framhús
Handbolti kvenna
(Fram - Stjarnan)
20.00 Ásvellir
Handbolti kvenna
(Haukar - Víkingur)
20.00 KA-heimilið
Handbolti kvenna
(KA/Þór - Valur)
20.00 Seltjarnarnes
Handbolti kvenna
(Grótta KR - ÍBV)
21.00 Egilshöll
Reykjavíkurmót karla fótb.
(ÍR-Víkingur)
TIGER WOODS
Woods er að jafna sig eftir
aðgerð á hné. Talið er að
hann verði til í slaginn í
næsta mánuði.
Tiger Woods:
Kylfingur ársins
AP
/M
YN
D