Fréttablaðið - 10.01.2003, Side 30
30 10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
DÝRT
Steingeiturnar
flippa út
53 ÁRA „Ég byrja nú reyndar á að
fara upp á RÚV til að vinna þátt
í þáttaröðinni minni Vörður.
Þetta eru upptökur sem ég hef
safnað á ferðalögum, en ég er
alltaf með segulbandið með mér
og tek það eiginlega fram yfir
myndavélina. Þátturinn um helg-
ina er um djass á Wall Street.
Þeir eru alltaf að djassa eitthvað
þar,“ segir Sverrir hlæjandi. „En
þegar því er lokið hefst undir-
búningur fyrir hið árlega
Capricorno sem verður haldið á
morgun. Það erum við steingeit-
urnar sem blásum til fagnaðar,“
segir Sverrir og uppsker ekkert
nema vantrú og efasemdir um að
jarðbundnar steingeitur geti
haldið ærlegt partý. „O, jú,“ seg-
ir hann, „þetta eflist allt þegar
líður á kvöldið og geiturnar
kasta af sér hamnum. Ég er til
dæmis með öll spjót rísandi í
bogmanninum þannig að það eru
ýmis öfl sem fara á kreik þegar
hann tekur yfir.“
Sverrir segir listamennina þó
ekki vera með neina „per-
formansa“ í veislunni. „Það eru
allir svo fegnir að vera í fríi
þannig að við notum aðrar leiðir
til að fá útrás,“ segir hann
leyndardómsfullur.
Árið fram undan leggst vel í
Sverri þó hann hafi ekki verið
alveg viss á áramótunum. „Mér
fannst ég ganga öðruvísi inn í
jólin nú en oft áður, tilfinningin
var meira fljótandi eins og þeg-
ar maður veit ekki alveg hvað er
handan við hornið. En núna
finnst mér sérstaklega bjart yfir
þessu ári.“
Sverrir er eini kontratenór-
inn á landinu. „Ég er alltaf að
bíða eftir erfingja, en biðin er
orðin ansi löng. Það hafa nokkr-
ir einstaklingar sýnt áhuga á að
læra þetta en enginn stigið
skrefið til fulls, enda stór
ákvörðun. Þetta raddsvið hefur
þó verið að ryðja sér til rúms um
allan heim og til dæmis Banda-
ríkjamenn tekið vel við sér. Þar
eru frábærir yngri söngvarar að
slá í gegn á þessu sviði.“
Sverrir hefur verið einstak-
lega duglegur að kynna tónlist
kontratenóra á undanförnum
árum og frumflutt milli 20 og 30
verk.
Annars er hann að semja tón-
list við kvikmynd um Tyrkjarán-
ið, sem fer svo á alþjóðlegan
markað. „Ég er að reyna að
tengja arabaheiminn þeim ís-
lenska í tónlistinni. Ég tel mig
nefnilega vera með arabablóð í
genunum og hef alltaf heillast af
þeirra menningarheimi,“ segir
kontratenórinn að lokum.
edda@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
ORGELLEIKARI Guðný Einarsdóttir
orgelleikari hefur hlotið styrk til
framhaldsnáms í orgelleik úr
M i n n i n g a r s j ó ð i
Karls Sighvatsson-
ar. Hún hefur spil-
að á píanó frá
barnsaldri en fór
að fikra sig í átt að
orgelinu á mennta-
skólaárunum. „Ég
útskrifaðist sem
tónmenntakennari
vorið 2001 og lauk
um leið 8. stigi í pí-
anóleik frá Tón-
skólanum í Reykja-
vík.“ Guðný stóðst inntökupróf í
Konunglega tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn haustið eftir og
hefur stundað nám þar síðasta eitt
og hálfa árið en námið tekur að
hennar sögn um 4-5 ár.
Guðný á ekki langt að sækja
tónlistaráhugann en afi hennar,
Sigurbjörn Einarsson biskup, er
músíkalskur mjög og amma henn-
ar Magnea Þorkelsdóttir er lið-
tækur orgelleikari. Guðný telur
þó fráleitt að tengja tónlistar-
áhugann erfðunum einum saman.
„Maður verður að hafa einhvern
áhuga sjálfur og eftir því sem árin
liðu vann orgelið á og mér finnst
það einfaldlega skemmtilegra en
píanóið.“
Guðný er uppalin í Vesturbæn-
um í Reykjavík og gekk hefðbund-
inn menntaveg í hverfinu, byrjaði
í Melaskóla, fór síðan í Hagaskóla
en því næst lá leiðin á tónlistar-
braut Menntaskólans í Hamra-
hlíð. Hún segir orgelnámið bjóða
upp á ýmsa möguleika og þrátt
fyrir vissa sérhæfingu standi
margt til boða. „Námið er fjölþætt
og kórstjórn er til dæmis einn
þátta þess, þá er hægt að leggja
fyrir sig kirkjuorgelleik og svo
má alltaf halda áfram og læra
meira.“
Guðný viðurkennir að tónlistin
sé tímafrekt áhugamál og náms-
efni en hún gefur sér samt tíma til
að lesa bækur og fara í bíó. Þá
reynir hún að nota sumrin til
ferðalaga og þá ekki síst í göngu-
ferðir. ■
Guðný Einarsdóttir stundar framhaldsnám
í orgelleik við Konunglega tónlistarháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Hún er tíundi tón-
listarmaðurinn sem hlýtur styrk úr minn-
ingarsjóði sem stofnaður var eftir sviplegt
fráfall Karls Sighvatssonar.
Persónan
Orgelið tók við af píanóinu
SVERRIR GUÐJÓNSSON
Hlakkar til að skvetta úr klaufun-
um á morgun með vinum sínum
í steingeitarmerkinu.
JARÐARFARIR
13.30 Áslaug Siggeirsdóttir, Skaftahlíð
14, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Ingibjörg K. Árnadóttir, áður
Grýtubakka 2, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu.
13.30 Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Álfa-
skeiði 72, Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju.
14.00 Valtýr Guðmundsson, Sandi, Að-
aldal, verður jarðsunginn frá Nesi.
15.00 Sólveig Axelsdóttir, Kjarrhólma
24, Kópavogi, verður jarðsungin
frá Digraneskirkju í Kópavogi.
16.00 Gerðar G. Þorvaldsdóttur verður
minnst í minningarathöfn í Laug-
arneskirkju.
AFMÆLI
Sverrir Guðjónsson söngvari er 53 ára í
dag.
ANDLÁT
Guðni Sigvaldason lést í Svíþjóð 8. jan-
úar.
Björk Steingrímsdóttir, Tjarnarlundi 10,
Akureyri, lést 7. janúar.
Þorgerður Einarsdóttir frá Þórisholti
lést 7. janúar.
Þórarinn Hjörleifsson, Háaleitisbraut
28, Reykjavík, lést 7. janúar.
Gunnar Sturlaugsson Fjeldsted, síðast
á Langárfossi, Borgarbyggð, lést 6.
janúar.
Guðrún B. Guðmundsdóttir Jones. St.
Louis, Bandaríkjunum, lést 5. jan-
úar.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Þjóðminjasafnið safnar ekki
kennitölum.
Leiðrétting
PAPAR
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
kaffi@kaffireykjavik.com
Sverrir Guðjónsson á 53 ára afmæli í dag og ætlar að halda upp á það
með stæl ásamt vinum sínum úr listalífinu, sem líka eru fæddir í janúar.
Hann er enn eini kontratenórinn á landinu, en vonast eftir erfingja.
Stöðumælasektir. Þær erureyndar tvenns konar; auka-
stöðugjald og gjald vegna brota á
tilteknum umferðarlögum. Auka-
stöðugjaldið er 1.500 krónur og
sektað er ef stöðumælirinn renn-
ur út. Eftir 14 daga hækkar sekt-
in upp í 2.250 krónur. Ef lagt er
ólöglega er sektin 2.500 krónur
og hækkar í 3.750 ef ekki er
greitt innan 14 daga. Í ljósi þessa
er öruggast að leggja í bílastæða-
húsum þar sem ekki er hægt að
ná bílunum út án þess að greiða
fyrir vistina. Yfirleitt smáaura
miðað við það heljarálag sem
stöðumælasektir geta verið í
heimilisbókhaldinu.
LÓÐRÉTT: 1 fjöldi, 2 afhenda, 3 óáreiðanleg, 4 skens, 5 trjákróna, 6 æðir, 7 fugl-
inn, 8 veiddi, 11 karlmannsnafn, 14 varningur, 16 reglubræður, 18 fengur, 20 hest,
21 svelgnum, 23 skemmir, 26 kindurnar, 28 tré, 30 meiða, 31 krot, 33 hreyfist.
LÁRÉTT:
1 gróp,
4 þverhnýti,
9 orðróm,
10 brúki,
12 karlmannsnafn,
13 dæld,
15 beljaka,
17 dysja,
19 kvabb,
20 karp,
22 álpist,
24 sveifla,
25 tala,
27 skjótum,
29 párar,
32 nokkur,
34 ásaki,
35 nuddaðir,
36 vegir,
37 fjas.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 snák, 4 laskar, 9 breyska, 10 glóa, 12 gaur,
13 gætnin, 15 tróð, 17 snap, 19 ali, 20 líkan, 22 akrar, 24 ýsa, 25 akur, 27 sund,
29 ófarir, 32 díll, 34 mæra, 35 ísingin, 36 gusaði, 37 riss. Lóðrétt: 1 segg, 2 ábót,
3 kransa, 4 lygna, 5 asa, 6 skut, 7 karrar, 8 rjóðir, 11 lævísu, 14 inna, 16 ólatir, 18
pauf, 20 lýsing, 21 kandís, 23 kramir, 26 kólni, 28 Dísa, 30 ræni, 31 fjas, 33 lið.
KROSSGÁTA
Hörkuleg átök þeirra ÖssurarSkarphéðinssonar og Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í
Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag
eru enn til umræðu á kaffistofum
landsins. Þar kölluðu formennirn-
ir hvorn annan dóna og ásakanir
um ósæmandi orðbragð flugu yfir
skálum. Hefur þátturinn gengið
manna á meðal undir nafninu
Dónaþátturinn. Nú hafa gárung-
arnir rifjað upp fræga ræðu Dav-
íðs Oddssonar í beinni útsendingu
þegar hann tók á móti heims-
meisturum okkar í bridds á Kefla-
víkurflugvelli, sem jafnan var
kennd við Bermúdaskál. Í minn-
ingu hennar og alls þess görótta
mjaðar sem veittur var í Krydd-
síldinni er nú farið að kalla þátt-
inn Bermúdasíldina.
FÓLK Í FRÉTTUM
Rísin.
Iceland Express.
Vilhelm Anton Jónsson.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
„Það er kennt
á öll hljóðfæri
í skólanum.
Ætli nemend-
urnir séu ekki
um 500 og
þar af eru sex
Íslendingar að
læra á hin
ýmsu hljóð-
færi.“
Pabbinn: „Og hvað lærðuð þiðsvo í efnafræðitímanum í dag,
Kalli minn?“
Kalli: „Við lærðum að búa til
sprengjur.“
Pabbinn: „En hvað eigið þið
svo að læra í skólanum á morg-
un?“
Kalli: „Hvaða skóla?“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
ET