Fréttablaðið - 10.01.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Þráins Bertelssonar útsala
debenhams
Í FULLUM
GANGI
S M Á R A L I N D
komdu og ger›u gó› kaup
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
97
84
01
/2
00
3
Afgreiðslutími
mán. - föst. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
n‡tt
kreditkortatímabil
Veruleikinn er skrýtin skepnasem vísindamenn eru stöðugt að
skoða og mæla og komast alltaf að
nýjum og nýjum sannleika. Nýjustu
vísindafréttir staðfesta að aðdráttar-
aflið ferðast með ljóshraða (eins og
við Einstein höfum reyndar alltaf
sagt). Handan veruleikans er svo
sýndarveruleiki sem er ennþá erfið-
ari viðfangs, ef eitthvað er. Skoðana-
kannanir eru vinsæl útgáfa af sýnd-
arveruleika sem framleiddur er okk-
ur til afþreyingar þegar veruleikinn
er ekki nógu atburðaríkur og
skemmtilegur. Og svo er líka miklu
þægilegra fyrir fréttamenn að leika
sér með sýndarveruleika heldur en
fást við alvörufréttaflutning sem er
tímafrekt nákvæmnisverk.
SKOÐANAKANNANIR eru jafn-
óskyldar raunveruleikanum og skoð-
un er verknaði. Maður getur haft þá
skoðun að maður muni hætta að
reykja á næstunni þótt allt bendi til
að maður sé viljalaust flak sem
hrekst stjórnlaust undan straumi
hvata og fýsna, og maður getur látið
í ljósi þá skoðun að sanngjarnt væri
að reyna að jafna lífskjörin í land-
inu, þótt maður sé í rauninni reiðu-
búinn að grípa til vopna ef einhver
reynir að ná af manni hundraðkalli.
Í FLJÓTU BRAGÐI virðast könn-
unarþolar í skoðanakönnunum taka
könnunina því hátíðlegar sem sá at-
burður eða verknaður sem um er
spurt er nær í tíma. Til dæmis er mað-
ur reiðubúinn til að segja nokkurn
veginn hvað sem er ef maður er
spurður um eitthvað sem á að gerast
eftir sex mánuði, en ef maður er
spurður um hvað maður ætli að gera á
morgun er líklegt að svarið verði
meira í ætt við raunveruleikann.
SÝNDARVERULEIKI skoðana-
kannana getur verið blóðugur ekki
síður en raunveruleikinn. Um þessar
mundir eru helstu fórnarlömb skoð-
anakannana þau Ingibjörg Sólrún og
Halldór Ásgrímsson sem eru orðin
nokkurs konar nútímaútgáfa af Höllu
og Fjalla-Eyvindi og hrekjast um á
hjarni hins pólitíska sýndarveruleika
án þingsæta. En í hásætum sýndar-
veruleikans er kjörtímabilið stutt,
eins og þeir muna sem sáu Kvenna-
listann mælast sem stærsta stjórn-
málaflokk landsins á sínum tíma,
Guðrúnu Pétursdóttur verða að for-
seta, og Vinstrigræna fara yfir 30% í
sýndarveruleikafylgi.
Sýndar-
veruleiki