Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 1
AFMÆLI
Harði diskurinn
í Bush bilaður
bls. 22
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 11. febrúar 2003
Tónlist 14
Leikhús 14
Myndlist 14
Bíó 16
Íþróttir 12
Sjónvarp 18
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
KVIKMYNDIR Tilnefningar til Ósk-
arsverðlauna verða kynntar kvik-
myndaunnendum í dag.
Tilnefningar
til Óskarsins
DÓMSMÁL Fjallað verður um dóm
Hæstaréttar yfir Árna Johnsen á
málstofu í Háskóla Íslands í dag
klukkan 12.15. Málshefjendur eru
Jónatan Þórmundsson prófessor og
Róbert R. Spanó lektor. Fundar-
stjóri er Eiríkur Tómasson prófess-
or. Allir eru velkomnir.
Kryfja dóm
Árna Johnsen
FUNDUR Fyrsti ársfundur Viðskipta-
og hagfræðideildar Háskóla Ís-
lands verður haldinn í hátíðarsal
Háskóla Íslands klukkan 15.30.
Meðal annars flytur Agnes Braga-
dóttir blaðamaður erindi sem nefn-
ist Fer viðskiptasiðferði hrakandi?
Fer viðskiptasið-
ferði hrakandi?
HANDBOLTI Tveir leikir fara fram í
Essó-deild kvenna í handbolta.
Efsta lið deildarinnar, ÍBV, tekur á
móti FH á heimavelli klukkan
19.30. Liðin í sjöunda og áttunda
sæti, Grótta/KR og Fylkir/ÍR, mæt-
ast klukkan 20 á Seltjarnarnesi.
ÍBV mætir FH
DEILUR
Kemst ekki
í sturtu
ÞRIÐJUDAGUR
35. tölublað – 3. árgangur
bls. 13
ÍÞRÓTTIR
Skoðar aðstæður
í Suður-Kóreu
bls. 8
SJÓMENN Innan stjórnar Sjómanna-
félags Reykjavíkur ríkir óánægja
með störf Guðmundar Hallvarðs-
sonar alþingismanns. Auk starfa á
Alþingi er Guð-
mundur ritari í
stjórn Sjómanna-
félags Reykjavík-
ur og hann er fyrr-
verandi formaður
þess félags. Þá er
Guðmundur for-
maður Sjómanna-
dagsráðs í umboði
Sjómannafélags
Reykjavíkur.
Jónas Garðars-
son, formaður Sjó-
m a n n a f é l a g s
Reykjavíkur, stað-
festir að meðal fé-
lagsmanna, bæði innan stjórnar
og utan hennar, beri mikið á óá-
nægju með að Guðmundur standi
að samþykkt frumvarps um út-
flöggun fiskiskipa, sem gerir út-
gerðum kleift að hafa fiskiskip
skráð undir fleiri en einum þjóð-
fána. „Öll samtök sjómanna hafa
lýst sig ósátt við frumvarpið. Við
sjómenn getum ekki annað en ver-
ið ósáttir þegar Guðmundur tekur
ekki tillit til sjónarmiða okkar,“
sagði Jónas. Hann segir mögu-
leika til að ráða erlenda sjómenn í
stað íslenskra opnast þegar frum-
varpið verður að lögum.
Skiptar skoðanir eru meðal
þingmanna. „Það er klár þrýsting-
ur frá útgerðinni að frumvarpið
fari í gegnum þingið. Það er ekki
vel gert af Sturlu Böðvarssyni
samgönguráðherra að þrýsta á
Guðmund Hallvarðsson, formann
samgönguefndar, að afgreiða mál-
ið frá nefndinni,“ sagði Guðjón A.
Kristjánsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins.
„Við erum verulega ósáttir við
þetta frumvarp og höfum ekki
legið á þeirri skoðun okkar við
þingmanninn og stjórnarmanninn,
Guðmund Hallvarðsson, og það
kemur að því að menn verða að
ákveða hvoru megin borðs þeir
vilja vera. Ég skil óánægju minna
manna. Ég veit ekki hvað verður
meira gert, en vissulega eru menn
misjafnlega herskáir,“ sagði
Jónas Garðarsson.
„Ég veit ekki um hvað félagar
mínir hafa verið að tala. Ég ætla
að skoða málið áður en ég tjái
mig,“ sagði Guðmundur Hall-
varðsson alþingismaður, sem er í
fríi erlendis. ■
BRUSSEL, AP Atlantshafsráðið,
fastaráð Atlantshafsbandalagsins,
náði ekki að leysa þann hnút sem
kominn er í Íraksdeiluna á sér-
stökum neyðarfundi í Brussel í
gær.
Djúpstæður ágreiningur er
innan bandalagsins eftir að Belg-
ar, Frakkar og Þjóðverjar beittu
neitunarvaldi til að koma í veg
fyrir að varnir Tyrklands yrðu
efldar vegna hugsanlegs stríðs í
Írak. Þjóðirnar telja að slíkar að-
gerðir geti grafið undan friðarum-
leitunum Sameinuðu þjóðanna.
Eftir neyðarfundinn sagði George
Robertson, framkvæmdastjóri
Nató, að samkomulag væri ekki í
sjónmáli.
Atlantshafsráðið mun koma
aftur saman fyrir hádegi í dag til
að reyna að leysa ágreininginn,
sem er talinn einn sá mesti í sögu
Atlantshafsbandalagsins. Á blaða-
mannafundi í Pentagon í gær
sagði Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, að
svo gæti farið að Bandaríkin og
þau 15 bandalagsríki sem styddu
eflingu varna Tyrklands mynduðu
bandalag fyrir utan Atlantshafs-
bandalagið til að ná sínu fram.
Hann sagðist þó vona að til þess
þyrfti ekki að koma og bandalagið
næði samkomulagi í málinu.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, og Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, héldu sameiginlegan
blaðamannafund í gærkvöldi.
Chirac sagði að ekki væri hægt að
réttlæta hernaðaraðgerðir gegn
Írak og áréttaði þá afstöðu Frakka
að hægt væri að ná því markmiði
að afvopna Írak með friðsamleg-
um leiðum. ■
EKKERT RÉTTLÆTIR HERNAÐARAÐGERÐIR GEGN ÍRAK
Jacques Chirac, forseti Frakklands, segir ekkert réttlæta hernaðaraðgerðir gegn Írak. Á blaðamannafundi í gærkvöld með Vladímír Pútín,
forseta Rússlands, áréttaði hann þá afstöðu Frakka að hægt sé að ná því markmiði að afvopna Írak með friðsamlegum leiðum.
Djúpstæður ágreiningur innan Nató vegna eflingar varna Tyrklands:
Neyðarfundur skilaði engu
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
27%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
þriðjudögum?
54%
72%
Sjómenn ósáttir
við Guðmund
Stjórnarmenn í Sjómannafélagi Reykjavíkur ræddu í gær óánægju með störf Guðmundar
Hallvarðssonar, ritara félagsins og alþingismanns. Þeir telja hann hafa brugðist félögum sínum.
REYKJAVÍK Dálítil él að
morgni. Sunnan 8-13 m/s
og rigning síðdegis. Hiti 0
til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 18-23 Él 0
Akureyri 15-20 Él 0
Egilsstaðir 8-18 Léttskýjað 2
Vestmannaeyjar 10-15 Rigning 0
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
SJÓNVARP
bls. 16
Metáhorf
á Jackson
TÓNLIST
Endurkoma
Billy Corgan
bls. 18
„Það er ekki
vel gert af
Sturlu Böðv-
arssyni sam-
gönguráð-
herra að þrýs-
ta á Guðmund
Hallvarðsson,
formann sam-
gönguefndar,
að afgreiða
málið frá
nefndinni.
M
YN
D
/A
P
NÚVERANDI OG FYRRVERANDI FORMAÐUR
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, er eins og margir félagsmenn
ósáttur við störf Guðmundar Halllvarðssonar, fyrrverandi formann sama félags.
Sporléttir sölumenn
www.eignanaust.is
Sími 551 8000 • Fax 551 1160
Vitastíg 12 • 101 Reykjavík
Bankastofnanir:
Lánsvextir
lækka
FJÁRMÁL Bankastjórn Seðlabanka
Íslands hefur ákveðið að lækka
vexti um 0,5% og verða þeir því
5,3% og hafa ekki verið lægri síð-
an árið 1994. Bankinn spáir 2%
verðbólgu á þessu ári.
Í beinu framhaldi af vaxta-
lækkun Seðlabankans tilkynnti
Landsbankinn að hann hefði
ákveðið að lækka vexti óverð-
tryggðra inn- og útlána um 0,5%
þann 21. febrúar. Þá hyggst
Landsbankinn einnig lækka verð-
tryggða vexti, en í byrjun næstu
viku verður tilkynnt hversu mikið.
Íslandsbanki tilkynnti einnig í
gær að hann hygðist lækka óverð-
tryggða vexti um 0,5% og verð-
tryggða vexti um 0,2%. ■