Fréttablaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 6
11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
Börn 2ja-12 ára í fylgd með fullorðnum greiða 1.833 kr. aðra leiðina
EGILSSTAÐA
5.900 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.000 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
/ÍSAFJARÐAR
3.999kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
4.999 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
EGILSSTAÐA
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.100 kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
12.–18. febrúar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
FL
U
2
01
98
02
/2
00
3
NETTILBOÐ Í MARS
Bókanleg til 18. feb. • Ferðadagar: 4.–25. mars
Verð
frá:
Stjórnarmyndun:
Mitzna hafnar Sharon
JERÚSALEM, AP Amram Mitzna,
leiðtogi Verkamannaflokkins,
hafnaði boði Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels, um að
taka þátt í viðræðum um mynd-
un nýrrar ríkisstjórnar. Hann
sagðist hins vegar reiðubúinn að
skipta um skoðun ef Sharon
samþykkti að hefja fyrirvara-
lausar friðarviðræður við
Palestínumenn og byrjaði að
rífa niður landnemabyggðir á
palestínsku landsvæði. Afar
ólíklegt er að Sharon gangi að
því.
Mikið hefur verið þrýst á
Verkamannaflokkinn að taka
þátt í stjórnarmyndun með
Likud-bandalagi Sharons.
Stjórnmálamenn úr flestum
flokkum Ísraels hafa lagt
áherslu á að flokkurinn taki þátt
í stjórnarmyndun. Margir telja
að ekki sé hægt að mynda
stöðuga ríkisstjórn án þátttöku
þessara tveggja flokka.
Sharon ræddi við fulltrúa
ýmissa flokka, meðal annars
hins strangtrúaða Shas og
Shinui sem berst gegn áhrifum
heittrúarmanna. ■
Ráðuneyti lét Árna
leika lausum hala
Hæstiréttur segir hvorki menntamálaráðuneyti né Framkvæmdasýslu
ríkisins hafa skipt sér af því þó Árni Johnsen hafi í engu hagað störfum
sínum í byggingarnefnd Þjóðleikhússins samkvæmt lögum.
DÓMSMÁL Hvorki menntamálaráðu-
neyti né Framkvæmdasýsla ríkis-
ins gerðu athugasemdir þó Árni
Johnsen hagaði ekki störfum sínum
sem formaður
byggingarnefndar
Þjóðle ikhúss ins
samkvæmt skipun-
arbréfi. Hæstirétt-
ur bendir á þetta í
dómi sínum yfir
Árna.
Menntamálaráð-
herra gaf út skipun-
arbréf byggingar-
nefndarinnar í
febrúar 1996.
Nefndinni var með-
al annars ætlað að
skipuleggja fram-
hald uppbyggingar-
starfs í Þjóðleik-
húsinu, gera áætl-
anir um kostnað og
tillögur um leiðir
og verklag. Þóknun
fyrir störfin yrði ákveðin af þókn-
ananefnd ríkisins.
Árni hafði frá árinu 1989 setið í
nefnd sem fjallaði um breytingar á
Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhússtjóri
og forstöðumaður Framkvæmda-
sýslu ríkisins voru skipaðir með
Árna í nýju nefndina. Hæstiréttur
segir enga formlega fundi hafa ver-
ið haldna í nefndinni eða fundar-
gerðir verið færðar, eins og gera
átti. Aldrei hafi verið fundað með
forstöðumanni framkvæmdasýsl-
unnar. Þjóðleikhússtjóri hafi ein-
faldlega skýrt Árna frá því hvað
hann teldi að þyrfti lagfæringar við
og Árni síðan falið Ístaki að sjá um
verkið samkvæmt reikningi eða þá
leyst úr málinu sjálfur:
„Ákærði Árni kvaðst í skýrslu
hjá lögreglu hafa verið allt í senn
formaður nefndarinnar, fram-
kvæmdastjóri, samningamaður,
sendill og eftirlitsmaður verkefna,“
segir Hæstiréttur.
Þrátt fyrir áðurnefnda verkefna-
lýsingu liggja engar áætlanir fyrir
um kostnað á endurbótum við leik-
húsið, né tillögur um leiðir og verk-
lag. „Hins vegar töluverður fjöldi
reikninga vegna verka og innkaupa,
sem ákærði Árni kom persónulega
að eða samþykkti sem formaður
nefndarinnar og sendir voru Fram-
kvæmdasýslu ríkisins til greiðslu.“
Hæstiréttur minnir enn fremur
á þá niðurstöðu ríkisendurskoðunar
að þriðjungur kostnaðar nefndar-
innar væri henni í raun óviðkom-
andi því það hafi verið hefðbundinn
rekstrarkostnaður leikhússins.
„Samkvæmt þessu virðist sem
störf nefndarinnar hafi þróast á allt
annan veg en fyrrnefnt skipunar-
bréf gaf til kynna, en engar athuga-
semdir voru gerðar af hálfu
menntamálaráðherra eða Fram-
kvæmdasýslu ríkisins við verklag
nefndarinnar, þótt hún hafi í engu
farið í störfum sínum eftir ákvæð-
um laga um skipan opinberra fram-
kvæmda,“ segir Hæstiréttur.
gar@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Beiðni Kristjáns Páls-
sonar alþingismanns til mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins
um að fá að nota listabókstafina
DD í sérframboði sínu í Suður-
kjördæmi virðist falla í grýttan
jarðveg. Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra og formaður mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins,
segist ekki vita um neinn í mið-
stjórninni sem styðji þessa hug-
mynd Kristjáns. Virðist forsæt-
isráðherra hafa nokkuð til síns
máls:
„Flokkurinn hefur aldrei sam-
þykkt sérframboð og gerir það
heldur ekki nú. Það yrði eins og
borgarastyrjöld ef menn byrj-
uðu á því,“ segir Guðmundur H.
Garðarsson, fyrrum alþingis-
maður, sem sæti á í miðstjórn-
inni. „Menn verða bara að fara í
sín eigin framboð,“ segir hann.
Svipaður tónn er í mörgum öðr-
um miðstjórnarmönnum og því
virðist sem Kristján sé þar á köld-
um klaka með beiðni sína:
„Ég tel ekki við hæfi að tjá mig
um þetta mál Kristjáns fyrr en um
það hefur verið fjallað í miðstjórn-
inni,“ segir Ellen Ingvadóttir, sem
á þar einnig sæti ásamt 26 öðrum.
Miðstjórnarmenn Sjálfstæðis-
flokksins eru kjörnir að hluta til á
landsfundi flokksins, aðrir af þing-
flokki og svo eru nokkrir sjálf-
kjörnir vegna embætta er þeir
gegna fyrir flokkinn. ■
TEKIÐ VIÐ UMBOÐINU
Ariel Sharon þáði stjórnarmyndunarumboð
úr hendi Moshe Katsavs forseta.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Menntamálaráðherra skipaði Árna Johnsen
formann byggingarnefndar Þjóðleikhússins
árið 1996. Ráðuneytið gerði engar athuga-
semdir við það þó störf Árna samræmdust
ekki lögum.
Engar athuga-
semdir voru
gerðar af
hálfu mennta-
málaráðherra
eða Fram-
kvæmdasýslu
ríkisins við
verklag nefnd-
arinnar, þótt
hún hafi í
engu farið í
störfum sín-
um eftir
ákvæðum
laga um skip-
an opinberra
framkvæmda.
KRISTJÁN PÁLSSON
Litlar undirtektir í miðstjórninni.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins:
Kristján á köldum klaka
ÁRNI JOHNSEN
„Ákærði Árni kvaðst í skýrslu hjá lögreglu hafa verið allt í senn formaður nefndarinnar,
framkvæmdastjóri, samningamaður, sendill og eftirlitsmaður verkefna,“ segir Hæstiréttur
um óvenjulegar og ólöglegar vinnuaðferðir Árna Johnsen.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M