Fréttablaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 11
11ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2003
Flugsæti fyrir alla til Alicante
Dúndurtilbo›
24. apríl
Tilbo›ssæti 21. maí, 25. júní, 16. júlí, 20. ágúst og 10. sept.
23.630
* Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Sjá nánar á www.plusferdir.is
m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
Ef tveir ferðast saman, 29.630 kr. á mann.
kr.
á mann
*
Flug 19.900 kr. + flugvallarskattar 3.730 kr. = 23.630 kr. - VR ávísun 5.000 kr. = 18.630 kr. á mann
Flug - barnaafsláttur + flugvallarskattar - VR ávísun = 23.390 kr. á mann
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
25.240 kr.á mann*
Athugi›!
Flogi› me› Icelandair
í beinu leiguflugi.
Brottfarartími
frá Íslandi kl. 7.30.
Brottfarartími
frá Alicante
kl. 14.50.
Óskum félögum
í VR til hamingju me›
sumarhúsaúthlutunina
á Spáni.
ISLAMABAD, AP Skorið hefur verið
niður í starfsliði sendiráða
Indlands og Pakistan í hvoru
hinna landanna um sig. Indverski
sendiherrann í Islamabad og
fjórir samstarfsmenn hans héldu
heimleiðis til Indlands eftir að
vera reknir úr landi fyrir njósnir
og brugðu Indverjar þá á það ráð
að reka heim fimm sendimenn í
pakistanska sendiráðinu í Nýju-
Delhí.
Þetta er í annað skiptið á árinu
sem löndin tvö skiptast á að reka
heim sendimenn hins landsins, en
í síðasta mánuði voru fjórir
sendimenn reknir heim úr sendi-
ráðum ríkjanna tveggja í höfuð-
borgum þessa fjandsamlegu ná-
grannaríkja. ■
LANDKYNNING Ákveðið hefur verið
að 325 milljónum af fjárlögum
verði varið til landkynningar á
þessu ári. Það er meira fé en
nokkru sinni fyrr. Því til viðbótar
er reiknað með að fyrirtæki í
ferðaiðnaði leggi fram fjármagn á
móti þannig að um hálfum millj-
arði verði varið til átaks til að
kynna landið erlendis.
Hugmyndin er að á móti hverri
krónu sem komi frá stjórnvöldum
leggi aðilar í ferðaþjónustu krónu
á móti og að minnsta kosti tvöfaldi
upphæðina.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir að á síðasta ári
hafi verið farið í sérstaka aðgerð
til að efla ferðaþjónustuna hér
innanlands. Hún fólst í því að fá
fyrirtæki í greininni til að leggja
fé á móti þeim fjármunum sem
hafi komið frá stjórnvöldum. Það
hafi tekist svo vel að ákveðið hafi
verið að gera stórátak til að kynna
landið erlendis. „Eftir hryðju-
verkaárrásirnar 11. september
2001 var það mat okkar að það
yrði að bregðast við og efna til
sérstaks kynningarátaks. Þá lögð-
um við fram 150 milljónir króna
til viðbótar við önnur verkefni.
Feiknalega góður árangur náðist í
því átaki. Því töldum við að yrði
að fylgja þeim góða árangri eftir
og stórauka framlag í þennan
málaflokk á þessu ári,“ segir
Sturla.
Að sögn Magnúsar Oddssonar
ferðamálastjóra hefur verið
mörkuð stefna um hvar eigi helst
að kynna landið erlendis og í því
skyni hefur markaðssvæðunum
verið skipt í fjögur svæði. Lögð
verður áhersla á að þeir sem
sækja um fé til landkynningar
komi til með að styrkja ferða-
þjónustu um allt land á heilsárs-
grunni. ■
Indland og Pakistan:
Enn deila
grannarnir
SENDIR HEIM Á LEIÐ
Fimm indverskir sendimenn hófu ferð sína
frá höfuðborg Pakistan heim til Indlands
eftir að hafa verið reknir úr landi.
Áhersla lögð á heilsársstarfsemi:
Aukið fé í
landkynningu
LANDKYNNING
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra,
Magnús Oddsson ferðamálastjóri og Elsa
Guðjónsdóttir frá samgönguráðuneytinu
kynntu hugmyndirnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M