Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 2
2 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. var dæmdur í
hæstarétti fyrir ummæli sín gagnvart fórnarlambi í
svokölluðu prófessorsmáli á síðasta ári. Nú hefur
Haukur Guðmundsson, fyrrum rannsóknarlögreglu-
maður í Keflavík, kært Jón vegna ummæla í Kast-
ljósþætti í síðustu viku.
Ég hef svo sem enga kæru séð, aðeins
heyrt um hana í fjölmiðlum, en það er
aldrei of mikið af góðum kærum.
SPURNING DAGSINS
Jón Steinar, ertu ekki orðin
þreyttur á þessum kærum?
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, segir
að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að taka á sig ábyrgð á vörnum
Tyrklands með því
að samþykkja að
láta Atlantshafs-
bandalagið senda
þangað hersveitir
beri vott um skil-
yrðislausa undir-
gefni og hrifningu
á stríðsherrunum í
Washington.
S t e i n g r í m u r
gagnrýndi Halldór
Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra harð-
lega fyrir þessa afstöðu á Alþingi í
gær. Hann sagði að Ísland ætti
frekar að skipa sér á bekk með
Evrópuríkjum eins og Belgíu,
Þýskalandi og Frakklandi, sem
hefðu beitt valdi sínu innan Atl-
antshafsbandalagsins til að stöðva
slíka sameiginlega varnarskyldu.
Rökin hefðu verið þau að slík
ákvörðun jafngilti því næstum að
lýsa því yfir að stríð gegn Írak
væri hafið.
Halldór sagði að mjög eðlilegt
væri að huga að vörnum Tyrk-
lands ef það kæmi til átaka við
landamæri þeirra. Það væri ekki
útilokað að á Tyrki yrði ráðist.
„Íslenska ríkisstjórnin er
þeirrar skoðunar að Atlantshafs-
bandalagið geti ekki neitað
Tyrkjum um sameiginlega varn-
arskyldu,“ sagði Halldór. „Okkur
finnst þetta mál liggja augljós-
lega fyrir eins og flestum öðrum
ríkjum bandalagsins og tökum
því afstöðu á efnislegum grund-
velli.“
Steingrímur sagði að þetta
væri ekki efnisleg niðurstaða
heldur pólitísk ákvörðun. Ísland
hefði gengið inn í Atlantshafs-
bandalagið með þeim fyrirvara að
það myndi aldrei segja annarri
þjóð stríð á hendur eða taka þátt í
stríðsátökum.
„Nú er Ísland að skilja sig frá
þeim Evrópuþjóðum sem eru að
reyna að andæfa stríðsæsingar-
mönnunum í Bandaríkjunum. Mér
finnst fara betur á því að utanrík-
isráðherra íslensku þjóðarinnar
láti Donald Rumsfeld (varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna) eft-
ir að halda ræður af því tagi sem
hér voru fluttar áðan.“
Þegar Steingrímur sagði þetta
bað Halldór hann um að gæta orða
sinna.
„Ég veit ekki betur en Ísland-
ingar skipi sér í hóp með þjóðum
eins og Noregi og Danmörku og að
kalla þær þjóðir eða Íslendinga
stríðsæsingamenn finnst mér
ekki vera samboðið háttvirtum
þingmanni.“
trausti@frettabladid.is
KÖNNUN Hartnær tveir þriðju þeir-
ra sem tóku afstöðu í skoðana-
könnun Fréttablaðsins um liðna
helgi telja að refsing Hæstaréttar
til handa Árna Johnsen sé hæfi-
leg.
Árni var á fimmtudag í síðustu
viku dæmdur í tveggja ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjár-
drátt, mútuþægni. umboðssvik og
fleira. Brotin framdi Árni á árun-
um 1997 til 2001 í starfi sem for-
maður byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins. Árni hafði verið sak-
felldur fyrir 18 af 27 ákæruliðum
í Héraðsdómi Reykjavíkur og
dæmdur til 15 mánaða fangelsis-
vistar. Hæstiréttur taldi Árna sek-
an um fjóra ákæruliði til viðbótar
og bætti níu mánuðum við fang-
elsisdóminn.
Af þeim sem tóku afstöðu í
könnun Fréttablaðsins á laugar-
daginn segja 63% að refsing Árna
sé hæfileg. Rúmur fjórðungur,
eða 26% telja dóminn vera of
þungan en 11% telja dóminn of
vægan.
Fremur lítill munur reyndist
vera á afstöðu fólks eftir kyni
þess og búsetu. Af körlum töldu
27,5% dóminn vera of þungan en
24,3% kvenna voru sama sinnis.
Á landsbyggðinni var síst sátt
um dóminn í þeim skilningi að þar
sögðust aðeins 58,7% telja hann
hæfilegan á móti 65,6% í þéttbýl-
inu. 14,7% landsbyggðarfólks
vildu þyngja dóminn en 26,7%
töldu dóminn of þungan. Í þéttbýl-
inu var það skoðun 25,4% að dóm-
urinn hafi verið of harður. Aðeins
9% vildu hafa dóminn þyngri en
raunin var.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns. Tæplega 95% þeirra tóku
afstöðu til þessarar spurningar.
gar@frettabladid.is
MIKIL ÖRYGGISGÆSLA
Mikil öryggisgæsla er við sendiráðið.
Hollenskir ráðamenn neita því þó að þeir
vilji flytja sendiráðið þar sem þeir óttist
árásir á það.
Hollensk stjórnvöld:
Vilja sendi-
ráðið burt
HAAG, AP Hollensk stjórnvöld hafa
farið þess á leit við Bandaríkja-
menn að sendiráð þeirra í Haag
verði flutt úr miðbænum í af-
skekktari hluta borgarinnar.
Ástæðan fyrir beiðninni er að
miklar öryggisráðstafanir við
sendiráðið hafa orðið til þess að
teppa umferð í nágrenninu.
Gæsla við sendiráðið var aukin
verulega í gær vegna hættumats
Bandaríkjastjórnar á hryðju-
verkaárásum. Brynvarinn bíll og
vopnaðir menn gæta nú sendi-
ráðsins auk þess sem tveggja
metra há girðing hefur verið reist
í kringum það. Sendiráðið er
nokkur hundruð metra frá
hollenska þinginu og beint á móti
fjármálaráðuneytinu. ■
JERÚSALEM, AP Hópur fólks réðst að
bréfbera í hverfi strangtrúaðra
gyðinga í Jerúsalem. Maðurinn
var að bera út bæklinga með for-
síðumynd af ísraelskri fjölskyldu.
Þar á meðal var kona íklædd rúllu-
kragapeysu og án höfuðbúnaðar en
slíkt brýtur í bága við reglur
strangtrúaðra gyðinga varðandi
klæðaburð.
Bréfberinn hafði borið út póst í
hverfinu um sjö ára skeið og
þekkti því vel til árásarmannanna.
Talsmaður póstsins hefur þó lýst
því yfir að þar á bæ muni menn
halda ótrauðir áfram að bera út
umræddan bækling í hverfinu
þrátt fyrir atvikið. ■
RAKTI SLÓÐINA
Lögreglunni tókst að rekja slóð mannsins í
snjónum og fannst hann bak við rusla-
tunnu í næstu götu.
Maður handtekinn:
Sparkaði í
andlit stúlku
LÖGREGLUMÁL Maður barði annan á
veitingastað í Þingholtsstræti að-
faranótt laugardags. Var sá slas-
aði fluttur á slysadeild.
Skömmu síðar barst tilkynning
um að ráðist hefði verið á unga
stúlku á Laugavegi. Henni hafði
verið hrint og síðan var sparkað
framan í hana. Af því hlaut hún
kinnbeinsbrot. Stúlkan kvaðst
ekkert hafa kannast við árás-
armanninn. Lögreglunni tókst að
rekja slóð mannsins í snjónum og
fannst hann bak við ruslatunnu í
næstu götu. Talið er að maðurinn
hafi einnig átt þátt í árásinni inni
á veitingastaðnum. ■
Strangtrúaðir gyðingar:
Hópur réðst á bréfbera
REGLUM FYLGT
Í hverfi strangtrúaðra gyðinga í Jerúsalem gilda harðar reglur um klæðaburð og við
jaðra hverfisins eru skilti þar sem meðal annars er óskað eftir því að konur hylji hné sín,
olnboga og hár.
Tveggja ára fangelsisdómur yfir Árna Johnsen
er hæfilegur að mati 63% landsmanna:
Makleg málagjöld Of þungur(26%)
Hæfilegur
(63%)
Of léttur
(11%) Of þungur
(27%)
Hæfilegur
(58%)
Of léttur
(15%) Of þungur
(25%)
Hæfilegur
(66%)
Of léttur
(9%)
ÁRNI JOHNSEN
Almenningur er nokkuð sáttur við dóm
Hæstaréttar yfir Árna Johnsen.
BRUGGTÆKI Á BLÖNDUÓSI
Bruggtæki, landi og eimingar-
tæki voru gerð upptæk eftir
húsleit lögreglunnar á Blönduósi
á heimili í bænum á föstudags-
kvöld. Ekki er vitað hvort tæki
voru ætluð til einkanota eða
framleiðslu og sölu á landa.
TVEIR ÖKUMENN Á SLYSADEILD
Árekstur varð við Dalshraun í
Hafnarfirði í gærmorgun. Öku-
menn voru einir í bílunum og
voru fluttir á slysadeild. Reynd-
ust meiðsl þeirra ekki alvarleg.
Báðir bílarnir eru óökufærir.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Undirgefni við stríðs-
herrana í Washington
Íraksdeilan var rædd á Alþingi í gær. Formaður Vinstri grænna gagnrýndi
ríkisstjórnina harðlega fyrir að taka á sig ábyrgð á vörnum Tyrklands.
Utanríkisráðherra sagði eðlilegt að Nató hugaði að vörnum landsins.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Formaður Vinstri grænna sagði að Ísland væri búið að skilja sig frá þeim Evrópuþjóðum
sem reyndu að andæfa stríðsæsingamönnunum í Bandaríkjunum.
„Íslenska ríkis-
stjórnin er
þeirrar skoð-
unar að Atl-
antshafs-
bandalagið
geti ekki neit-
að Tyrkjum
um sameigin-
lega varnar-
skyldu.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FÍKNIEFNI OG SKOTVOPN Húsleit
var gerð í austurborginni í
Reykjavík á föstudag vegna
gruns um fíkniefnasölu. Fyrir lá
úrskurður frá Héraðsdómi
Reykjavíkur. Töluvert fannst af
fíkniefnum í íbúðinni, nokkur
skotvopn og ætlað þýfi. Lögregla
handtók menn sem taldir eru
tengjast málinu.
56 UMFERÐARÓHÖPP Óvenju
mörg umferðaróhöpp áttu sér
stað í Reykjavík um helgina eða
alls 56. Engin alvarleg slys urðu
á fólki en í níu tilvikum þurfti
fólk að leita sér aðstoðar á slysa-
deild vegna minniháttar meiðsla.
Sextán ökumenn voru kærðir fyr-
ir of hraðan akstur og ellefu voru
grunaðir um ölvun við akstur.
ALLS
FINNST ÞÉR DÓMURINN YFIR ÁRNA JOHNSEN HAFA VERIÐ
OF ÞUNGUR, HÆFILEGA ÞUNGUR EÐA OF MILDUR??
LANDSBYGGÐ ÞÉTTBÝLI
Ungir handrukkarar:
Illa fenginn
vasapeningur
NOREGUR Í Þrándheimi í Noregi
virðist hafa færst í vöxt að
óharðnaðir unglingar vinni sér
inn vasapening með því að gerast
handrukkarar, að því er fram
kemur í Aftenposten. Dæmi eru
um að börn allt niður í þrettán ára
aldur kaupi upp skuldir sem þau
svo rukka inn með því að beita of-
beldi og hótunum.
Svo virðist sem algengt sé að
unglingar fái lán á svörtum mark-
aði, einkum til þess að fjármagna
eiturlyfjanotkun eða fjárhættu-
spil. Þegar stendur á greiðslu er
skuldin seld þriðja aðila og hækk-
ar hún þá töluvert enda taka hand-
rukkararnir allt að því 20.000 ís-
lenskar krónur fyrir að brjóta
fingur, handlegg eða fót eða eyði-
leggja hné, svo dæmi séu tekin. ■
Svíþjóð:
Talandi
götumælar
STOKKHÓLMUR, AP Yfirmenn um-
ferðarmála í Stokkhólmi hafa
ákveðið að setja upp tíu talandi
stöðumæla í borginni.
Þegar fólk setur fyrstu mynt-
ina í stöðumælinn spilar hann
skilaboð til ökumanna. „Margar
götur eru hreinsaðar að degi til.
Vinsamlegast athugið merking-
ar.“ Með þessu vilja yfirvöld
reyna að gera snjómokstur á bíla-
stæðum borgarinnar auðveldari.
Það skapar oft vandræði við
mokstur að bílar eru í stæðum, en
með þessu vilja yfirmenn umferð-
armála draga úr þeim óþægind-
um. ■