Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 7
7FIMMTUDAGUR 5. desember 2002
lífstíðar ábyrgð á saumum
vinnufatnaður
…á Íslandi umboðsaðili
fyrir BLÅKLÄDER
…Hnépúðar
m/CORDURA
efni (extra sterkt).
Sterkar iðnaðarbuxur
verð kr. 3.900 Faxafeni 12
108 Reykjavík
Sími 544 4560
Faxafeni 12
Hafðu í huga þegar þú verslar:
• verð
• gæði
• þjónustu
Við erum í
LJÓSASTAURINN SVIGNAÐI Harð-
ur árekstur varð á mótum
Reykjanesbrautar og Fjarðar-
hrauns um eittleytið aðfaranótt
sunnudagsins. Ökumaður á leið
suður Fjarðarhraun ók yfir á
rauðu ljósi og í veg fyrir fólksbíl
sem kom aðvífandi austur
Reykjanesbrautina. Sá kastaðist
á ljósastaur og var höggið svo
mikið að staurinn bognaði niðri
við jörð. Ökumenn sluppu báðir
með minniháttar meiðsl, sem
þykir mikil mildi. Báðir bílarnir
eru taldir ónýtir.
BRAUST INN Í ÍBÚÐ Brotist var
inn á tveimur stöðum í Reykjavík
aðfaranótt laugardagsins. Í öðru
tilvikinu var maður handtekinn
eftir að hafa brotist inn í íbúð í
austurhluta borgarinnar. Íbúar
urðu mannsins varir og létu lög-
reglu vita. Þegar lögreglu bar að
var hann farinn af vettvangi en
náðist skömmu síðar. Hitt inn-
brotið var framið í fyrirtæki. Þar
hafði þjófurinn á brott með sér
þrjár tölvur.
Árósasamningur:
Ekki lagður
fyrir á þessu
þingi
ALÞINGI Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, gagn-
rýndi ríkisstjórnina fyrir að vera
ekki búin að fullgilda Árósasamn-
inginn um leikreglur í umhverfis-
málum.
Kolbrún sagði
samninginn mikil-
vægan. Hann eigi að
tryggja almenningi
og félagasamtökum
aðgang að upplýs-
ingum, þátttöku í
ákvarðanatöku og
aðgang að rétt-
mætri málsmeðferð
í umhverfismálum.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði að samningurinn
legði nýjar skuldbindingar á Ís-
lendinga, sem ekki væri auðvelt að
standa undir miðað við íslenskar
aðstæður. Hann sagðist ekki gera
ráð fyrir því að samningurinn yrði
lagður fram á núverandi þingi. Þá
teldi hann að Íslendingar stæðu
framarlega á sviði umhverfismála,
jafnvel framar en nágrannaþjóð-
irnar.
Kolbrún mótmælti þessu og
sagði að félagasamtök ættu ekki
greiðan aðgang að dómstólum með
sín mál. ■
Jeppamenn:
Festust í
skíðabrekku
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn í eftir-
litsferð á Akureyri aðfaranótt
sunnudags urðu varir við jeppa
sem var fastur á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli. Þegar að var gáð kom
í ljós að á ferð voru ungir menn
sem ekki höfðu staðist að aka upp
troðna skíðabrekku. Á leiðinni
niður óku þeir út fyrir troðna
svæðið og sökk þá jeppinn á kaf.
Mennirnir höfðu verið í klukku-
tíma að reyna að losa jeppann þeg-
ar lögreglu bar að garði og aðstoð-
aði þá við verkið. Ætluðu mennirn-
ir að biðja forstöðumann skíða-
svæðisins afsökunar á að hafa
skemmt skíðabrekkuna. ■
ÓGILD KOSNING Önnur tilraunin
til að kjósa nýjan forseta Svart-
fjallalands fór út um þúfur vegna
lítillar kjörsóknar. Kjörsókn var
47,1% en þarf að vera 50% til að
kosningarnar séu teknar gildar.
Áhugaleysi almennings og snið-
ganga stjórnarandstöðunnar réði
mestu um kjörsókn.
NÝTT DAGBLAÐ Andstæðingar
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu og helsta fjölmiðla-
kóngs landsins, hefja útgáfu nýs
dagblaðs í vikunni. Blaðið, sem
heitir Europa, verður 12 til 16
blaðsíður að stærð og dreift í
80.000 eintökum til að byrja með.
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
LÖGREGLUFRÉTTIR
EVRÓPA