Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 10
10 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ASÍA
Það er komin upp undarlegstaða í efnahagsmálum Ís-
lendinga. Krónan sem kolféll
fyrir einu og hálfu
ári er nú orðin
styrkari en hún
hefur áður verið
og allt bendir til að
hún muni enn
styrkjast á næstu
mánuðum og misserum. Fram
undan eru framkvæmdir við ál-
ver og virkjun eftir um tvö ár og
um 100 milljarða innspýting í
hagkerfið. Verðbólgan er ekki til
lengur og verðhjöðnun komin í
staðinn. Fyrir utan stórfram-
kvæmdirnar er lítið að gerast í
atvinnulífinu; ef ekki stöðnun þá
samdráttur. Vegna yfirvofandi
framkvæmda hefur Seðlabank-
inn hins vegar haldið vöxtum
háum til að halda aftur af fram-
kvæmdum. Fyrirtæki í útflutn-
ings- og samkeppnisgreinum
kvarta skiljanlega yfir háu gengi
krónunnar. Allir kvarta yfir
háum vöxtum; fyrirtæki jafnt
sem heimili.
Þetta er líklega ný staða í ís-
lenskum efnahagsmálum. Á yfir-
borðinu virðist ekkert raska
stöðugleikanum; verðbólga er
engin og ekki vottar fyrir þenslu.
Hins vegar er öllum ljóst að
þetta ástand dregur mátt úr fyr-
irtækjum í útflutnings- og sam-
keppnisgreinum – þótt efnahags-
reikningur þeirra liti betur út,
eins og annarra fyrirtækja,
vegna lækkunar skulda í er-
lendri mynt. Að óbreyttri stefnu
stjórnvalda og Seðlabanka mun
þetta ástand vara fram að fyrir-
huguðum framkvæmdum af ótta
við þenslu og verðbólgu. Þessi
tími mun reyna mjög á þolrif
fyrirtækja og þau munu sum
hver ekki lifa af. Hugsanlega
munu fleiri störf tapast á leiðinni
en verða til í álverunum.
Það hefur fátt komið frá
stjórnvöldum eða Seðlabanka
sem bendir til breyttrar stefnu í
tilefni af breyttri stöðu. Það er
eins og hugtakaforðinn þar nái
aðeins yfir klassísk íslensk
vandamál, það er: verðbólga,
þensla og staða sjávarútvegsins.
Miðað við aðgerðir Seðlabankans
undanfarna daga virðist hann
ætla að kaupa dollara í stórum
stíl til að freista þess að veikja
gengi krónunnar til að bæta hag
sjávarútvegsins. Það er hins veg-
ar spurning hvort efnahags-
stjórnin þurfi ekki að ná yfir víð-
tækara svið, til dæmis með lækk-
un vaxta. Í engri þenslu og engri
verðbólgu er freistandi að bæta
hag fyrirtækja og heimila með
vaxtalækkun. Ef það er ekki
hægt í slíku andrúmi er það
aldrei hægt. ■
Aðstaða til vaxtalækkunar
skrifar um nýja stöðu í
efnahagsmálum.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Námskeiðið
verður haldið í
Háskólanum í
Reykjavík, 14.
og 15. febrúar,
kl. 18 - 22
Skráning og
upplýsingar í
síma 575 1551
ÚR MÍNUS Í PLÚS
Skýra samhengið milli
almennra viðhorfa til lífsins
og fjárhagslegrar stöðu
Leiðbeinandi:
Ingólfur H. Ingólfsson
félagsfræðingur og
rekstrarstjóri hjá
Tryggingastofnun ríkisins
Markmið námskeiðsins:
Námskeið um fjármál heimilisins
Auka þekkingu og
skilning á lánum og
vöxtum, sparnaði og
fjárfestingum
Kenna aðferðir til að
losna hratt við skuldir
og byggja upp sjóði
og eignir og ná
varanlega tökum á
fjármálunum
MANNSKÆÐ VORKOMA Vorkomu-
hátíð í Lahore í Pakistan endaði
með ósköpum. Einn maður féll til
bana af þaki og annar fékk raflost
þegar flugdreki sem hann stjórn-
aði lenti í rafmagnslínum. Rúm-
lega hundrað særðust, margir
sem urðu fyrir byssukúlum sem
var skotið upp í loftið í fagnaðar-
skyni.
FAGNA SAMAN Um hundrað norð-
ur-kóreskir stjórnmálamenn og
trúarleiðtogar koma til Suður-
Kóreu um næstu mánaðamót til
að taka þátt í hátíðahöldum til
minningar um uppreisn gegn yf-
irráðum Japana. Þetta er í fyrsta
skipti sem þjóðirnar minnast
tímamótanna sameiginlega.
Akureyri:
Árás á
félaga sam-
býliskonu
DÓMSMÁL Rúmlega fimmtugur
karlmaður á Akureyri hefur verið
dæmdur í fjögurra mánaða fang-
elsi fyrir að ryðjast inn á og ráðast
á sofandi mann sem var í tygjum
við fyrrum sambýliskonu hans.
Þrír mánuðir refsingarinnar eru
skilorðsbundnir.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ráðist tvisvar að fórnarlambi
sínu með eins mánaðar millibili
sumarið 2001 en var sýknaður af
fyrra tilvikinu. Sjálfur neitaði
hann sök og konan sem var á staðn-
um í fyrra skiptið sagðist ekkert
muna vegna ölvunar.
Fórnarlambið lést af ótengdum
orsökum áður en réttað var í mál-
inu. ■
MÓTMÆLI Í SUÐUR-KÓREU
Um 3.000 kristnir Suður-Kóreumenn
efndu til mótmæla gegn kjarnorkuáætlun
Norður-Kóreu um helgina.
Kóreudeilan:
Skorað á
Kínverja
SEOUL, AP Kínverjar ættu að taka
sér stærra hlutverk í deilunni um
kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu,
segir Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna.
Powell sagði enn fremur að
Bandaríkjamenn og Norður-Kóreu-
menn myndu á endanum eiga við-
ræður um deiluna en sagði rétt að
gera það í fjölþjóðlegu umhverfi
þar sem deilan snerti ekki bara
þjóðirnar tvær heldur líka Kín-
verja, Rússa, Japani, Suður-Kóreu-
menn og fleiri þjóðir. Norður-
Kóreumenn hafa farið fram á tví-
hliða viðræður við Bandaríkin. ■
Stjórnarandstaðan á þingi munaugljóslega byggja kosninga-
baráttu sína á kröfunni um vinstri
stjórn eftir kosningar í vor.
En jafn augljóslega hlýtur al-
menningur að staldra við og velta
fyrir sér hvað vinstri stjórn þýðir
fyrir stjórnun efnahagsmála og
áhrif hennar á hag heimilanna og
fyrirtækja í landinu.
Óumdeilt er að efnahagsmálum
hefur verið stýrt af þekkingu og
næmi í tíð ríkisstjórna Davíðs
Oddssonar. Almenningur hefur
ekki farið varhluta af því. Ráðstöf-
unartekjur heimilanna hafa aukist
um þriðjung á síðustu átta árum,
hagvöxtur hefur verið mikill og
verðbólgan verið á lágum nótum.
Skattalækkanir á fyrirtæki hafa
gefið svigrúm til launahækkana
starfsmanna. Frekari skattalækk-
anir á almenning eru rökrétt
næsta skref.
Saga vinstri stjórna á Íslandi er
á hinn bóginn saga vaxandi verð-
bólgu, aukinna ríkisútgjalda og
skattahækkana á fjölskyldur og
fyrirtæki í landinu.
Samkvæmt nýjustu fréttum er
verðbólgan í janúar 1,1% á árs-
grundvelli. Þegar horft er til síð-
ustu 12 mánaða er verðbólgan
1,4%. Verðbólguspá fyrir árið
2003 bendir til að verðbólgan
verði um 3% á árinu öllu. Þennan
stöðugleika vilja allir Íslendingar
standa vörð um. Hver vill taka
áhættuna að breyta efnahags-
stjórnuninni?
Íslendingar eru brenndir af
verðbólgunni, enda er verðbólgu-
draugurinn martröð heimila og
fyrirtækja í landinu. Það veit hver
sá sem upplifði verðbólgubálið á
níunda áratugnum.
Í bókinni „Frá kreppu til við-
reisnar – Þættir um hagstjórn á Ís-
landi á árunum 1930-1960“, sem
kom út á síðasta ári í ritstjórn
Jónasar H. Haralz, ritar Þórunn
Klemensdóttir grein um „Pólitísk-
ar hagsveiflur á Íslandi 1945-
1998“. Þar greinir hún m.a. pólitísk
áhrif hægri stjórna annars vegar
og vinstri stjórna hins vegar á
helstu kennitölur efnahagsstjórn-
unar hér á landi. Samkvæmt skil-
greiningu hennar eru hægri
stjórnir þær sem Sjálfstæðisflokk-
urinn á aðild að. Aðrar teljast vera
vinstri stjórnir.
Í grein Þórunnar kemur m.a.
fram að á umræddu árabili er
verðbólga umtalsvert hærri í tíð
vinstri stjórna eða 24,5% að meðal-
tali í samanburði við 15,1% þegar
hægri stjórnir eru við völd. Frá
1998 hefur þetta meðaltal lækkað
enn. Þá er greinilegur munur á út-
gjaldaaukningu ríkisins eftir
hvernig stjórn er við völd eða
11,2% að meðaltali á ári hverju í
tíð vinstri stjórna til samanburðar
við 3,3% útgjaldaaukningu á ári í
tíð hægri stjórna.
Að sömu niðurstöðu kemst
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði, í bók
sinni „Úr digrum sjóði – fjárlaga-
gerð á Íslandi“ sem gefin var út
1999. Þar segir hann m.a. „að
hægri stjórnir séu aðhaldssamari í
fjármálum ríkisins en aðrar og að
vinstri stjórnir eyði meiru“. Sér-
staklega er bent á að útgjöld dróg-
ust saman þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn var við stjórn, en þau jukust
þegar Alþýðubandalagið var við
stjórn. Fylgismenn Alþýðubanda-
lagsins sáluga eru nú klofnir í tvo
flokka, Samfylkinguna og Vinstri
græna.
Framangreindir sérfræðingar í
hagfræði og stjórnmálafræði hafa
með athugunum sínum á tengslum
stjórnarmunsturs annars vegar og
verðbólgu og útgjaldaaukningar
ríkisins hins vegar komist að álíka
niðurstöðu: Hægri stjórnir eru
hæfari en vinstri stjórnir í stjórn-
un efnahagsmála.
Breytinga er vart að vænta í
þessum efnum í framtíðinni þegar
fjármálastjórnun forsætisráð-
herraefnis Samfylkingarinnar í
Reykjavíkurborg er höfð til hlið-
sjónar, nema síður sé.
Stöðugleiki í efnahagsmálum
skiptir heimilin og fyrirtækin í
landinu miklu máli. Vill almenn-
ingur í landinu kalla yfir sig
vinstri stjórn eftir næstu alþingis-
kosningar með tilheyrandi aukinni
verðbólgu, skattahækkunum og
versnandi hag? Ég held ekki! ■
þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík skrifar
um efnhagsmál.
ÁSTA
MÖLLER
Um daginn
og veginn
Ávísun á verðbólgu
og hærri skatta
RAFTÆKJAVERSLUNIN SUÐURVERI
STÓRÚTSALA
á ljósum og lömpum.
Mikill afsláttur.
– Leikur í ljósum –
Stigahlíð 45, 105 Reykjavík. Sími 553-7637, fax 568-9456
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
20-50%
afsláttur
Fyrstir koma,
fyrstir fá
Allt á að seljast
Opið sunnudag frá 13 til 17
Allir kvarta yfir
háum vöxtum;
fyrirtæki jafnt
sem heimili.