Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 12
12 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGURÍSHOKKÍ
HART BARIST
Claude Lemieux, leikmaður Dallas Stars,
fékk að finna fyrir glerinu í leik gegn Los
Angeles Kings um helgina.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.00 Sýn
Sportið með Olís
18.30 Sýn
Saga HM
(1954 -Sviss - Þýsku risarnir)
19.30 Vestmannaeyjar
Handbolti kvenna (ÍBV - FH)
20.00 Seltjarnarnes
Handbolti kvenna
(Grótta/KR - Fylkir/ÍR)
22.30 Sýn
Sportið með Olís
00.30 Sýn
Trans World Sport
(Íþróttir um allan heim)
FÓTBOLTI David Beckham, fyrirliði
Englands í knattspyrnu, mun taka
nýliðann Wayne Rooney, hjá Ev-
erton, undir verndarvæng sinn
þegar hann verður yngsti leik-
maður í sögu Englands til að spila
A-landsleik.
Rooney, sem er 17 ára og 112
daga gamall, hefur verið valinn í
landsliðshóp Englands sem mætir
Áströlum á Upton Park á miðviku-
dag.
Sven Göran Eriksson, þjálfari
enska landsliðsins, hefur farið
þess á leit við Beckham að hann
hjálpi Rooney að vinna á allri
þeirri athygli sem fylgir lands-
liðssætinu.
„Ég þarf ekki einu sinni að
biðja Beckham um það, hann ger-
ir það bara,“ sagði Eriksson um
fyrirliðann. „Í hvert skipti sem
nýliðar koma í hópinn tekur hann
þá undir sinn verndarvæng. Hann
er mjög góður fyrirliði.“
David Moyes, knattspyrnu-
stjóri Everton, segist hafa fulla
trú á Rooney en biður fólk um að
gera raunhæfar kröfur til hans.
„Hann er ennþá óþroskaður
unglingur og þjóðin má ekki gera
of miklar kröfur til hans,“ sagði
Moyes. „Hann á samt eftir að
standa sig frábærlega þegar hann
fær sitt tækifæri á vellinum.“ ■
Wayne Rooney:
Undir verndar-
væng Beckham
WAYNE ROONEY
Er talinn vera efnilegasti leikmaður Eng-
lands. Hann hefur verið valinn í landsliðs-
hópinn fyrir leik gegn Áströlum á morgun.
Jimmy Floyd
Hasselbaink:
Veðmál
ekkert
vandamál
FÓTBOLTI Jimmy Floyd Hasselbaink,
leikmaður Chelsea, segir að sögu-
sagnir um veðmál knattspyrnu-
manna hafi verið blásnar of mikið
upp.
Hann segist hafa rétt á því að
eyða peningum sínum eins og hann
vilji svo lengi sem fjárhættuspil
leiði ekki til peningavandamála.
„Læknar, lögfræðingar og útgef-
endur dagblaða fara í spilavíti.
Hvers vegna mega knattspyrnu-
menn það ekki líka?“ ■
KÖRFUBOLTI Vesturdeildin bar sig-
urorð af Austurdeildinni í hinum
árlega stjörnuleik NBA-deildar-
innar í körfubolta sem háður var
aðfaranótt mánudags, með 155
stigum gegn 145 eftir tvífram-
lengdan leik.
Leikjarins verður vafalaust
minnst sem síðasta stjörnuleiks
Michael Jordan, leikmanns Wash-
ington Wizards. Jordan var í byrj-
unarliði Austurdeildarinnar í stað
Vince Carter, leikmanns Toronto
Raptors, sem ákvað að gefa sæti
sitt í byrjunarliðinu eftir til Jordan
þar sem um síðasta leik hans var
að ræða. Jordan skoraði 20 stig í
leiknum þrátt fyrir að hafa byrjað
afar illa og ekki hitt úr sjö fyrstu
skotunum sínum í leiknum. Hann
setti jafnframt nýtt met með því
að komast fram úr Kareem Abdul-
Jabbar, fyrrum leikmanni L.A.
Lakers, í flestum stigum skoruð-
um í sögu stjörnuleiksins.
„Ég skil leikinn eftir í góðum
höndum,“ sagði Jordan. „Það eru
svo margar ungar stjörnur á upp-
leið í dag. Ég hef skilið eftir mig
hluti til leikmanna stjörnuleiksins
og allra hinna í deildinni sem Dr. J
[Julius Erving] og frábærir leik-
menn eins og Magic Johnson og
Larry Bird skildu eftir fyrir mig.
Takk fyrir stuðninginn. Núna get
ég farið heim og skilið sáttur við
körfuboltaíþróttina.“
Kevin Garnett, leikmaður
Minnesota Timberwolves, sem lék
sinn sjötta stjörnuleik, skoraði 37
stig í leiknum fyrir Vesturdeildina
og var kjörinn maður leiksins.
Þetta var hæsta stigaskor leik-
manns í stjörnuleik síðan Michael
Jordan skoraði 40 stig á fyrrum
heimavelli sínum í Chicago árið
1988. ■
Jordan kvaddi stjörnu-
leikinn með meti
Stjörnuleikur NBA-deildarinnar var háður í fyrrinótt. Michael
Jordan lék 14. og síðasta stjörnuleik sinn. Kevin Garnett, leikmaður
Timberwolves, stal senunni og var valinn maður leiksins.
JORDAN
Michael Jordan leggur boltann í körfuna í stjörnuleiknum. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki úr
Dallas Mavericks og Kevin Garnett, maður leiksins, koma engum vörnum við. Jason Kidd
úr New Jersey Nets fylgist með í bakgrunni. Þetta var 14. og síðasti stjörnuleikur Jordan.
tilboð á hillum og brettarekkum
Yfir 40 ára þjónusta við íslensk fyrirtæki í lausnum á
lagerrýmum. Hillur og brettarekkar eru nú á sérstöku tilboði.
Sindri Reykjavík · Klettagarðar 12 · 104 Reykjavík · sími 575 0000 · fax 575 0010
Sindri Akureyri · Draupnisgötu 2 · 603 Akureyri · sími 462 2360
Sindri Hafnarfirði · Strandgötu 75 · 220 Hafnarfirði · sími 565 2965
kynntu þér
tilboðin!
STOJAKOVIC
Júgóslavinn Peja Stojakovic, leikmaður
Sacramento Kings, vann þriggja stiga skot-
keppnina einnig annað árið í röð. Bar
hann sigurorð í úrslitunum af Wesley Per-
son, leikmanni Memphis Grizzlies, en þeir
áttust einnig við í úrslitum í fyrra.
RICHARDSON
Jason Richardson, leikmaður Golden State
Warriors, vann troðslukeppnina, sem háð
var á laugardeginum, annað árið í röð.
Berti Vogts, landsliðsþjálfariSkotlands, hefur valið 23
leikmenn fyrir vináttuleik gegn
Tyrkjum þann 25. febrúar. Vogts
hefur kosið að velja unga og
efnilega leikmenn í hópinn,
marga hverja sem leika með
U-21 árs liði Skota, þar sem
meiðsli hrjá eldri leikmenn.
Meðal leikmanna í hópnum eru
Ian Murray og Gary O’Connor,
báðir úr Hibernian, og Kevin
McNaughton úr Aberdeen, sem
allir koma inn í hópinn vegna
meiðsla eldri og reyndari leik-
manna. Skotar leika með Íslend-
ingum í riðli í undankeppni
Evrópumótsins.
FÓTBOLTI