Fréttablaðið - 11.02.2003, Síða 13
13ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2003
KJÁLKABROTINN
Stöðva þurfti bardaga milli Bandaríkjam-
ansins Rob Calloway og Bretans Audley
Harrison á laugardaginn í fjórðu lotu eftir
að sá fyrrnefndi kjálkabrotnaði.
FRJÁLSAR Frjálsíþróttaþjálfarinn
Charlie Francis segist skilja af
hverju spretthlaupararnir og
kærustuparið Tim Montgomery
og Marion Jones sögðu honum
upp starfi. Hann segist þó aldrei
hafa komið nálægt ólöglegri
lyfjagjöf.
Montgomery og Jones æfðu
undir stjórn Francis nokkurn
tíma en ákváðu að hætta fyrir
helgi í kjölfar mikillar gagnrýni í
frjálsíþróttaheiminum.
Francis var dæmdur í ævi-
langt bann frá þjálfun efir að
kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson féll á lyfjaprófi eftir sig-
ur í 100 metra hlaupi á Ólympíu-
leikunum í Seoul árið 1988.
„Ég hef verið þjálfari í 15 ár
og aldrei komið nálægt ólögleg-
um lyfjum,“ sagði Francis í við-
tali við breska ríkisútvarpið,
BBC. Hann sagðist aldrei hafa
rætt lyfjagjöf við Montgomery
og Jones en skilur af hverju þau
ákváðu að hætta.
„Hvað gátu þau gert?“ spyr
Francis. „Álagið á þau var orðið
of mikið. Þau héldu þetta út eins
lengi og þau gátu.“
Francis segist alfarið vera á
móti ólöglegri lyfjagjöf en seg-
ist lítið geta gert til að koma í
veg fyrir umfjöllun um málið.
„Ég get aðeins unnið í því sem
snýr að mér. Það er í höndum
íþróttayfirvalda að útkljá svona
mál og koma í veg fyrir misskiln-
ing.“ ■
Francis skilur uppsögnina:
Álagið var
of mikið
KÆRUSTUPARIÐ
Sagði Charlie Francis upp störfum fyrir helgi. Hann var dæmdur í ævilangt bann frá
þjálfun eftir að Ben Johnson féll á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988.
FÓTBOLTI Sænski framherjinn Hen-
rik Larsson, leikmaður Celtic, var
fluttur á spítala á sunnudag þar
sem hann gekkst undir aðgerð eft-
ir að hann kjálkabrotnaði í sigur-
leik gegn Livingston.
Larsson lenti í samstuði við
varnarmanninn Gustave Bahoken
og var borinn af velli alblóðugur.
Hann var fluttur á spítala í
Glasgow þar sem hann gekkst
undir aðgerð.
Þetta er mikið áfall fyrir Celtic
þar sem Svíinn er langmarka-
hæstur í Skotlandi, hefur skorað
26 mörk. Talið er að hann verði
frá keppni í um sex vikur.
„Við vitum ekki hve alvarlegt
þetta er en ég vona að hann nái að
klára tímabilið með okkur,“ sagði
Martin O’Neill, knattspyrnustjóri
Celtic.
Celtic vann Livingston með
tveimur mörkum gegn einu. ■
Henrik Larsson:
Kjálka-
brotnaði
í sigurleik
HENRIK LARSSON
Larsson, til hægri, sést hér í leik gegn
Dundee United. Larsson verður frá keppni
í sex vikur hið minnsta.
FÓTBOLTI „Ég ákvað að kíkja á að-
stæður hér og verð í eina viku. Það
var ekkert annað eins og staðan er
hjá mér,“ segir Arnar Gunnlaugs-
son knattspyrnumaður, sem stadd-
ur er í borginni Pusan í Suður-
Kóreu til að skoða aðstæður hjá
samnefndu liði. Pusan er næst-
stærsta borg Suður-Kóreu. Liðið
sem Arnar æfir með er atvinnu-
mannalið og leikur í efstu deild.
Arnar samdi við skoska úrvals-
deildarliðið Dundee United um mitt
síðasta ár. Hann fékk þó fá sem
engin tækifæri með liðinu og sagði
upp samningnum við það fyrir
þremur vikum.
„Mér líst ágætlega á aðstæður
hér í Pusan en er bara búinn að fara
á þrjár æfingar,“ segir Arnar. Hann
segir fótboltann í Suður-Kóreu tals-
vert öðruvísi en hann er vanur.
Leikurinn sé miklu hægari en leik-
menn teknískir og snöggir.
Leikmannamarkaðurinn í Evr-
ópu lokaði um síðustu mánaðarmót.
Samkvæmt nýrri reglugerð er Arn-
ari óheimilt að semja við nýtt lið
fyrr en markaðurinn opnar á ný í
maí.
„Með þessum nýju reglum er
mér óheimilt að spila með öðru liði
en Dundee og ég hef engan áhuga á
því,“ segir Arnar og bætir við að
hann sé óviss um hvort hann setjist
að í Suður-Kóreu.
Arnar hefur á síðustu dögum
verið orðaður við Íslandsmeistara
KR. Bjarki bróðir hans hefur æft
með Vesturbæjarliðinu að undan-
förnu og leikur væntanlega með því
í sumar.
„Ég hef ekki rætt við KR-inga
enda eru aðeins þrjár vikur síðan
ég hætti hjá Dundee. Það er því allt
óákveðið með framtíðina.“
kristjan@frettabladid.is
Framtíðin
er óráðin
Arnar Gunnlaugsson knattspyrnumaður
skoðar aðstæður í Suður-Kóreu. Segir framtíð-
ina óráðna. Getur ekki samið fyrr en í maí.
ARNAR GUNNLAUGSSON
Er staddur í Suður-Kóreu til að skoða að-
stæður hjá úrvalsdeildarliðinu Pusan. Var
áður á mála hjá Dundee, Stoke, Leicester,
Bolton, Feyenoord og ÍA.