Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 15
vikri og muldu gleri, Mike Bidlo sýnir
eftirmyndir af frægustu málverkum 20.
aldarinnar og Claude Rutault sýnir
„málverk sem eru í sama lit og veggur
sýningarsalarins“.
Agatha Kristjánsdóttir sýnir ellefu olíu-
málverk í kaffistofunni Lóuhreiðri að
Laugavegi 59. Málverkin á sýningunni
eru flest ný. Sýningin stendur út febrúar.
Sýning á verkum Ólafs Más Guð-
mundssonar er í sýningarsal Ingustofu
á Sólheimum í Grímsnesi. Sýningin
verður opin fram í maí, virka daga frá kl.
9.00-17.00, um helgar frá kl. 14.00-
18.00. Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Mannakyn og meiri fræði er yfirskrift
sýningar á myndlýsingum í gömlum ís-
lenskum handritum, sem nú stendur yfir
í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Sýningin stendur til 9. mars.
Um síðustu helgi hófst í Listasafni
Borgarness sýning á málverkum eftir
Hubert Dobrzaniecki. Þar sýnir lista-
maðurinn olíumálverk og grafík frá ár-
unum 1999-2002. Sýningin er opin frá
13-18 alla virka daga og til kl. 20 á
þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.
Sýningin stendur til 26. febrúar.
Ingimar Waage sýnir 25 landslagsmál-
verk í Galleríinu Skugga, Hverfisgötu
29.
Heimildir nefnist sýning Hafdísar
Helgadóttur í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin er á vegum Kvennasögusafns. Á
fjórðu hæð er spjaldskrá með sjálfs-
myndum listamannsins frá 1963-1998,
en í sýningarkassa á 2. hæð eru blöð
með myndum af sömu verkum.
Smákorn 2003 nefnist sýning á smá-
verkum 36 listamanna í Baksalnum í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Þetta
er í þriðja skipti sem Gallerí Fold efnir til
smáverkasýningar. Eina reglan um gerð
verka er að innanmál ramma sé ekki
meira en 24x30 sentimetrar.
María Kristín Steinsson sýnir olíumál-
verk í Café Cozy, Austurstræti. Sýningin
er opin á opnunartíma Café Cozy.
Margrét Oddný Leóopoldsdóttir sýnir
„Storesarnir eru að hverfa“ í gluggum
sínum í Heima er best, Vatnsstíg 9. Sýn-
ingin stendur til 26. febrúar.
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau
Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Halls-
son og Jessica Jackson Hutchins verk
sín.
Nú stendur yfir samsýning 7 málara í
Húsi málaranna, Eiðistorgi. Allir þessir
málarar eru löngu þjóðkunnir fyrir verk
sín og einkennir fjölbreytni sýninguna.
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru:
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Ein-
ar Þorláksson, Guðmundur Ármann,
Kjartan Guðjónsson, Jóhanna Bogadóttir
og Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur
til 2. mars.
Haraldur Jónsson sýnir Stjörnuhverfi og
Svarthol fyrir heimili í galleríinu i8 við
Klapparstíg. Sýningin er opin fimmtu-
daga og föstudaga kl. 11-18, laugardaga
kl. 13-17 og eftir samkomulagi.
Jón Sæmundur er með myndbandsinn-
setningu í rýminu undir stiganum í gall-
eríinu i8 við Klapparstíg. Sýningin er
opin fimmtudaga og föstudaga kl. 11-
18, laugardaga kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi.
Hugarleiftur er yfirskrift á samvinnu-
verkefni bandarísku myndlistarkonunnar
Diane Neumaier og gríska rithöfundar-
ins Christos Chrissopoulos, sem nú er
sýnt í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningin er afrakstur Íslandsferðar þeirra
sumarið 2000.
Hitler og hommarnir nefnist sýning
þeirra David McDermott og Peter Mc-
Gough í Listasafni Akureyrar. Sýning
þeirra fjallar um útrýmingu samkyn-
hneigðra á nasistatímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Lista-
safni Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir
Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda ára-
tugnum.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs-
efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir
fanga sem teknir hafa verið af lífi í
Bandaríkjunum.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið „then ...hluti 4 -
minni forma“. Sýningin stendur til 2.
mars.
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú-
ar.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir
sex ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna
kallar hann Blátt og rautt. Hún stendur
til 15. febrúar og er opin á opnunartíma
kaffihússins.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd-
um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar-
arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að-
hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem
fólst í því að myndlist og iðnhönnun
ættu að sameinast í byggingarlistinni.
Hallgrímur Helgason sýnir í austursal
Gerðarsafns í Kópavogi nokkur málverk
af Grim, teiknimyndapersónunni með
tennurnar stóru. Myndirnar eru unnar
með nýjustu tölvutækni. Safnið er opið
11-17 alla daga nema mánudaga.
FLYING/DYING er heiti sýningar
Bjargeyjar Ólafsdóttur sýnir í vestursal
Gerðarsafns í Kópavogi. Á sýningunni
eru ljósmyndir og vídeóverk, sem meðal
annars fjalla um bílslys sem listakonan
lenti sjálf í og komst nálægt því að
deyja. Safnið er opið 11-17 alla daga
nema mánudaga.
Húbert Nói sýnir á neðri hæð Gerðar-
safns í Kópavogi. Sýningin, sem nefnist
HÉR OG HÉR / 37 m.y.s., er sérstaklega
unnin fyrir salinn og er innsetning á ol-
íumálverkum sem sýna annars vegar
hluta af salnum og hins vegar málverk
sem hanga þar á veggjum. Safnið er
opið 11-17 alla daga nema mánudaga.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk
unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn-
inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið,
tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms-
kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall-
grímskirkju og stendur til loka febrúar-
mánaðar.
Íslandsmynd í mótun - áfangar í
kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort
sem markað hafa helstu áfanga í leitinni
að réttri mynd landsins. Sýningin stend-
ur þangað til í ágúst.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Í Ásmundarsafni við Sigtún stendur yfir
sýningin Listin meðal fólksins, þar sem
listferill Ásmundar Sveinssonar er sett-
ur í samhengi við veruleika þess samfé-
lags sem hann bjó og starfaði í. Sýning-
in er opin alla daga klukkan 13-16. Hún
stendur til 20. maí.
ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2003
Opnum
klukkan
tólf
ALLTAF
betra
verðekkert
brudl-
E
R
A
N
L
a
n
d
lis
t
Tilboðið gildir í dag og á morgun, miðvikudag eða á meðan birgðir endast
Allar vörur í Bónus eru á besta fáanlegu verði
Ferskar
kjúklingalundir
Opið til hálf sjö í kvöld
Venjulegt verð 2195kr.
kr.
kg
Hádegistónleikar í Óperunni:
Einn og hálfur
sópran
TÓNLIST Þær Sesselja Kristjáns-
dóttir messósópran og Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran
syngja í hádeginu í dag í Ís-
lensku óperunni. Píanóleikari
með þeim er Iwona Ösp Jagla og
kynnir á tónleikunum verður
Davíð Ólafsson bassasöngvari.
„Við ætlum að bregða svolítið
á leik. Sviðsmyndin úr Macbeth
fer ekkert burt á milli sýninga,
og við ætlum að notfæra okkur
það,“ segir Sesselja.
„Við ákváðum að einblína á
dúetta sem þyldu að standa stak-
ir. Sumir dúettar þola það ekki.
Þarna verða tveir dúettar eftir
Mozart og einn eftir Rossini. Svo
verðum við með báta-, blóma- og
bréfadúetta. Bátadúettinn er úr
Ævintýrum Hoffmanns, Blóma-
dúettinn úr Lachme og Bréfa-
dúettinn úr Kátu konunum frá
Windsor.“
Svo ætla þær að enda á
tveimur dúettum úr annarri átt,
öðrum eftir Kurt Weill, hinum
eftir Irving Berlin. Sesselja seg-
ist hafa heillast af Weill þegar
hún bjó í Berlín 1996-2001.
Næstu hádegistónleikar í Óp-
erunni, sem verða 25. febrúar,
eru einmitt helgaðir hinum
þýska Kurt Weill. ■
SESSELJA KRISTJÁNSDÓTTIR MESSÓSÓPRAN
Syngur á hádegistónleikum í Íslensku óperunni í dag ásamt
Huldu Björk Garðarsdóttur sópran.