Fréttablaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 17
17ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6
8 MILE kl. 8 og 10.15 THE LORD OF THE RINGS b.i. 12 kl. 5.30, 9
JUWANNA MANN kl. 4 og 6 GULL PLÁNETTAN m/ísl. tali kl. 4 og 6
HARRY POTTER kl. 8Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 b.i.10.ára
Sýnd kl. 8 og 10
TRANSPORTER b.i. 14 kl. 6, 8 og 10
BANGER SISTERS kl. 6 , 8 og 10
Sýnd kl. 6.10, 8.30 og 10.40 bi. 12 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi 12
Vinir dvergsins Verne Troyer,sem leikur „Mini-Me“ í Austin
Powers-myndunum, hafa miklar
áhyggjur af honum þessa dagana.
Hann hefur barist við alkóhólisma
í mörg ár, verið þurr lengi, en er
nú fallinn. Hann hefur viðurkennt
að stormasamt samband hans við
kærustuna hafi valdið því að hann
sneri sér aftur að flöskunni.
Írski leikarinn Colin Farrell siturekki á skoðunum sínum. Nú
beinir hann spjótum sínum að IRA,
Írska lýðveldishernum. Hann segir
herinn hafa skaðað ímynd lands
síns og segir vinnuaðferðir hans
óréttlátar. Hann fordæmir þá fyrir
að drepa saklausa borgara í
hryðjuverkum og segir enga rétt-
lætingu vera til fyrir slíkum gjörð-
um.
Leikkonan Meg Ryan virðisthafa fundið ástina á ný. Sést
hefur til hennar og sjónvarpsleik-
arans William Keane, sem fer með
stórt hlutverk í spítalasápunni
„Chicago Hope“.
Þau hafa þekkst í
tíu ár og hafa ver-
ið par síðan fyrir
áramót. Fyrrum
eiginmaður Ryan,
Dennis Quaid, er
við það að gifta
sig á ný. Fyrrum
kærasti hennar,
Russell Crowe, er einnig á leiðinni
í það heilaga.
TÓNLIST
Ég fer ekki ofan af þeirri skoðunminni að Will Oldham, sem
kallar sig hér Bonnie ‘Prince’ Billy,
hafi fallegustu karlmannsrödd sem
ég hef á ævinni heyrt. Ólíkt því
sem gengur og gerist í tónlistar-
bransanum virðist Oldham gjör-
samlega óheillaður af rokkaralíf-
erni og boðar frekar gömlu góðu
gildin. Syngur meðal annars í loka-
laginu „Hard Life“ setninguna „It’s
a hard life, for a man with no wife“.
Hann virðist sáttur við tilveru sína,
fjölskyldulífið og rólegheitin á
sveitabænum.
Útsetningar á þessari þriðju
plötu sem Oldham gerir undir
nafninu Bonnie ‘Prince’ Billy eru
jafnvel berstrípaðari en áður. Hann
styðst ekki mikið við undirleik
hljómsveitar en fær þó aukahljóð-
færi í nokkrum laganna. Annars er
hann hér eins og hann kom Íslend-
ingum fyrir sjónir á seinni tónleik-
um hans hér á landi, einn alskeggj-
aður með guði og kassagítarnum.
Á fyrstu plötu Bonnie, „I See a
Darkness“, hljómaði Oldham eins
og maður plagaður af samvisku-
biti. Á annarri plötunni, „Ease on
Down the Road“, hljómaði hann
eins og maður sem var orðinn sátt-
ur við sjálfan sig. Hér hljómar
hann eins og maður í góðu jafn-
vægi sem er ástfanginn af tilveru
sinni.
Hér er ekki veikan punkt að
finna. Hreint út sagt yndisleg
plata.
Birgir Örn Steinarsson
BONNIE ‘PRINCE’ BILLY:
Master and Everyone
Nú er gaman
að lifa
Razzies-verðlaunahátíðin:
Madonna og Britney
með fjölda tilnefninga
KVIKMYNDIR Það hefur verið hefð
fyrir því í Hollywood í áraraðir,
daginn áður en tilnefningar til
Óskarsverðlauna eru gerðar opin-
berar, að tilnefna hverjir þóttu
standa sig verst á árinu. Tilnefn-
ingar til verðlaunanna, sem eru
kölluð „The Razzies“ eða „and-
Óskarsverðlaunin“, voru því gerð-
ar opinberar í gær þar sem Óskar-
stilnefningarnar verða birtar í
dag.
Poppstöllurnar Madonna og
Britney Spears fengu flestar til-
nefningar í ár. Frumraun Spears á
hvíta tjaldinu, „Crossroads“, fékk
átta tilnefningar á meðan mynd
Madonnu, „Swept Away“, fékk
sjö. Báðar voru tilnefndar í flokk-
unum „versta myndin“ og „versta
leikkona í aðalhlutverki“. James
Bond-lagið „Die Another Day“
fékk svo tilnefningu sem versta
lagið. Madonna fékk einnig til-
nefningu fyrir versta leik í auka-
hlutverki fyrir leik sinn í James
Bond-myndinni.
Annar kafli Stjörnustríða,
„Attack of the Clones“, fékk sjö
tilnefningar, þar á meðal sem
versta myndin, auk þess sem
George Lucas fékk tilnefningu
sem versti leikstjórinn.
Aðrar myndir sem fengu fjölda
tilnefninga voru „Adventures of
Pluto Nash“ með Eddie Murphy í
aðalhlutverki og „Pinocchio“ eftir
Roberto Benigni.
Þetta er í 23. sinn sem þessi
verðlaun eru veitt. Hátíðin verður
svo haldin daginn fyrir Ósk-
arsverðlaunin eða 22. mars.
Madonna var áður valin
„versta leikkona 20. aldarinnar“ á
fyrstu Razzies-hátíðinni á nýrri
öld. ■
THE RAZZIES
Madonna og Britney Spears þóttu greinilega standa sig illa í kvikmyndaheiminum á síð-
asta ári og fá því fjölda tilnefninga til Razzies-verðlaunanna. Saman keppa þær við Jenni-
fer Lopez, Angelinu Jolie og Winonu Ryder í flokknum „versta leikkonan í aðalhlutverki“.