Fréttablaðið - 11.02.2003, Qupperneq 24
Stríð og friður eru deilumál verald-ar nú sem fyrr. Hússein á gereyð-
ingarvopn og nú er um að gera að
æsa hann nógu mikið upp til að hann
noti þau. Hið unga stórveldi í vestri
blæs á ævaforna Evrópuþursinn.
Hver nennir að skoða söguna sem
sýnir að stríð skili litlu? Nei, til þess
er of mikið í húfi – olía, heiður og vin-
ir í Ísrael. Einangrun, einstefna og
einfeldni er mottóið í stjórnklefanum.
Farþegarnir næla sér í gluggasæti og
vona að við stjórnvölinn sé einhver
með skýra hugsun og gott hjartalag.
Þar sitja líka íslenskir guttar með
englasvip, blindaðir af mikilmennum
stórveldanna – sakleysingjar sem
aldrei hafa séð verri átök en stutt-
buxnaslag í drullupolli. Þeir hrópa
stóreygir á styrjöld sem þeir vilja fá
að fylgjast með í sjónvarpi.
GLÆPUR OG REFSING voru til
afgreiðslu hjá æðsta dómstólnum í
síðustu viku. Fyrrum þjónn almenn-
ings skal sitja meðal ótíndra og
sviptur frelsi. Rekum við hegningar-
þjónustu eða betrunarþjónustu? Er
meðtalin refsing sem menn taka út í
fjölmiðlum fyrir alþjóð? Sumum
finnst kannski að það svipi til þess
að lenda í gapastokki á fjölförnu
torgi mánuðum saman, á meðan öðr-
um þykir réttvísinni vart fullnægt.
MARGIR FORELDRAR önduðu
léttar þegar saksóknari í vestur-
heimi lýsti því yfir að ekki væri
ólöglegt að börn skriðu uppí. Stórt
barn í Hvergilandi bauð umheimin-
um í einfeldni sinni inn í tilbúinn
heim. Eitt og annað var þar öðruvísi
en gengur og gerist. Brenglaðast var
kannski „venjulega“ fólkið sem tap-
aði ráði og rænu, elti lánleysingjann
og kastaði sér að fótum hans. Sem
betur fer eru kríli um víða veröld
sem fá að skríða upp í til mömmu,
pabba eða einhverra annarra sem
veita þeim öryggi og skjól. Þeirra
vegna hefði verið sorglegt að setja
lög um smekklása á svefnherbergi.
Á MEÐAN lægðirnar standa í bið-
röðum við landsteinana leita frón-
verjar lækninga hjá göldróttum
predikurum sem lækna erfiðustu
sjúkdóma með nærverunni einni
saman. Þar er nú aðferð sem einhver
fór flatt á að beita fyrir um tvöþús-
und árum. Gömul spurning þvælist
fyrir. Hver er með viti og hver er
viti firrtur? ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 25 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 75%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Vitið og
firringin
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur