Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 4
4 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR VIÐSKIPTI KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Hefur lækkun grænmetisverðs aukið grænmetisneyslu þína? Spurning dagsins í dag: Áttu von á að atvinnuleysi minnki fljótlega? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 25% 42%Nei Veit ekki 33% ÞRIÐJUNGUR BORÐAR MEIRA Lækkandi verð á grænmeti hefur aukið neyslu þriðjungs þeirra sem skil- uðu atkvæði í kjörkassann. Já SUMARLEYFI „Ég beið mjög spenntur eftir því hvað myndi gerast en nú er ljóst að þetta er það sem koma skal,“ segir Helgi Jóhannsson, fyrrum forstjóri Samvinnuferða- Landsýnar og núverandi fram- kvæmdastjóri Sumarferða.is, þeg- ar vefur fyrirtækisins hefur verið opinn í eina viku með fáheyrðum árangri: „Heimsóknir á vefinn á þessari einu viku hafa verið 140 þúsund talsins og við höfum þegar selt helming þeirra flugsæta sem í boði eru, eða 2.000 af 4.000 sæt- um,“ segir Helgi. Sumarferðir.is bjóða upp á Spánarflug með Airbus-vél frá spánska flugfélaginu Spanair, sem er að hluta til í eigu SAS. Um borð verður full þjónusta með til- heyrandi bíósýn- ingum eins og tíðkast hjá stærri f l u g f é l ö g u m . Flugsæti til Spán- ar með Sumar- ferðum kostar frá 30 þúsund krónum og fyrir 50 þúsund er hægt að fá flug og gistingu á lúx- ushóteli. Helgi staðhæfir að fjöl- skylda geti sparað frá 60 þúsund krónum og allt upp í 140 þúsund krónur með því að bóka á vef Sumarferða: „Við erum einfald- lega komin í breytt umhverfi og fólk getur reiknað þetta út sjálft,“ segir hann. Aðeins tveir starfsmenn stýra starfseminni á skrifstofu Sumar- ferða og er Helgi annar þeirra. Önnur þjónusta, svo sem sölu- starfsemi, er unnin í samstarfi við sérhæfða aðila á því sviði og yfir- byggingin fyrir bragðið í lág- marki. Það sama gildir um tækja- og tölvubúnað því það eru við- skiptavinirnir sjálfir sem leggja hann til heima hjá sér: „Eftir þessar viðtökur er freist- andi að bjóða upp á nýja ákvörðun- arstaði með sama verklagi. Við hyggjumst kynna þá ef af verður innan tveggja vikna,“ segir Helgi Jóhannsson. ■ HELGI JÓHANNSSON Ótrúlegar viðtökur í nýju viðskipta- umhverfi. 140 þúsund heimsóknir á sumarferdir.is: Helmingur ferðanna seldist á viku UNDIR ÁÆTLUN Afkoma Opinna kerfa var undir áætlunum félags- ins. Hagnaður síðasta árs var tæpar 50 milljónir. Afkoma móð- urfélagsins var slakari en áætl- anir sögðu til um. Mestu munar um niðurfærslu hlutafjáreignar. Datapoint í Svíþjóð, sem er í eigu Opinna kerfa, gekk vel. LANDSBANKARESTIN SELD Ríkis- sjóður hefur ákveðið að selja 2,5 prósenta eignarhlut sinn í Lands- banka Íslands.Útboðsgengi verður birt þann 24. febrúar eftir lokun markaða og verður gengið ákveð- ið með hliðsjón af markaðsað- stæðum síðustu vikurnar fyrir út- boðið. Sölutímabilið verður frá 25. febrúar til 3. mars en getur orðið styttra ef allt hlutaféð selst fyrr. SÞ GAGNSLAUSAR? „Ef Samein- uðu þjóðirnar geta ekki fram- fylgt sínum eigin samþykktum, samþykktum sem hafa verið til staðar í 12 ár, segir það ýmislegt um gagnsemi þeirra þegar við horfum til framtíðar,“ sagði George W. Bush Bandaríkjafor- seti. Bandaríkjamenn og Bretar hyggjast leggja fram tillögu að samþykkt sem heimili beitingu vopnavalds gegn Írökum. ESB HEFUR HLUTVERK Evrópu- sambandinu ber að leitast eftir að tryggja frið í Írak, sagði George Papandreou, utanríkisráðherra Grikklands. Hann sagði samband- ið mundu hafa náið samráð við arabaríki og Bandaríkin um lausn deilunnar. AÐSTOÐ VIÐ TYRKI SAMÞYKKT Atlantshafsbandalagið samþykkti í gær formlega að flytja radar- flugvélar, Patriot-eldflaugar og varnarbúnað gegn efna- og sýkla- vopnum til Tyrklands. EKKERT SEM RÉTTLÆTIR STRÍÐ Rashid Ahmed, upplýsingaráð- herra Pakistans, segir vopnaeftir- litsmenn í Írak ekki hafa fundið neitt sem réttlæti stríð. Pakistan á sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, en Ahmed vildi ekki segja hvort Pakistanir myndu samþykkja innrás. DÓMSMÁL Liðlega fimmtugur sí- brotamaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela fartölvu og anórakk. Maðurinn, sem frægur varð af heimildarkvikmynd sem bar gælu- nafn hans, Lalli Johns, á að baki samfelldan sakaferil frá árinu 1969 og hefur hlotið 40 refsidóma. Tveir menn sem sáu Lalla koma frá íbúðarhúsi við Tjarnagötu seint um nótt í fyrrahaust stöðv- uðu för hans og tóku af honum þýf- ið. Sjálfur hafði Lalli sig á brott. Hann bar síðar að hann hefði fund- ið tölvuna og anórakkinn í tösku á tröppum hússins og viljað koma henni í réttar hendur. Þá hafi tveir menn komið aðvífandi. Lalli sagðist hafa verið á leið til vinar síns og komið við í húsi sem AA-samtökin hafa við Tjarnar- götu. Þar hafi fólk boðið honum í samkvæmi í Suðurgötu en hann orðið viðskila við fólkið. Á leiðinni hafi hann komið við í húsinu þar sem tölvan var. Þar hafi verið að skemmta sér margt þjóðþekktra manna sem hann neitaði þó að til- greina nánar. Samkvæmt fram- burði fjögurra vitna þótti hins veg- ar sannað að alls enginn mann- fögnuður hafi verið í húsinu um- rædda nótt. ■ LITLA-HRAUN Lalli Johns hefur nú fengið fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir þjófnað í september. Lalli Johns sem fer í steinninn fyrir fartölvuþjófnað: Boðið í partý á AA-fundi ERLENT BORGARMÁL Þórólfur Árnason, nýráðinn borgarstjóri í Reykja- vík, gagnrýnir fjármálastjórn Reykjavíkurborgar í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins harðlega í greinargerð sem lögð var fram í borgarráði vegna fyrirspurnar sjálfstæðismanna um fjármál borgarinnar. Í greinargerðinni bendir borg- arstjóri á ýmsa vankanta í fjár- málastjórn Sjálfstæðismanna á árunum 1990 til 1994. Þá stjórn- uðu þeir Davíð Oddsson, Markús Örn Antonsson og Árni Sigfússon borginni. Máli sínu til stuðnings vekur borgarstjóri athygli á að heildarskuldir borgarsjóðs hafi verið um 16,3 milljarðar króna árið 1994 þegar sjálfstæðismenn hafi farið frá völdum, en 16,4 milljarðar árið 2002. Hreinar skuldir borgarsjóðs hafi verið 11,5 milljarðar árið 1994 en 9,5 milljarðar árið 2002. Í umfjöllun sinni um fjárhags- stöðu borgarsjóðs milli áranna 1990 og 1994 styðst Þórólfur við úttekt Endurskoðunar Sig.Stef- ánssonar og Deloitte & Touche. Samkvæmt henni hafði peninga- leg staða borgarsjóðs, á verðlagi ársins 1994, versnað um tæplega 8,2 milljarða króna frá árslokum 1990 til 30. júní 1994. Í greinar- gerð borgarstjóra segir að versn- andi stöðu ríkissjóðs á þessu tímabili megi rekja til þess að kostnaður við rekstur og fram- kvæmdir hafi verið langt um- fram skatttekjur. Fé til fram- kvæmda hafi því verið ekkert nema lánsfé. Borgarstjóri segir í greinar- gerðinni að hreint veltufé hafi rýrnað um 2,8 milljarða króna á einu og hálfu ári í stjórnartíð sjálf- stæðismanna og verið neikvætt um 3,3 milljarða árið 1994. Borgar- sjóður hafi einkum komist hjá vandræðum vegna slæmrar veltu- fjárstöðu með því að taka lán hjá eigin fyrirtækjum. Frá árinu 1990 til ársloka 1993 hafi skuldir við fyrirtækin fjórfaldast og numið 1,5 milljörðum króna. Þá hafi lang- tímaskuldir aukist um 180%. trausti@frettabladid.is NÝI BORGARSTJÓRINN GAGNRÝNIR Í greinargerð Þórólfs Árnasonar segir að versnandi stöðu ríkissjóðs á árunum 1990 til 1994 megi rekja til þess að kostnaður við rekstur og framkvæmdir hafi verið langt um- fram skatttekjur. Fjármálastjórn sjálf- stæðismanna gagnrýnd Nýráðinn borgarstjóri gagnrýnir fjármálastjórn Reykjavíkurborgar í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Á árunum 1990 til 1994 hafi peningaleg staða borgarsjóðs versnað um 8,2 milljarða. BORGARSTJÓRAR REYKJAVÍKUR Davíð Oddsson 27. maí 1982 – 16. júlí 1991. Markús Örn Antonsson 16. júlí 1991 – 17. mars 1994. Árni Sigfússon 17. mars 1994 – 13. júní 1994. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 13. júní 1994 – 1. febrúar 2003 Þórólfur Árnason 1. febrúar 2003 – VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að R-listinn geti síður en svo eignað Sjálf- stæðisflokknum allar þær skuldir sem hafi orðið til milli áranna 1990 og 1994. Borgarfulltrúi svarar borgarstjóra: Ómarktæk gagnrýni BORGARMÁL Ótækt er að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn fyrir laka fjármálastjórn á árunum 1990 til 1994, að sögn Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Vilhjálmur Þ., sem einnig sat í borgarstjórn á þessum árum, seg- ir að R-listinn hafi tekið við völd- um um mitt ár 1994 og eytt mikl- um fjármunum á seinni hluta árs- ins. R-listinn geti því síður en svo eignað Sjálfstæðisflokknum allar þær skuldir sem hafi orðið til á þessu tímabili. „Það var farið mjög rækilega yfir þetta á sínum tíma og það urðu mjög miklar deilur,“ segir Vilhjálmur Þ. „Þetta voru erfið ár. Við fórum í mjög miklar aðgerðir til þess að verjast atvinnuleysinu á árunum 1993 og 1994 og settum í það verulega fjármuni, enda hafði það mikið að segja. Við gerð- um örugglega miklu meira en þeir eru að gera núna.“ Vilhjálmur Þ. segir að sjálf- stæðismenn hyggist fara yfir svar borgarstjóra við fyrirspurn þeirra um fjármál borgarinnar á borgarstjórnarfundi í dag. ■ Gephardt í framboð: Réðist að Bush ST. LOUIS, AP Dick Gephardt gagn- rýndi stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta harkalega um leið og hann tilkynnti framboð sitt í forkosningum demókrata. Gephardt sagði að stefna Bush hefði skilið Bandaríkjamenn eftir einangraða á alþjóðavettvangi og illa stadda heima fyrir. Fyrsta loforð Gephardt var að fella skattalækkanir Bush úr gildi og verja fénu til að tryggja öllum vinnandi mönnum heilbrigðis- tryggingu. Gephardt á 26 ára þing- feril að baki og leiddi demókrata í fulltrúadeildinni í síðustu fjórum kosningum. ■ TILKYNNT UM FRAMBOÐ Dick Gephardt sagði Bandaríkjamenn þurfa á reynslumiklum manni að halda. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G Ó

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.