Fréttablaðið - 20.02.2003, Side 9

Fréttablaðið - 20.02.2003, Side 9
9FIMMTUDAGUR 20. febrúar 2003 Samkeppnisráð ákvarðar vegna kvörtunar Jórvíkur: Ríkisstyrkir raska ekki samkeppni SAMKEPPNISMÁL Ríkisstyrkir til Flugfélags Íslands og Íslands- flugs og samvinna flugfélaganna raska ekki samkeppni að mati samkeppnisráðs. Flugfélagið Jórvík sendi Sam- keppnisstofnun kvörtun vegna málsins í byrjun janúar. Telur fé- lagið samkeppnisstöðu sína óviðu- nandi þar sem hin félögin þiggi ríkisstyrki í ýmsu formi og hafi með sér samvinnu, sérstaklega á leiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Í úrskurði samkeppnisráðs segir að flugfélögin hafi fengið styrki að undangengnu útboði. Enn fremur segir að samstarfs- samningar þeirra, sem feli annars vegar í sér umboð Flugfélags Ís- lands til að selja farþega- og fraktflutninga í áætlunarflugi Ís- landsflugs innanlands og hins vegar flugafgreiðslu í Reykjavík og Vestmannaeyjum, raski ekki samkeppni. Samkeppnisráð telur því ekki ástæðu „til að hafast frekar að vegna máls þessa“. ■ Kárahnjúkar: Maður slasaðist í grjóthruni SLYS Maður slasaðist við vinnu að jarðgangagerð við Kárahnjúka í fyrrinótt. Grjót hrundi úr fjög- urra metra hæð á manninn, sem rifbeinsbrotnaði og marðist. Í fyrstu var talið að hann væri meira slasaður og var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað austur en snúið við þegar annað kom á daginn. Maðurinn var fluttur með bíl á Heilbrigðis- stofnun Austurlands á Egilsstöð- um þar sem gert var að sárum hans. ■ HLÍÐASKÓLI Kjósendur í Hlíðum sunnan Miklubrautar, sem hingað til hafa kosið að Kjarvals- stöðum, kjósa í Hlíðaskóla í vor. Nýr kjörstaður: Kosið í Hlíðaskóla KOSNINGAR 2003 Borgarráð leggur til að kjörstaðir í alþingiskosning- unum í vor verði þeir sömu og voru í borgarstjórnarkosningun- um í fyrra, jafnframt því að nýr kjörstaður verði í Hlíðaskóla, en kjósendur í Hlíðum sunnan Miklu- brautar sóttu áður kjörstað á Kjarvalsstöðum. Þá munu íbúar í Grafarholti sækja kjörstað í Íþróttamiðstöðina í Grafarvogi í stað Árbæjarskóla áður. Alls er gert ráð fyrir 97 kjördeildum í Reykjavíkurkjördæmunum á 12 kjörstöðum í vor. Í Reykjavíkurkjördæmi suður er lagt til að kjörstaðir verði í Hagaskóla, Hlíðaskóla, Breiða- gerðisskóla, Ölduselsskóla, Íþróttamiðstöðinni við Austur- berg og Árbæjarskóla. Alls er gert ráð fyrir 47 kjördeildum í kjördæminu. Í Reykjavíkurkjördæmi norð- ur verði kjörstaðir í Ráðhúsinu, að Kjarvalsstöðum, í Laugardalshöll, Íþróttamiðstöð Grafarvogs, Borgaskóla og ein kjördeild á Kjalarnesi. Alls verða 50 kjör- deildir í kjördæminu. ■ Flugvélarflak finnst: Fórst fyrir 30 árum ECUADOR, AP Fjallgöngumenn sem voru á göngu í hæsta fjalli Ekvador í Suður-Ameríku fundu leifar af flugvél sem fórst við fjallið fyrir hartnær þremur ára- tugum. Leitarmenn voru sendir á staðinn og fundu þeir einnig jarð- neskar leifar sem taldar eru til- heyra farþegum vélarinnar. Sérfræðingar sem rannsakað hafa flakið staðfesta að um sé að ræða flugvél sem fórst árið 1976 með 59 manns innanborðs. Ljóst er að eitthvað af jarðneskum leif- um farþeganna liggur undir jök- ulís og ofan í sprungum og verð- ur það að vera þar um ókomna tíð. ■ FLUGFÉLAGIÐ JÓRVÍK Í úrskurði samkeppnisráðs segir að Flugfé- lag Íslands og Íslandsflug hafi fengið styrki að undangengnu útboði. EKKI STRÍÐ Í KÓREU Roh Moo- hyun, sem tekur við embætti for- seta Suður-Kóreu í næstu viku, segist andvígur því að hervaldi verði beitt til að knýja Norður- Kóreumenn til að virða skuld- bindingar um að koma sér ekki upp kjarnorkuvopnum. ASÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.