Fréttablaðið - 20.02.2003, Side 18
18 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGURSKÍÐASTÖKK
SKÍÐASTÖKK UNDIRBÚIÐ
Bandaríski ljósmyndarinn David Burnett
fékk þriðju verðlaun í flokki íþróttamynda
á World Press Photo-sýningunni. Myndin
er frá Ólympíuleikunum í Salt Lake City
þar sem skíðastökkvarar sjást undirbúa sig
fyrir stökk.
M A G N A
LÝSI hf www.lysi.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
8
6
2
3
/s
ia
.i
s
Þrjár tegundir áhrifaríkra
mjólkursýrugerla frá Institut
Rosell, sem eru hluti af
náttúrulegri þarmaflóru
líkamans. Inntaka mjólkur-
sýrugerla er árangursrík leið
til að viðhalda jafnvægi og
reglu á meltingu.
Í hverju hylki eru 5 billjónir
lifandi gerla.
MELTINGAR-
BÓT FÓTBOLTI Átta leikir verða háðir í
16 liða úrslitum Evrópukeppni fé-
lagsliða í kvöld.
Liverpool sækir franska liðið
Auxerre heim í fyrri leik liðanna.
Liðin mættust síðast í Evrópu-
keppni félagsliða árið 1991. Þá
vann Liverpool 3:2 samanlagt eft-
ir að hafa tapað fyrri leiknum 2:0.
Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóra Liverpool, hlakkar til að
ferðast til heimalands síns og
mæta þar frönsku liði. „Ég finn til
mikils stolts því þetta er í fyrsta
sinn sem ég kem til heimalandsins
til að stjórna Liverpool í leik. Það
er alltaf sérstakt að spila í heima-
landinu og þessi leikur er enn
merkilegri vegna þess að ég ber
mikla virðingu fyrir knattspyrnu-
stjóra liðsins [Frakkanum Guy
Roux].
Houllier hefur hvatt framherj-
ann Michael Owen til að slá
markamet Ian Rush í Evrópu-
keppninni, sem er 20 mörk. Owen
er aðeins einu marki frá metinu.
„Það sýnir bara hversu mikill
gæðaleikmaður hann er að vera
nálægt þessu meti. Ég er ánægður
með frammistöðu hans á leiktíð-
inni því hann hefur bæði búið til
færi fyrir aðra og skorað mörk.“
Á meðal annarra leikja kvölds-
ins er viðureign Celtic og Stutt-
gart. Auk þess taka Eyjólfur
Sverrisson og félagar í Herthu
Berlín á móti portúgalska liðinu
Boavista. ■
Evrópukeppni félagsliða í kvöld:
Houllier á
heimaslóðum
HOULLIER
Gerard Houllier verður á heimaslóðum
í kvöld. Liverpool hefur þrívegis unnið
Evrópukeppni félagsliða.
Shane Mosley:
Berst ekki
við De la
Hoya
BOX Shane Mosley mun ekki
mæta Oscar de la Hoya í hringn-
um í september eins og áætlað
var.
Bob Arum, skipuleggjandi
bardagans, hafði gert samning
við umboðsmann Mosley um að
boxarinn fengi 4,25 milljónir
dollara í sinn hlut. Sugar Shane,
eins og hann er oft kallaður, átti
að gefa svar fyrir mánudaginn en
þar sem það kom ekki var boðið
dregið til baka. Talið er að Shane
hafi viljað fá meira fyrir sinn
snúð. De la Hoya átti að fá 12
milljónir dollara í sinn hlut.
„Hann gaf mér ekki svar svo
við erum hættir við bardagann,“
sagði Arum. „Shane ofmetur
hæfileika og vinsældir sínar. Við
munum finna einhvern annan til
að berjast við de la Hoya.“
Arum segir möguleika á því að
de la Hoya mæti Fernando
Vargas á ný. ■
DE LA HOYA
Oscar de la Hoya mun ekki mæta Shane
Mosley í hringnum eins og áætla var.
HNEFALEIKAR Svo virðist sem bar-
dagi hnefaleikakappans Mike
Tyson og Clifford Etienne muni
fara fram þrátt fyrir allt.
Tyson hafði aflýst bardaganum
vegna veikinda en hefur snúist
hugur og er nú kominn til Memph-
is í Bandaríkjunum, þar sem bar-
daginn á að fara fram á laugar-
daginn.
Orðrómur hefur verið uppi um
að Tyson hafi samþykkt að heyja
bardagann eftir viðræður við
bandarísku kapalsjónvarpsstöð-
ina Showtime, sem ætlar að sýna
frá viðburðinum. Freddie Roach,
þjálfari Tyson, er ekki sammála
þessu. „Ég held að hann hafi ekki
verið undir þrýstingi. Honum leið
bara betur í morgun [gærmorg-
un].
Ekki er þó alveg öruggt að bar-
daginn muni fara fram því
Etienne er ekki ánægður með þró-
un mála undanfarna daga. „Búið
er að setja bardagann aftur á en
við þurfum samt að glíma við eitt
vandamál: Clifford vill ekki berj-
ast. Hann segir að Tyson geti ekki
ráðskast með sig og sagt hvenær
hann eigi að berjast og hvenær
ekki,“ sagði umboðsmaður kapp-
ans.
Brian Young, skipuleggjandi
bardagans, segist eiga von á að
málið leysist. „Ef það leysist ekki
verður bardagi samt sem áður
háður. Ef Clifford vill ekki berjast
verður bara náð í einhvern annan
sem vill það.“ ■
Bardagi Tyson og Etienne verður háður:
Tattóveruðum
Tyson snýst hugur
HÚÐFLÚRAÐUR
Mike Tyson með nýja húðflúrið sitt sitjandi í þotu á leið til Memphis. „Mike sagði mér að
hann vildi berjast og við erum komnir hingað til þess,“ sagði þjálfari Tyson í gær.
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Skráning í skólann hefur
staðið yfir undanfarna daga og
segist Arnór vera mjög ánægður
með móttökurnar.
„Viðbrögðin hafa verið frábær
í einu orði sagt. Það eru komnir
hátt í 70 krakkar inn núna og ann-
ar eins hellingur af heillaóskum.
Menn tala um að það hafi verið
tími kominn á þetta og að þetta sé
frábært framtak. Það gefur
manni ansi mikið. Við erum bara
rosalega ánægðir með móttökurn-
ar og bjuggumst ekki við svona
mörgum á þetta fyrsta nám-
skeið.“
Arnór, sem einnig starfar sem
umboðsmaður fyrir knattspyrnu-
menn, segist hafa gengið með
þessa hugmynd í maganum í lang-
an tíma. „Mig langaði að láta
reyna á þetta og skapa mér von-
andi framtíðarstarf. Ég hugsa til
lengri tíma og planið er að setja
þetta upp aftur í september og þá
í alls sjö mánuði á ári. Við ætlum
að nota þessar fimm vikur sem
prófstein á það hvar er þörf á að
betrumbæta og laga.“
Að sögn Arnórs er vissum þátt-
um mjög ábótavant hjá ungum ís-
lenskum knattspyrnumönnum,
þar á meðal grunnþáttum í tækni
og leikskilningi. Verður unnið
markvisst í þessum atriðum í
skólanum, en fyrsta námskeiðið
mun standa yfir í fimm vikur.
Unglingar, að mestu 13 ára og
eldri, munu sækja skólann. Þrátt
fyrir að strákar séu í meirihluta
hafa á annan tug stúlkna einnig
skráð sig. Aðspurður segir Arnór
að stelpurnar verði ekki settar í
sérhóp á æfingunum. „Fyrsta æf-
ingin fer í að setja upp æfingarn-
ar og síðan verður skipt í styrk-
leikaflokka. Það er mjög gott ef
maður getur sigtað út því þá held
ég að hver og einn hópur fái sem
mest út úr æfingunni.“
Arnór segir að það komi í ljós á
næstunni hvort grundvöllur sé
fyrir skóla sem þennan í framtíð-
inni. „Það hefur verið mikill áhugi
fyrir þessu og þeir styrktaraðilar
sem við höfum talað við hafa tek-
ið mjög vel í þetta þannig að við
erum bjartsýnir.“
Einn styrktaraðilanna er
Mjólkursamsalan, sem mun taka
þátt í að útvega morgunmat sem
krakkarnir fá eftir æfingarnar.
Að sögn Arnórs hefur enginn
kvartað yfir því að þurfa að mæta
svona snemma. Helstu vand-
kvæðin gætu aftur á móti legið í
því fyrir foreldrana að skutlast
með krakkana til og frá skólan-
um. „Auðvitað skilur maður að
þetta er erfitt, en ef krakkarnir
hafa metnað og áhuga þá er það
foreldranna að taka þátt í þeim
áhuga og sinna honum. Maður
þurfti að gera þetta sjálfur í at-
vinnumennskunni að vakna
snemma og æfa þrisvar á dag.
Það er ótrúlegt með þennan tíma
að þetta venst allt saman.“
freyr@frettabladid.is
Frábær viðbrögð
við knattspyrnuskóla
Hátt í 70 krakkar hafa skráð sig í knattspyrnuskóla Arnórs Guðjohnsen.
Fyrsta æfingin er næsta þriðjudag klukkan 6.30 um morguninn. Arnór
segir engan hafa kvartað yfir hinum óvenjulega æfingatíma.
ARNÓR
Arnór Guðjohnsen er fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður í knattspyrnu. Æfing-
arnar í knattspyrnuskólanum fara fram í Egilshöll og í Fífunni. Yfirþjálfarar verða þeir Þor-
lákur Árnason, þjálfari Vals, og Zelkjo Sankovic. Auk þess mun Birkir Kristinsson annast
markvarðaþjálfun. Arnór hyggur á náið samstarf í framtíðinni við íslensk knattspyrnufélög í
tengslum við skólann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T