Fréttablaðið - 20.02.2003, Page 26

Fréttablaðið - 20.02.2003, Page 26
26 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Útsala Úr, skartgripir og postulín 15-50% afsláttur Laugavegi 61 Sími 552 4910 úrad. 552 4930 SKÓLI Í Menntaskólanum við Hamrahlíð standa nú yfir svokall- aðir Lagningadagar. Dagar þessir eru þemadagar sem haldnir eru til að brjóta upp almenna kennslu á vorönn, enda sú önn jafnan lengri en haustönnin. Nemendur þurfa þá ekki að sækja hefðbundnar kennslustundir en sækja þess í stað ýmiss konar viðburði. Í boði eru mörg forvitnileg námskeið svo sem krufning á rottum, fræðsla í kynlífi, hvernig á að koma fram við konur, bogfimi, glerblástur, magadans, nudd og blindraganga. Á síðasttalda nám- skeiðinu gefst nemendum kostur á að upplifa það hvernig er að vera blindur. „Það eru tveir blindir nemend- ur í skólanum og þeir eru í miklu uppáhaldi hjá öðrum nemendum,“ útskýrir Svala Ragnarsdóttir, sem er í Lagningadaganefnd. „Þeir ætla að halda námskeið um það hvernig er að vera blindur. Þeir munu leiða nemendur um skólann en það verður bundið fyrir augu þeirra og blindrastafir notaðir. Það er mjög mikil ásókn í það námskeið.“ Nemendur þurfa að safna tólf punktum til að fá ekki fjarvist í kladdann. Svala segir að nemend- ur taki Lagningadögunum afar vel og eru flest námskeið vel sótt. Sjálf hafði hún setið mun fleiri námskeið en kröfur eru gerðar um. Lagningadaganefnd heldur utan um þemadagana ásamt nem- endastjórn en hún stendur í þrjá daga. Í gær var sérstök árshátíð- arsýning hjá Leikfélagi MH þar sem verkið Örlaganornir var sýnt í Austurbæ. Í kvöld halda nemendur árshátíð sína á Grand Hótel. ■ KAFFIHÚSASTEMNING Skólanum er breytt í tilefni daganna og er meðal annars búið að koma fyrir kaffihúsi á fyrstu hæð skólans. Þar eru seldar hnallþórur og vöfflur auk þess sem ýmsir listamenn troða upp. Lagningadagar í MH: Hvernig er að vera blindur? ÓKIND Hljómsveitin Ókind lék fyrir gesti kaffihússins. SVALA RAGNARSDÓTTIR Er einn af skipuleggjendum Lagningadaga í Menntaskólanum í Hamrahlíð. JÚRÓVISJÓN Í gær léku þeir félagar Ólafur Páll Gunnarsson og Freyr Eyjólfsson í útvarpsþættinum Popplandi Júróvisjónframlag okk- ar Íslendinga og strax á eftir lag- ið „Right Here Waiting“ með Richard Marx sem kom út árið 1989. Þeir voru að velta því fyrir sér hvort lögin væru lík og þá að lag Hallgríms Óskarssonar „Segðu mér allt“ væri jafnvel stolið. Skemmst er frá því að segja að það trylltist allt og ljóst má vera að Söngvakeppni Evr- ópskra sjónvarpsstöðva er ofar- lega í hugum landsmanna. „Jú, viðbrögðin voru ofboðsleg – símtölum og tölvupósti bókstaf- lega rigndi yfir okkur þar sem fólk ýmist hélt því fram að þetta væri alveg eins eða reifst og skammaðist: Þetta væri allt ann- að. Sjálfur legg ég ekki mat á þetta,“ segir Óli Palli, sem segist geta haldið langa ræðu um lög sem líkjast hvert öðru: „Byrjaðu í dag að elska með Geirfuglum er til dæmis alveg eins og Knocking on Heavens Door með Dylan og Hjálpaðu mér upp með Nýdönsk. Það er bara gaman að þessu.“ Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson útsetti lagið fyrir Hallgrím en sjálfur er hann er lagahöfundur. „Sá er heyrnarlaus sem ekki heyr- ir að lögin eru lík, þarna er vissu- lega ákveðinn skyldleiki. En ekki eru sömu nótur nema fyrstu fjór- ar. Þá er annar hljómagangur. Og þannig má í raun lengi telja; riþminn er annar og nóturnar rað- ast annars vegar á offbeat og hins vegar á downbeat og svo fram- vegis,“ segir Þorvaldur og ítrekar að engin leið sé að saka Hallgrím um stuld í þessu sambandi. ■ Útvarpsmenn líktu „Segðu mér allt“ við „Wherever you go“: Mikil viðbrögð hlustenda BIRGITTA HAUKDAL Spennan í tengslum við Júróvisjónþátt- töku hennar eykst og nú eru menn að velta því fyrir sér hvort lagið „Segðu mér allt“ líkist „Right Here Waiting“ með Richard Marx. NÚ KLÁRUM VIÐ ÚTSÖLUNA. Útsölulok laugardag fimm verð í gangi: 1.000, 1.900, 3.900, 4.900 og 5.900. ATH: Erum að taka upp nýjar vörur. Einn klár á hæstu tinda heims!!!! Nissan Patrol Elegance 03/01 Blár/tvílitur s.sk. ek. 40 þ. km, 44“ fullbreyttur. Sjón er sögu ríkari. Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur Bíldshöfða 10 • 110 Reykjavík • S. 587-8888 Nissan Patrol Elegance 04/01 svartur, s.sk, ek. 39 þ. km 35“ breyttur. Samlitur, grind og kastarar. Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur Bíldshöfða 10 • 110 Reykjavík • S. 587-8888 www.bilasalarvk.is www.bilasalarvk.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA? Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landssímans. „Ég er að lesa Sölku Völku í þriðja sinn. Ég las hana síðast fyrir fimm árum síðan og það er afskaplega kærkomið að endurnýja kynnin við hana. Svo er ég að lesa Stafa- karlana og Jón Odd og Jón Bjarna fyrir son minn sem er fimm ára og ég er ekki frá því að ég skemmti mér betur en hann yfir þeim bræðrum.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.