Fréttablaðið - 08.03.2003, Qupperneq 2
2 8. mars 2003 LAUGARDAGUR
Hannes Hólmsteinn hefur gagnrýnt Bónusfeðga
mjög fyrir að vera halla undir Samfylkinguna og
segist sannfærður um að Davíð segi satt um meint
300 milljóna króna boð Jóns Ásgeirs til Davíðs
Oddssonar.
Ég versla þar sem verðið er lægst og stund-
um er heppilegt fyrir mig að versla í Bónus.
Það er nefnilega þannig að markaðurinn
spyr ekki hvernig brauðið er á litinn, heldur
hvernig það bragðast.“
SPURNING DAGSINS
Hannes Hólmsteinn,
verslar þú í Bónus?
HÓTEL Svo illa vildi til að 200 fer-
metra snjóhús sem reist hafði
verið við Sel-Hótel Mývatn á
Skútustöðum bráðnaði skömmu
áður en vígja átti það á vélsleða-
móti sem þar fór fram:
„Það er allt of hlýtt hér. Þetta
var óheppilegt,“ segir Ásdís Jó-
hannesdóttir, hótelstýra á Sel-
Hóteli, sem hafði hlakkað til að
fylla snjóhúsið af vélsleðafólki
og bjóða upp á veitingar á ísbar
sem þar átti að vera.
„Við erum búin að vera lengi
að þessu. Teikningar af húsinu
voru til í sumar og svo reistum
við stálgrind með vírneti í lofti
sem sprauta átti yfir vatni og
frysta. Síðan átti að hylja þetta
með snjó.
En svo bráðnaði allt og nú
stendur grindin ein eftir,“ segir
hótelstýran hálfgáttuð en vonast
þó eftir snjó hið fyrsta. „Það er
verið að smíða fyrir okkur kæli-
pressu á Akureyri og þegar hún
verður komin eru meiri líkur á að
snjórinn haldi sér lengur,“ segir
hún.
Snjóhúsið sem hér um ræðir
var í ætt við það sem frægt er úr
James Bond-kvikmyndinni sem
tekin var að hluta til hér á landi, í
grennd við Höfn á Hornafirði.
„Þetta var bara minna,“ segir Ás-
dís Jóhannesdóttir. ■
Vetrarhátíð og hlýindi við Mývatn:
Snjóhúsið bráðnaði
SNJÓHÚSIÐ Á SKÚTUSTÖÐUM
Snjórinn bráðnaði. Grindin ein eftir.
BÖRN Fleiri strákar en stelpur
fæddust hér á landi í fyrra. Alls
fæddust 4.048 börn, en þar af voru
strákar 2.066 en stelpur 1.982.
Þarna munar 84. Fæðingum hefur
fækkað frá fyrri árum en á árinu
2002 voru fæðingar 42 færri en á
árinu þar á undan.
Frjósemin á undir högg að
sækja en mælikvarði á frjósemi
þjóðar er fjöldi fæddra barna á
ævi hverrar konu. Er talið að frjó-
semin þurfi að vera 2,1 barn á
konu til að viðhalda mannfjöldan-
um til lengri tíma litið. Þessi frjó-
semi var 1,93 börn á hverja konu
hér á landi í fyrra og liggur því
undir nauðsynlegri viðhaldsstærð.
Hámarki náði frjósemi þjóðarinn-
ar á seinni hluta sjötta áratugarins
þegar frjósemi hverrar konu var
4,2 börn. Skipar Ísland sér þarna í
hóp annarra vestrænna þjóða hvað
minnkandi frjósemi varðar þó
frjósemin hér sé þrátt fyrir allt
umtalvert meiri en víðast hvar
annars staðar. Aðeins tvö Evrópu-
lönd sýna meiri frjósemi en hér
þekkist; Tyrkland og Albanía. ■
Fæðingar í fyrra:
Fleiri strákar en stelpur
FÆRRI BÖRN
Færri börn fæddust í fyrra en á árinu þar á undan.
LÆKNADEILA Íbúar Hveragerðis
eru undrandi þar sem einn lækna
heilsugæslunnar hefur verið í fríi
á launum á sama
tíma og annar er
ráðinn til að leysa
yfirlækninn af.
Árni Jónsson
læknir kom til
starfa eftir þriggja
vikna frí í febrúar.
Þegar hann mætti
var honum tjáð að
engir sjúklingar
væru skráðir á
hann. Hann fékk
bréf frá Árna
Magnússyni, for-
manni stjórnar
heilsugæslunnar, þar sem óskað
var eftir að hann yrði frá störfum
um óákveðinn tíma. Árni Jónsson
læknir segist ekki kunna skýringu
á hvers vegna hann er allt í einu
óæskilegur. „Mér dettur helst í
hug einelti. Það er furðulegt í ljósi
þess að gerð var viðhorfskönnun
meðal bæjarbúa um þjónustu
læknanna sem kom mjög vel út
fyrir okkur.“
Árni Jónsson læknir segist
vita til að áður hafi læknir verið
flæmdur í burtu. Sama segir
Sunna Guðmundsdóttir, íbúi í
Hveragerði.
Árni Magnússon segist ekki
geta tjáð sig um einstaka starfs-
menn en neitar ekki að um
ákveðna samstarfsörðugleika sé
að ræða við stjórnendur stöðvar-
innar. „Þetta mál er í ákveðnum
farvegi og stjórn stöðvarinnar
mun taka ákvörðun innan
skamms um áframhaldandi starf
þessa tiltekna læknis. Að öðru
leyti tjái ég ekki um þetta við
blaðamenn,“ segir Árni.
Sunna Guðmundsdóttir hefur
búið í bænum um tuttugu ára
skeið. Hún segir það vaka fyrir
bæjarbúum að fá viðunandi skýr-
ingar á hvað valdi. Sjálf hefur
hún leitað til Árna Jónssonar og
segir að þá fyrst hafi hún fengið
bót meina sinna. „Ég fór í heil-
brigðisráðuneytið í vikunni og
óskaði eftir að fá að ræða við ráð-
herra til að kannað verði hvað
valdi þessu. Við viljum aðeins fá
skýringar.“
Sunna ræddi við Elsu Frið-
finnsdóttur, aðstoðarmann ráð-
herra, sem ráðlagði henni að
skrifa bréf til ráðherra. „Það mun
ég gera. Ég sætti mig ekki við að
svona sé komið fram við okkur.
Ég fullyrði að þarna er óhreint
mjöl í pokahorninu og þetta fólk
er að bola Árna frá að ósekju. Ég
er ekki ein um þá skoðun í bæn-
um,“ segir Sunna Guðmundsdótt-
ir, íbúi í Hveragerði.
bergljot@frettabladid.is
Hvergerðingar
krefjast svara
Ganga á fund heilbrigðisráðherra og óska eftir svörum vegna lækna-
skorts í bænum. Árni Magnússon, formaður stjórnar heilsugæslunnar,
neitar að tjá sig. Ein umsókn hefur borist um lausa stöðu yfirlæknis.
FRÁ HVERAGERÐI
Læknamál hafa verið í ólestri í Hveragerði. Áður en núverandi stjórnendur heilsugæslu-
stöðvarinnar tóku við var læknir í starfi sem lét nauðugur af störfum.
„Ég sætti mig
ekki við að
svona sé kom-
ið fram við
okkur íbúana.
Ég fullyrði að
þarna er
óhreint mjöl í
pokahorninu
og þetta fólk
er að bola
Árna Jónssyni
lækni frá.“
Bréf ríkisins
í Búnaðarbanka:
Seldust á
örskotsstund
EINKAVÆÐING Gríðarleg eftirspurn
var eftir bréfum ríkisins í Bún-
aðarbankanum. Bréf fyrir tvo og
hálfan milljarð seldust á örskots-
stundu þegar markaður var opn-
aður í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá Búnaðarbankan-
um, sem sá um útboðið, eru menn
gríðarlega ánægðir með viðtök-
unnar. Eftirspurn var þreföld á
við framboðið. Útboðsgengið var
5,05 en lokagengi dagsins var 5,2.
Endanlega á eftir að gera upp hve
margir keyptu, en samkvæmt
upplýsingum voru þeir innan við
40 talsins. ■
Heitavatnsrör gaf sig:
Pípari
brenndist
LÖGREGLA Pípulagningamaður sem
var við störf í Engidalsskóla í
Hafnarfirði brenndist illa þegar
inntak heita vatnsins í skólabygg-
ingunni gaf sig. Hann var fluttur
með sjúkrabíl á spítala.
Slökkvilið og starfsmenn Orku-
veitunnar voru kallaðir til aðstoð-
ar enda réði pípulagningamaður-
inn og starfsfélagi hans ekki við
ástandið vegna mikils hita frá
vatninu. Enn fremur mætti full-
trúi tryggingafélags til að meta
skemmdir. Slökkvilið fór af staðn-
um skömmu fyrir klukkan sex í
gær eftir meira en tveggja tíma
starf. ■
Dregur úr hagnaði:
Seðlabanki
gagnrýndur
UPPGJÖR Hagnaður Samherja var
tæplega 1,9 milljarðar árið 2002.
Hagnaður Samherja var 1,1 millj-
arður árið áður. Hagnaður fyrir af-
skriftir, skatta og fjármagnsliði
var tæpir þrír milljarðar, sem er
rúmum hálfum milljarði lægra en
árið áður. Þorsteinn Már Baldvins-
son, forstjóri Samherja, segir
skýringarinnar að leita í styrkingu
krónunnar. Áætlanir félagsins hafi
gert ráð fyrir meiru. Hann telur
krónuna ógna útflutningsgreinum.
„Ég tel slæmt fyrir atvinnulífið að
Seðlabankinn reyni ekki að hafa
meiri áhrif á gengi og stöðugleika
íslensku krónunnar.“ ■
Innbrotsþjófur:
Ótrúleg
afköst
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
hefur verið dæmdur í tólf mánaða
fangelsi fyrir hátt í hundrað inn-
brot, bílaþjófnaði og fleiri afbrot
á um tveggja ára tímabili. Níu
mánuðir refsingarinnar eru skil-
orðsbundnir.
Maðurinn braust bæði inn í bíla
og hús og stal öllu steini léttara.
Hann falsaði ávísanir og misnot-
aði greiðslukort annarra. Alls stal
hann fyrir rúmar fimm milljónir
króna. ■
EVRÓPA
SPRENGJUHÓTUN Í LEIKSKÓLUM
Lögreglan í Petropavlovsk-
Kamsjatskí á Kamsjatka-skaga í
Rússlandi lét loka 45 leikskólum í
borginni í kjölfar sprengjuhótun-
ar. Leitað var í öllum leikskólun-
um en engin sprengiefni fundust.
EVRÓPA
GÍSLATAKA Í LIVERPOOL Miðaldra
karlmaður, vopnaður skamm-
byssu, hélt eiginkonu sinni og
lækni í gíslingu á heimili sínu í
Liverpool í rúman sólarhring
áður en hann gaf sig á vald lög-
reglunni. Fjöldi vopnaðra lög-
reglumanna stóð vörð við húsið á
meðan samningamenn á vegum
lögreglunnar töluðu manninn á að
leggja niður vopn og veita gíslun-
um frelsi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T