Fréttablaðið - 08.03.2003, Qupperneq 4
4 8. mars 2003 LAUGARDAGUR
ATHUGASEMD
YFIRLÝSING
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ertu flughrædd(ur)?
Spurning dagsins í dag:
Hvern finnst þér að eigi að senda í
Evróvisjón?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
43,5%
43,8%Nei
12,7%
FÁIR FLUG-
HRÆDDIR
Einungis tæplega
13% eru flug-
hrædd.
Veit ekki
Já
SVEITARSTJÓRNIR Reykjavíkurborg
er sögð hafa sparað yfir 60 millj-
ónir króna með því að fara huldu
höfði við kaup á Stjörnubíósreitn-
um.
Stefán Jón Hafstein, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans, segir
borgina hafa um langt skeið reynt
að komast yfir lóðirnar. Eigand-
inn, Jón Ólafsson, hafi hins vegar
verið ófáanlegur til að lækka upp-
sett verð, sem hafi verið yfir 200
milljónir króna.
„Við létum fasteignasala bjóða
í reitinn án þess að taka fram hver
kaupandi væri og náðum verðinu
niður í 140 milljónir. Það er nokk-
uð nálægt mati óháðra aðila, sem
var upp á 124 milljónir króna,“
sagði Stefán Jón Hafstein við
Fréttablaðið.
Í yfirlýsingu sem Sigurður G.
Guðjónsson, forstjóri Norður-
ljósa, og Ragnar Birgisson sendu
frá sér á föstudag segir að lóðirn-
ar hafi Jón átt með Norðurljósum
samskiptafélagi hf. Salan hafi far-
ið fram fyrir milligöngu Fast-
eignamarkaðarins ehf. sem hafi 8.
júlí í fyrra sent kauptilboð um
kaup á lóðunum og húsunum á
þeim.
Lóðaeigendurnir vildu fá að
vita nafn kaupandans: „Starfs-
menn Fasteignamarkaðarins neit-
uðu hins vegar að upplýsa hver
væri sá aðili, sem óskaði eftir
bindandi sölutilboði,“ sagði í yfir-
lýsingu Sigurðar og Ragnars. ■
BRETLAND Bresk stjórnvöld áttu
ríkan þátt í því að byggja
Falluja 2 efnaverksmiðjuna
sem Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði
öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna að væri lykilþáttur í eit-
urefnaframleiðslu Íraka.
Breska dagblaðið The Guar-
ian greinir frá því að breskir
ráðherrar og embættismenn
hafi vitað af því að verksmiðj-
an yrði líklega notuð til þess að
framleiða efnavopn. Hafist var
handa við að byggja verk-
smiðjuna árið 1985 og sá ríkis-
stjórn Margrétar Thatcher til
þess að breska fyrirtækið sem tók
þátt í byggingu verksmiðjunnar
fengi leynilega ríkisstyrki til
verksins. Að auki var gefið út-
flutningsleyfi fyrir efni sem hægt
er að nota til efnavopnafram-
leiðslu.
Ekki var eining um það inn-
an ríkisstjórnarinnar að
styrkja byggingu efnaverk-
smiðjunnar. Paul Channon, þá-
verandi viðskiptaráðherra,
hunsaði beiðni Richard Luce í
utanríkisráðuneytinu um að
styðja bygginguna ekki. Luce
taldi að það yrði álitshnekkir
fyrir Breta ef málið yrði ein-
hvern tíma gert opinbert.
Þátttöku breskra stjórn-
valda í byggingunni lauk með
því að þau þurftu að greiða
lokagreiðsluna sem Írakar inntu
ekki af hendi vegna stríðsins við
Persaflóa. ■
PEKING, AP Þrátt fyrir að kínversk
stjórnvöld hafi hvatt landsmenn
til að nota Netið sjálfum sér og
þjóðinni til framdráttar hafa kín-
verskir netverjar orðið varir við
það undanfarið að mjög hefur
dregið úr hraðan-
um á Netinu.
Ástæðan er ekki
sú að bandvíddin
dugi ekki fyrir
umferðinni heldur
sú að stjórnvöld
hafa strangt eftir-
lit með því hvaða
efni fólk nálgast.
„Heima við er
Netið stundum of hægt til að vera
nothæft, í vinnunni er það stund-
um hægvirkara,“ segir Sara Li,
fyrrum ritstjóri. Hún segir að
Netið sé þó iðulega hægast í
kringum stóra atburði hjá kín-
verska kommúnistaflokknum.
Netverjar urðu sérstaklega
varir við hægagang á Netinu í
vikunni. Það er talið vísbending
um að stjórnvöld hafi lagt enn
meiri áherslu en áður á það að
stjórna flæði upplýsinga um Net-
ið meðan árlegur fundur kín-
verska þingsins fór fram.
Allur netaðgangur Kínverja
við umheiminn fer í gegnum átta
vefgáttir. Michael Iannini, fram-
kvæmdastjóri ráðgjafarfyrir-
tækis í Peking, segir að þessu
megi líkja við það að allir 59
milljón netverjar Kína andi í
gegnum sama loftop. „Ríkis-
stjórnin hefur sett upp margar
síur í þessu loftopi.“ Síðasta
haust fór að gæta vandræða eft-
ir að stjórnvöld settu upp nýjan
eftirlitsbúnað. Sá búnaður stöðv-
ar allar sendingar og skoðar
áður en þeim er komið til skila,
hvort tveggja tölvupóst og
heimasíður sem verið er að
skoða. Þetta sést til dæmis á því
að allur tölvupóstur sem kemur
frá Kína er sendur frá sama stað
segir Iannini og telur það til
marks um að allur tölvupóstur
sé ritskoðaður.
Það eru takmörk fyrir því
hvaða efni Kínverjar mega
skoða. Meðal þess sem er á bann-
lista eru mannréttindi og Falun
Gong-hreyfingin.■
Ítalskur mafíósi:
Náðist
eftir níu
ára flótta
SIKILEY, AP Salvatore Rinella hafði
verið á flótta undan laganna vörð-
um í níu ár þegar hann var loks
handsamaður í Palermo á Sikiley.
Rinella var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir morð sem var framið árið
1979. Hann var talinn hægri hönd
Antonino Giuffre, mafíuforingja
sem var handtekinn í apríl á síðasta
ári og hefur síðan gefið upplýsing-
ar sem leitt hafa til handtöku fjölda
mafíósa.
Pietro Grasso, aðalsaksóknari í
Palermo, sagði handtöku Rinella
mikið áfall fyrir mafíuna. Hann var
með fjölda skjala og símanúmera á
sér þegar hann var handtekinn. ■
Borgin segist hafa sparað 60 milljónir á
Stjörnubíósreitnum:
Fór huldu höfði
fyrir Jóni Ólafssyni
STJÖRNUBÍÓ
Stjörnubíó var rifið fyrr í vetur.
Bresk stjórnvöld hjálpuðu Írökum:
Bretar byggðu
eiturefnaverksmiðju
VOPNAEFTIRLITSMENN VIÐ VERKSMIÐJUNA
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsins, sagði að hugsan-
lega yrði að eyða tækjabúnaði í Falluja 2 verksmiðjunni.
Þingstörfin
hægja á Netinu
Kínversk stjórnvöld hafa hvatt fyrirtæki og almenning til að nota Netið
meira. Eftirlit þeirra með netnotkun hefur þó í för með sér að á köflum
er netið það hægvirkt að það er varla nothæft.
BEÐIÐ Á FUNDI ÞINGSINS
Það eru ekki aðeins Li Peng, forseti kínverska þingsins, og Jiang Zemin, forseti Kína, sem
bíða og glápa út í loftið meðan á fundi þingsins stendur. Netverjar hafa kvartað undan
miklum hægagangi sem er rekinn til ritskoðunar.
„Heima við er
Netið stund-
um of hægt til
að vera not-
hæft, í vinn-
unni er það
stundum
hægvirkara.“
AP
/M
YN
D
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.97 0.31%
Sterlingspund 123.55 0.32%
Dönsk króna 11.35 0.31%
Evra 84.31 0.31%
Gengisvístala krónu 121,38 -0,26%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 788
Velta 7.209 milljónir
ICEX-15 1.388 0,33%
Mestu viðskipti
Búnaðarbanki Íslands hf. 3.195.147.683
Flugleiðir hf. 325.980.046
Íslandssími hf. 202.232.950
Mesta hækkun
SÍF hf. 5,43%
Flugleiðir hf. 3,51%
Framtak Fjárfestingarbanki hf. 3,23%
Mesta lækkun
Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. -2,63%
Tryggingamiðstöðin hf.-2,04%
Samherji hf. -1,58%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7720,4 0,6%
Nasdaq*: 1306,1 0,3%
FTSE: 3491,6 -1,8%
DAX: 2449,3 0,5%
Nikkei: 8144,1 -2,7%
S&P*: 827,5 0,7%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Vegna opinberrar umræðuum trúnaðarbrest í stjórn
Baugur-Group og fullyrðinga
um eignartengsl mín, eða fyrir-
tækja mér tengdum, við útgáfu-
félag Fréttablaðsins, vil ég taka
fram að þau gögn úr fundar-
gerðum og
t ö l v u p ó s t i
Baugs sem
vísað var til í
frétt Frétta-
blaðsins laug-
ardaginn 1.
mars, eru ekki
frá mér komin
né bárust
blaðinu fyrir
minn tilverkn-
að. Fréttir af samtölum forsæt-
isráðherra og stjórnarformanns
Baugs um málefni Baugs í
London fyrir rúmu ári síðan og
af aðgerðum stjórnarformanns-
ins eftir fundinn þjóna ekki
hagsmunum fyrirtækisins né
hagsmunum mínum persónu-
lega. Þvert á móti er það skað-
legt hagsmunum fyrirtækisins
og mínum eigin að lenda síend-
urtekið í orrahríð pólitískrar
umræðu. Markmið mitt og
Baugs hefur alltaf verið að efla
hag fyrirtækisins með því að
bjóða upp á lægsta verð á mat-
vöru, sérvöru og lyfjum fyrir
allan almenning í landinu. Það
hefur lengi verið ósk mín að fá
að gera það í friði fyrir afskipt-
um stjórnmálamanna eða þeirra
sem ræða um stjórnmál á opin-
berum vettvangi.
Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugur-Group.
Vegna ásakana Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra og fjölda
óstaðfestra frétta í blöðum, út-
varpi og sjónvarpi um tengsl
Fréttablaðsins við Baug og for-
svarsmenn þessa fyrirtækis, er
ritstjórn Fréttablaðsins ljúft og
skylt að staðfesta yfirlýsingu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um
að þau gögn sem blaðið byggði
frétt sína á laugardaginn 1. mars
eru ekki frá honum komin.
Ritstjóri.