Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 19
19LAUGARDAGUR 8. mars 2003
Sómi Íslands,
sverð þess og
Skjöldur
„Ég er mjög ánægður með nafnið
mitt,“ segir Skjöldur Sigurjóns-
son, veitingamaður á Ölstofu Kor-
máks og Skjaldar. „Þetta nafn vís-
ar í hina frægu setningu Sómi Ís-
lands, sverð þess og skjöldur. Það
er því smá þjóðernislegur undir-
tónn í því.“ Skjöldur segir að nafn-
ið, sem vísar í stríðsrekstur og
varnir einhvers konar, hafi hert
hann í gegnum tíðina. „Maður
þurfti að standa undir þessu nafni
í bernsku. Það var reynt að stríða
manni, en það háir yfirleitt
stríðnispúkum að þeir eru ekki
allt of vel gefnir. Þeir áttu alltaf
erfitt með að finna eitthvað sem
rímaði við þetta nafn.“ Að sögn
Skjaldar var algengt að menn
reyndu að ríma Skjöldur við nöld-
ur. Þeir allra snjöllustu kölluðu
hann Skjöld skjaldböku. „En þetta
beit ekkert á mig,“ segir Skjöldur.
„Ég var orðinn vel brynjaður.
Reyndar heitir stóri bróðir minn
Brynjar og afi hét Brynjar. Alls
eru sex Brynjarar í fjölskyldunni.
Dóttir mín heitir Brynja. Það er
hugsanlegt að Skjöldur hafi verið
valið sem afbrigði af þessu
Brynjars-nafni, enda vísa bæði
nöfnin í stríðsvarnir.“
Skjöldur segist viss um að
hann væri öðruvísi maður ef hann
héti til dæmis Jón. Skjaldar-eigin-
leikinn hefur komið sér vel í veit-
ingabransanum, þegar hann þarf
stundum að verjast orðum og ólát-
um vandræðamanna, og jafnvel
grípa til aðgerða gegn þeim. „Það
er gott að vera vel brynjaður í
þessum bransa,“ segir Skjöldur.
„Með góðan skjöld.“
Skjöldur hitti engan sem bar
sama nafn fyrr en árið 2000. Þá
rakst hann á Skjöld nokkurn sem
hefur getið sér gott orð fyrir að
koma fram í kjól. Skjöldur segir
að það hafi stundum komið fyrir
að honum hafi verið ruglað saman
við Skjöld dragdrottningu. En er
Skjöldur dragdrottning ekki af-
sönnun á því að nafnið Skjöldur
geri mann að hörðum nagla?
„Nei,“ segir Skjöldur, „Menn
þurfa auðvitað að vera hörkutól til
þess að koma fram í kjól.“ ■
Nafnið
mitt
SKJÖLDUR
SIGURJÓNSSON
Segir að nafnið hafi
hert hann og hann
sé vel brynjaður til
þess að takast á við
ævintýrin í veitinga-
húsabransanum.