Fréttablaðið - 08.03.2003, Qupperneq 24
8. mars 2003 LAUGARDAGUR24
hvað?hvar?hvenær?
5 6 7 8 9 10 11
MARS
Laugardagur
■ ■ FUNDIR
10.00 Danski bókmenntafræðing-
urinn Kirsten Thisted fjallar um „munn-
lega frásagnarhefð á Grænlandi fyrr og
síðar“ á málstofu, sem verður haldin í
stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar
Háskóla Íslands. Málstofan er hluti af
fyrirlestraröð um grænlenskt mál og
menningu og fer að mestu leyti fram á
dönsku.
11.00 Bandaríski listamaðurinn
Mike Bidlo flytur fyrirlestur í Lista-
safni Íslands í tilefni sýningar sinnar,
Ekki Picasso, ekki Pollock, ekki
Warhol. Bidlo er þekktur fyrir eftirlík-
ingar sínar af tímamótaverkum 20.
aldar og ekki síður fyrir orðræðuna
sem listaverk hans skapa um stöðu
listamannsins og myndlistarinnar í
nútímanum.
14.00 Í tengslum við norræna bíó-
daga mun Jukka Sihvonen kvikmynda-
fræðingur halda fyrirlestur í stofu 101 í
Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Ís-
lands. Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist The Way Into Movies:
Introduction to Film Theories.
14.00 Íslenskir friðarsinnar safn-
ast enn saman við bandaríska sendi-
ráðið til að andæfa yfirvofandi stríðs-
rekstri Bandaríkjamanna og Breta í Írak.
Flutt verður stutt ávarp, Birgitta Jónsdótt-
ir skáld les ljóð og hin anarkíska
trumbuslagarasveit „Ekkert blóð fyrir
olíu“ heldur uppi stemningunni.
hljómorðtónleika í Nýlistasafninu ann-
að kvöldið í röð. Hópurinn hefur haft
samstarf um árabil og kennir sig við The
Viking Hillbilly Apocalypse Revue &
Friends. Að þessu sinni eru í hópnum
eftirfarandi: Ron Whitehead, Bragi Ólafs-
son, Michael og Danny Pollock, Sarah
Elizabeth, Inspector 99, Frank Mezzina,
LBH Krew, Thordeez og Megas.
21.00 ABBA-dísirnar halda tón-
leika í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Flutt verður Motown tónlist í anda sjö-
unda áratugarins. Tónlistarstjóri er Ár-
mann Einarsson. ABBA-dísirnar eru átta
söngkonur á aldrinum 16-20 ára. Þær
eiga þriggja ára feril að baki og hafa
sungið bæði hérlendis og erlendis.
17.00 Þrír karlakórar á Eyjafjarðar-
svæðinu, samtals á annað hundrað karl-
ar, munu ásamt tveimur konum sam-
eina krafta sína í almennri söngskemmt-
un í Glerárkirkju á Akureyri. Þetta eru
Karlakór Eyjafjarðar, Karlakór Dalvíkur
og Karlakór Akureyrar-Geysir.
14.00 Lúðrasveit verkalýðsins
heldur árlega vortónleika sína í Lang-
holtskirkju. Í dag eru liðin nákvæm-
lega 50 ár frá stofnun sveitarinnar og
er mikið viðhaft í tilefni þessara
merku tímamóta. Að tónleikum lokn-
um er afmæliskaffi í Langholtskirkju í
boði lúðrasveitarinnar. Aðgangur er
ókeypis.
15.00 Velunnarar Kleppspítalans
standa fyrir upplífgandi fjáröflunartón-
leikum í Breiðholtskirkju. Árni Ísleifs-
son og Vínartríó verða með Vínartónlist,
fjörlegt Kardaza og Melkorka Frey-
steinsdóttir syngur valin jazzlög.
■ ■ KVIKMYND
16.00 Kvikmyndin Back from Et-
ernity frá 1956 sýnd í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði, í sýningarsal
Kvikmyndasafns Íslands. Þetta er endur-
gerð útgáfa af kvikmyndinni Five Came
Back frá 1939. Leikstjórinn John Farrow
leikstýrði þeim báðum. Í aðalhlutverkum
eru Robert Ryan, Anita Ekberg og Rod
Steiger.
■ ■ LEIKLIST
17.00 Möguleikhúsið frumsýnir
leikritið Tónleikur eftir Stefán Örn
Arnarson og Pétur Eggerz. Þetta er
nýtt íslenskt tónleikrit þar sem tónlist
og leikur eru samofin í eina heild. Hér
er tónlistarmaðurinn í nýju hlutverki
sem bæði leikari og flytjandi tónlistar.
20.00 Hugleikur frumsýnir leik-
verkið Undir Hamrinum eftir Hildi
Þórðardóttur í Tjarnarbíói. Leikstjóri
er Ágústa Skúladóttir en höfundar og
útsetjendur tónlistar eru Björn
Thorarensen og Þorgeir Tryggvason.
Leikendur eru átta auk eins hljóð-
færaleikara.
20.00 Stígvélaði kötturinn fyrir
yngstu krakkana á Litla sviði Borgar-
leikhússins í samstarfi við Sjónleikhús-
ið. Allir fá ís á eftir.
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður
af Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
20.00 Sölumaður deyr eftir Arthur
Miller á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Allra síðasta aukasýning.
20.00 Kvetch eftir uppreisnar-
manninn Steven Berkoff á Nýja sviði
Borgarleikhússins í samstarfi við Á
senunni.
20.00 Hinar einu sönnu Píkusögur
eftir Eve Ensler á Þriðju hæð Borgar-
leikhússins.
20.00 Aukasýning á Herpingi Auð-
ar Haralds og Hinum fullkomna
manni Mikaels Torfasonar, sýnt í sam-
starfi við Draumasmiðjuna.
20.00 Nemendur Verslunarskóla
Íslands sýna söngleikinn Made in USA
eftir Jón Gnarr í Loftkastalanum.
20.00 Leikfélag Akureyrar sýnir
Leyndarmál rósanna eftir Manuel Puig
í leikstjórn Halldórs E. Laxness.
20.00 Nemendaópera Söngskól-
ans í Reykjavík frumsýnir Brúðkaup Fíg-
arós eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
20.00 Hellisbúinn er kominn á
kreik á ný í Gamla bíói.
20.00 Einleikurinn Hin smyrjandi
jómfrú er sýndur í Iðnó.
21.00 Beyglur með öllu í Iðnó.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
Le Sing, leiksýning og matur á Litla
sviðinu í Broadway.
Ég ætla að fara á málstofu umgrænlenska frásagnarhefð hjá
danska bókmenntafræðingnum
Kirsten Thisted,“ segir Soffía
Auður Birgisdóttir, ritstjóri
menningarvefritsins Kistan.is.
„Mér finnst þetta mjög áhugavert
og er sérlegur áhugamaður um
grænlenska og færeyska menn-
ingu og fer svo þess vegna í fram-
haldinu á færeysku kvikmyndina
Bye, Bye, Bluebird. Annars er
norræna kvikmyndahátíðin mjög
áhugaverð og ég ætla að reyna að
sjá allar myndirnar. Þá er ég lengi
búin að vera á leiðinni að sjá
Rómeó og Júlíu með sjö ára dótt-
ur minni og læt kannski verða af
því á sunnudagskvöldinu.“
Val Soffíu
SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR
Þetta lístmér á!
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Ný sending
leðurjakkar kr. 19.900
stærðir 36-42
stuttar og síðar kápur
úlpur, hattar og húfur
Útsala á völdum vörum
14.30 Opið málþing um Islam og
Íslendinga verður haldið á vegum AFS á
Íslandi í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18.
Frummælendur eru séra Þórhallur
Heimisson, Irid Agoes frá ÁFS í
Indónesíu og Salmann Tamimi, formað-
ur félags múslima á Íslandi. Góður tími
gefst til umræðna.
14.00 Opinn fundur verður á al-
þjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði
og jafnrétti í sal Miðbæjarskólans, Frí-
kirkjuvegi 1. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir og
Kristín Ástgeirsdóttir flytja erindi. Bryndís
Halla Gylfadóttir leikur á selló og Ingi-
björg Haraldsdóttir les úr verkum sínum.
■ ■ OPNANIR
14.00 Á Alþjóðadegi kvenna verður
opnuð mæðgnasýning í Samlaginu í
Listagili á Akureyri. Listakonurnar Amí,
Ragnheiður Þórsdóttir, Jonna og dætur
þeirra, Þórey Lísa, Guðbjörg og
Kolfinna, sýna þar prinsessur í ýmsum
birtingarformum.
16.00 Opnuð verður í Slunkaríki á
Ísafirði sýningin Óvænt ánægja. Að
henni standa listnemarnir Auður Jör-
undsdóttir, Dagbjört Drífa Thorlacius,
Halldór H. Guðmundsson, Hörn Harð-
ardóttir, Röðull Reyr Kárason og Tumi
Magnússon myndlistarmaður.
16.00 Ásmundur Ásmundsson
myndlistarmaður opnar sýningu á
steypuverki sínu í Gallerí Hlemmi. Hluti
verksins er myndbandsupptaka af upp-
setningu sýningarinnar sem framkvæmd
var af kvenverum sem kunna að með-
höndla stórkarlaleg efni. Myndbandið er
samvinnuverkefni Ásmundar, kvik-
myndagerðarmannsins Bradley Grey og
tónlistarmannsins Péturs Eyvindssonar.
17.00 Lúðvík Kalmar Víðisson
opnar myndlistarsýningu á teikningum á
Solon. Grunnhugmynd sýningarinnar er
að skapa persónur með sterkan svip og
augnaráð, þannig að áhorfandinn hafi á
tilfinningunni að það sé verið að horfa á
hann til baka, og áhorfandinn sjálfur
verður viðfangsefnið.
Helga Magnúsdóttir listmálari sýnir
málverk í boði Listhúss Ófeigs að
Skólavörðustíg 5. Helga brautskráðist frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands,
málaradeild, 1989. Sýningin er opin á
verslunartíma 10-18 á virkum dögum og
11-16 á laugardögum.
Kristveig Halldórsdóttir opnar sýningu í
Þjóðarbókhlöðunni í dag. Á 2. hæð er
myndverk unnið úr plöntum banana-
trésins og hjá Kvennasögusafni á 4. hæð
eru til sýnis verk sem gerð eru úr græn-
meti og ávöxtum.
■ ■ TÓNLEIKAR
14.00 Burtfarartónleikar Emilíu
Rósar Sigfúsdóttur flautuleikara verða í
Salnum í Kópavogi. Guðríður St. Sig-
urðardóttir leikur með henni á píanó
verk eftir J. S. Bach, Gabriel Fauré, Henri
Dutilleux, Ian Clark og Otar Taktakishvili.
Einnig flytur Sigríður Ósk Kristjánsdótt-
ir sópran ásamt Emilíu Rós og Guðríði
lög eftir George Fr. Händel og Maurice
Ravel.
15.15 Tónleikasyrpan 15.15 fer aft-
ur af stað á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins með flutningi verka eftir Hafliða
Hallgrímsson, Snorra Sigfús Birgisson,
Sofiu Gubaidulina og Alfred Schnittke.
Flytjendur eru Lovísa Ósk Gunnars-
dóttir dansari, Hildigunnur Halldórs-
dóttir fiðluleikari og Sigurður Halldórs-
son sellóleikari. CAPUT, Ferðalög, Benda
og Borgarleikhúsið sameinast um tón-
leikahald syrpunnar. Áherslan er lögð á
nýja tónlist og tónlist 20. aldar.
17.00 Burtfarartónleikar Sturlaugs
Jóns Björnssonar hornleikara verða í
Salnum í Kópavogi. Hrefna Unnur Egg-
ertsdóttir leikur með honum á píanó.
Flutt verða verk eftir Sigurd Berge, Wolf-
gang A. Mozart, Eugene Bozza og Paul
Hindemith.
21.00 Ljóðskáld og tónlistarfólk frá
Kentucky og íslenskir gestir verða með
LEIKSÝNING Maður sem ætlar sér
að vera fullkomlega heiðarlegur
og samkvæmur sjálfum sér get-
ur varla átt auðvelt uppdráttar
hér í heimi. Um einn slíkan fjall-
ar einleikurinn Herra maður,
sem hið kraftmikla leikfélag
Vesturport sýnir þessa dagana.
„Þetta fjallar um góðan dreng
sem skilur kannski ekki alveg
tvískinnunginn sem er oft í sam-
félaginu,“ segir Gísli Örn Garð-
arson leikari, sem fer með hlut-
verk unga mannsins Tomas
MacGill, sem býr hjá móður
sinni og reynir að sinna henni
eftir bestu getu.
„Hann gerir ekki alveg grein-
armun á því hvenær fólki er al-
vara og hvenær það er með kald-
hæðni. Þess vegna misskilur
hann ýmislegt og gengur allt of
langt fyrir vikið. Svo hrynur
þetta allt í fangið á honum.“
Einleikurinn Herra maður er
eftir írska leikskáldið Enda
Walsh, sem vakið hefur mikla at-
hygli á síðustu árum. Eftir hann
er einnig leikritið Diskópakk,
sem var fyrsta verkefni leik-
hópsins Vesturport þegar hann
hóf göngu sína á Menningarnótt
árið 2001.
Einungis örfáar sýningar
verða á einleiknum. Ekki komast
fleiri áhorfendur á hverja sýn-
ingu þannig að nú fer hver að
verða síðastur að komast að.
„Þetta verður auk þess vænt-
anlega síðasta verkið sem við
setjum upp í þessu húsnæði á
Vesturgötunni. Við ætlum samt
að halda ótrauð áfram starfsem-
inni, þótt ekki sé ljóst hvar við
fáum inni næst. Við erum ekki
alveg búin að ákveða hvert verð-
ur næsta verkefni.“
Víst er að enginn úr leikhópn-
um á eftir að sakna þessa hús-
næðis. Ekki síst vegna þess að
það er ekki upphitað.
„Það er alveg ískalt þegar
maður er að æfa þarna í tíu stiga
frosti, það er bara fáránlegt. Við
vorum mikið að vinna með máln-
ingu á æfingatímanum. Hún
slettist mikið á mann og svo
fraus þetta utan á manni. Maður
á ekki eftir að sakna þess.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ LEIKHÚS
HERRA MAÐUR
Leikfélagið Vesturport er
að kveðja kuldalega
húsnæðið sitt við Vesturgötu
með einleik Gísla Arnar
Garðarssonar, Herra maður.
Einleikurinn verður fluttur í
Vesturporti kl. 20 í kvöld.
Skilur
ekki
tvískinnung
Ég var stór-hrifinn,“
segir Þór-
gnýr Dýr-
fjörð, menn-
ingarfulltrúi
Akureyrar-
bæjar, um
Leyndarmál
rósanna,
sem Leikfé-
lag Akureyrar sýnir um þess-
ar mundir. „Saga Jónsdóttir
og Laufey Brá Jónsdóttir
sýna báðar stórleik og það má
eiginlega segja að Saga hafi
næstum því verið eins og
díva úr gamalli svart/hvítri
bíómynd. Slíkur leikstíll á
sjálfsagt sjaldnast við á sviði
en smellpassar þarna. Þetta
er seiðandi og rómantísk sýn-
ing og maður kemst ekki hjá
því að láta undan og bráðna.
Ég heyrði ekki betur en að
hörðustu karlmenn hafi
snökt, hvort sem það var
vegna kvefpestar eða sýning-
arinnar.“
Mittmat
✓
✓