Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 25
LAUGARDAGUR 8. mars 2003 25
■ ■ FUNDIR
11.00 Í dag er Háskóladagurinn.
Þá fer fram sameiginleg kynning allra
skóla á háskólastigi hérlendis á því námi
sem er i boði. Kynning fer fram í bygg-
ingum Háskóla Íslands, Aðalbyggingu,
Lögbergi, Íþróttahúsi Háskólans, Árna-
garði og Odda, og stendur til klukkan
17. Kennarar, nemendur og námsráð-
gjafar verða á staðnum.
14.00 Í tengslum við norræna
kvikmyndadaga flytur Jukka Sihvonen
kvikmyndafræðingur fyrirlestur um finns-
ka kvikmyndagerðarmanninn Aki
Kaurismäki í stofu 101, Lögbergi, húsi
lagadeildar Háskóla Íslands.
■ ■ SÝNINGARLOK
Í dag lýkur tveimur sýningum í Hafn-
arhúsinu. Annars vegar er það Lýsir
undir sýningarstjórn Ásrúnar Kristjáns-
dóttur og hins vegar Myndbönd og
gjörningar. Leiðsögn verður um sýning-
ar Hafnarhússins á sunnudag kl. 15.00.
Safnið er opið daglega frá kl. 10-17.
Sýningu Hildar Margrétardóttur í
Listasafni ASÍ lýkur í dag. Hún sýnir
málverk í Ásmundarsal en innsetning og
videogjörning í Gryfju. Sýninguna nefnir
hún Rythma.
Í Arinstofu Listasafns ASÍ lýkur í
dag sýningu á verkum fimm alþýðulista-
manna, þeirra Eggerts Magnússonar,
Ísleifs Konráðssonar, Samúels Jóns-
sonar, Sigurlaugar Jónsdóttir og Stef-
áns Jónssonar frá Möðrudal. Verkin
eru öll í eigu safnsins.
Í dag eru síðustu forvöð að skoða
sýninguna Aftökur og útrýmingar í
Listasafninu á Akureyri, sem vakið
hefur mikla athygli. Að gefnu tilefni er
rétt að taka fram að sýningin verður
ekki sett upp í Reykjavik. Um er að
ræða þrjár sýningar, tvær frá Banda-
ríkjunum og eina frá Þýskalandi.
■ ■ KVIKMYND
15.00 Kvikmyndin Anna Karenína
frá árinu 1947, byggð á hinni frægu
skáldsögu Lévs Tolstoj, verður sýnd í
bíósal MÍR að Vatnsstíg 10. Í aðalhlut-
verkunum eru Vivien Leigh og Ralph
Richardson. Leikstjóri er Julien Duvivier.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Ingvi Rafn Ingvason tromm-
ari heldur tónleika í sal Félags íslenskra
hljómlistarmanna, Rauðagerði 27. Þar
spilar hann uppáhalds taktana sína eftir
sjálfan sig og aðra. Inn á milli tekur
hann trommusóló og fer í gegnum
ýmsa trommustíla.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Möguleikhúsið sýnir
Snuðru og Tuðru eftir Iðunni Steins-
dóttur.
14.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn
kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thor-
björn Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
14.00 Honk! Ljóti andarunginn
eftir George Stiles og Anthony Drewe á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
14.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
sýnir Hobbitann eftir sögu Tolkiens í
leikgerð og leikstjórn Odds Bjarna Þor-
kelssonar.
14.00 Benedikt Búálfur eftir Ólaf
Gunnar Guðlaugsson í Loftkastalanum.
16.00 Möguleikhúsið sýnir Snuðru
og Tuðru eftir Iðunni Steinsdóttur.
17.00 Leikfélag Mosfellsbæjar sýnir
Hobbitann eftir sögu Tolkiens í leikgerð
og leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar.
19.00 Íslenska óperan sýnir sjálf-
an Macbeth eftir Guiseppe Verdi með
Elínu Ósk Óskarsdóttur og Ólafi Kjartani
Sigurðarsyni í aðalhlutverkum.
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður
af Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
20.00 Maðurinn sem hélt að kon-
an hans væri hattur eftir Peter Brook
og Marie-Hélène Estienne Nýja sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare er sýnt á Litla sviði Borg-
arleikhússins í uppfærslu Vesturports.
20.00 Nemendaópera Söngskól-
ans í Reykjavík sýnir Brúðkaup Fígarós
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
20.00 Draumasmiðjan sýnir í allra
síðasta sinn einleikina Hinn fullkomni
maður eftir Mikael Torfason og Herp-
ing eftir Auði Haralds á þriðju hæð
Borgarleikhússins.
21.00 Beyglur með öllu í Iðnó.
■ ■ SÝNINGAR
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands á ljósmyndum ársins stendur yfir í
Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs. Á
neðri hæðinni eru auk þess sýndar ljós-
myndir Ólafs K. Magnússonar frá fyrstu
20 árum hans á Morgunblaðinu.
Fjórir ungir ljósmyndarar, Katrín El-
varsdóttir, Kristín Hauksdóttir, Orri og
Sigríður Kristín Birnudóttir, eru með
sýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Franski myndlistarmaðurinn Serge
Comte sýnir í Nýlistasafninu. Hann er
búsettur hérlendis en hefur að mestu
sýnt erlendis, einkum í París þar sem
hann hefur átt velgengni að fagna.
Finnbogi Pétursson myndlistar-
maður sýnir innsetningu í Kúlunni í
Ásmundarsafni þar sem hann mynd-
gerir hljóð.
Halldór Eiríksson, Helgi Snær Sig-
urðsson og Hrappur Steinn Magnús-
son sýna „Það sem þú vilt sjá“ í Gallerí
Skugga Hverfisgötu 39.
Í Kringlunni stendur nú yfir sýningin
Ljóðið í Fókus sem er hluti af Vetrarhá-
tíð Reykjavíkur. Ljósmyndafélagið Fókus
stendur fyrir sýningunni í samvinnu við
Vetrarhátíðarnefnd og Kringluna.
Anna G. Torfadóttir sýnir í sal Ís-
lenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Opið 14-
18
Aukum
og lífsgleði
sjálfstraust
Upplýsingar í síma 561 8585 og á www.gauilitli.is
Allt þetta er innifalið:
Spinnig 2 í viku taiboo, hipp hopp dans, stöðvaþjálfun, leikræn tjáning,
styrking sjálfsmyndar o.m.f. Vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar,
ítarleg kennslugögn með mataruppskriftum, matardagbókum og
leiðbeiningar varðandi fæðuval, eftirlit með mataræði, frír einkaþjálfari í
tækjasal, fræðsludagur, vatnsbrúsi, bolur, vegleg verðlaun!
Vikuna 10. – 15. mars
hefjast í World Class hin vinsælu
8-vikna unglinganámskeið Gauja litla.
Ný námskeið með breyttum áherslum.
Unglingafjör Gauja litla - 13-16 ára
■ FUNDURhvað?hvar?hvenær?
6 7 8 9 10 11 12
MARS
Sunnudagur
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir sýn-
ing á málverkum Karls Jóhanns Jóns-
sonar. Sýninguna nefnir hann Albúm.
Í Sverrisal Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
stendur yfir sýning á verkum Kristins
Pálmasonar, Gulleik Lövskars og Bald-
urs J. Baldurssonar. Sýninguna nefna
listamennirnir Andrúm.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
valið verk eftir fjölmarga myndlistar-
menn á sýninguna Þetta vil ég sjá í
Gerðubergi.
Á mörkum málverksins er sameig-
inleg yfirskrift þriggja sýninga í Listasafni
Íslands. Ragna Róbertsdóttir sýnir verk
úr vikri og muldu gleri, Mike Bidlo sýnir
eftirmyndir af frægustu málverkum 20.
aldarinnar og Claude Rutault sýnir
„málverk sem eru í sama lit og veggur
sýningarsalarins“. Opið 11-17.
Anna Líndal sýnir þrjú verk í nýju
sýningarrými í kjallara Listasafns Ís-
lands. Eitt verkanna er sérstaklega unn-
ið inn í þetta rými. Hin verkin eru inn-
setning frá 1999-2000 og vídeóverk frá
árinu 2002. Opið 11-17.
Andlitsmyndir og afstraksjónir
nefnist sýning á verkum Sigurjóns
Ólafssonar í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar.
Hugarleiftur er yfirskrift á samvinnu-
verkefni bandarísku myndlistarkonunnar
Diane Neumaier og gríska rithöfundar-
ins Christos Chrissopoulos, sem nú er
sýnt í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi. Opið 10-17.
Á fimmtudaginn var opnuð í Þjóð-
menningarhúsinu sýning á verkum
Gríms Thomsen, sem er skáld mánað-
arins að þessu sinni. Á sýningunni gefur
að líta bækur höfundar, bréf og eigin-
handrit auk mynda, en á Skólavefnum
er stutt æviágrip skáldsins og valin ljóð
með skýringum.
„Atburðir undanfarinna ára hafa
sáð fræjum tortryggni í garð
þessa menningarheims. Þess
vegna viljum við gefa fólki kost á
áhugaverðri umfjöllun um ís-
lamska trú og samskipti múslima
og Vesturlandabúa,“ segir Petrína
Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
AFS á Íslandi.
Samtökin hafa það markmið að
auka samskipti og skilning milli
ólíkra menningarheima. Þetta
gera þau bæði með nemendaskipt-
um og fræðslustarfsemi af ýmsu
tagi.
Í dag efna samtökin til opins
málþings um Islam og Íslendinga
í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu.
Frummælendur verða séra Þór-
hallur Heimisson, Irid Agoes frá
AFS í Indónesíu og Salmann
Tamimi, formaður Félags músli-
ma á Íslandi.
„Maður finnur það bara hjá
sjálfum sér hvað þetta snertir
okkur á margan hátt. Áður spáði
maður kannski ekki mikið í hver
trúarbrögðin væru hjá fólki en nú
eru alls konar ranghugmyndir í
gangi vegna þróunar síðustu ára.
Og þær ranghugmyndir eru vissu-
lega gagnkvæmar.“ ■
PETRÍNA ÁSGEIRSDÓTTIR
Opið málþing verður um Islam og Íslendinga í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu klukkan
hálfþrjú í dag.
Sigrast á
tortryggni
✓