Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 8. mars 2003 Tóný Sópranó: Reynir að losna undan samningi SJÓNVARP James Gandolfini, sem leikur hinn andlega þjakaða mafíu- foringja Tóný Sópranó, hefur stefnt HBO-sjónvarpsstöðinni fyrir samn- ingsbrot sem hann telur hafa orðið til þess að hann þurfi ekki að leika í fimmta árgangi þessara vinsælu þátta, þar sem sér hafi ekki verið tjáð að framleiðandinn, David Chase, fái 20 milljónir dollara fyrir næstu þáttaröð. Talsmenn HBO segja þetta koma á óvart og telja Gandolfini vilja bæta samnings- stöðu sína og gera ráð fyrir að hann mæti til starfa þann 24. mars. ■ JAMES GANDOLFINI Lögfræðingur leikarans segir hann alls ekki hafa útilokað frekari þátttöku í The Sopranos en hann telji sig engu að síður lausan allra mála. TONY BLAIR Lenti í klemmu þegar 25 ára gamall Svíi sagðist geta útbúið miltisbrandsbréf inni á baðherbergi og spurði hann í framhaldinu hvort það gæfi honum ekki tilefni til að ráðast á Svíþjóð. Tony Blair: Tekinn í bakaríið á MTV SJÓNVARP Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, komst heldur betur í hann krappan þegar hann mætti í klukkustundarlangan um- ræðuþátt á tónlistarstöðinni MTV á dögunum. Yfirskrift þáttarins var „Er stríð svarið?“ og var ungt fólk frá öllum heimshornum mætt til þess að ræða Íraksdeiluna við ráðherrann. Blair hóf fundinn með því að segjast hlakka til „ánægjulegrar umræðu“ en fékk svo frekar harkalega útreið hjá unga fólkinu sem sagði hann meðal annars ganga þvert á almenningsálit í Íraksmálinu. ■ SHARON STONE Er ein þeirra alþjóðlegu stjarna sem eru staddar á ítölsku söngvakeppninni Festival di Sanremo í Sanremo. Sjónvarpsútsend- ingum frá keppninni, sem hafa staðið yfir síðustu daga í ítalska ríkissjónvarpinu, lýk- ur í kvöld.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.