Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 38
Nýju rúmin í fangelsinu á Kvía-bryggju. Kosta fangelsisyfir-
völd ekki neitt. Allt sem þarf er
atorkusamur fangi sem sættir sig
ekki við ríkjandi ástand og krefst
endurbóta. Þó að hann þurfi að
vinna verkið sjálfur. Notar síma-
tíma fangelsisins til að leita hag-
stæðra tilboða og lætur svo Rauða
krossinn um afganginn. Fyrir-
myndarfangi og þó að hann kosti
sitt þá eru rúmin ókeypis. Og
þetta er aðeins byrjunin.
38 8. mars 2003 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS ÁFANGI
Við hjónin vorum stödd uppíVeiðivötnum fyrir nokkuð
mörgum árum. Það var búið að
rigna heil ósköp alla nóttina og
það var hávaða rok. Dagurinn
byrjaði á því að ég datt í drullu
fyrir utan tjaldið en við byrjuðum
svo veiðina í Skálavatni þennan
suddamorgun. Ég setti flugu á og
byrjaði að reyna að kasta í rokinu.
Óvænt vindhviða feykti flugunni
svo hún lenti á kaf í veiðivestinu.
Hún var svo föst að ég varð að
skilja hana eftir þar. Ég ákveð að
kasta út maðki með sökku. Set á
tvo rígvæna skoska maðka. Kasta
út, önnur vindhviða skellir „buff-
inu“ beint í hnakkann á mér. OK.
Þetta er bara einn af þessum dög-
um.
En vandræði mín voru ekki á
enda. Við færðum okkur yfir í
svona samliggjandi gíga. Konan
prófaði í öðrum gígnum en ég
færði mig yfir í hinn. Ekkert að
hafa. Á leið til konunnar ákveð ég
að stytta mér leið yfir svona
skriðuháls. Nema hvað að ég
byrja að renna niður, á rassinum,
og stefni beint ofan í vatnið fyrir
neðan. En sem betur var smá sylla
meðfram vatninu þannig að ég fór
ekki á bólakaf.
Eftir þessar hrakningar þótti
mér tími til að taka smá pásu. Á
leið upp í tjald finn ég að ég er að
fá einhverja magakveisu, hleyp
upp að salernisaðstöðunni og
mátti greinilega engan tíma
missa. Slepp inn og loka á eftir
mér. En þá kom í ljós að flugan,
sem ég hafði fengið í veiðivestið,
hafði farið í gegnum vöðlurnar og
í peysuna og allt sat fast. Á endan-
um náði ég þó að rífa allt laust en
hef upp frá þessu verið „hooked“
á fluguveiði.“ ■
Björgvin Gíslason segir frá háskalegri
fluguveiðiferð og ormaflækju og skorar á
Kormák Geirharðsson að segja næstu sögu.
Sagan
Örlagaríkt flugukast
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
BJÖRGVIN GÍSLASON
„En þá kom í ljós að flugan, sem ég hafði
fengið í veiðivestið, hafði farið í gegnum
vöðlurnar og í peysuna og allt sat fast.“
Gamli maðurinn var í strætóþegar pönkari, leðurklæddur
með nælur í kinninni og móhík-
anatopp í öllum regnbogans litum,
settist í sætið á móti honum. Hann
gat ekki stillt sig um að virða
unga manninn fyrir sér og pönk-
arinn spurði: „Hvað er að þér,
gamli ’addna? Ertu með störu?
Gerðir þú aldrei neitt brjálað þeg-
ar þú varst ungur?“
„Jújú,“ svaraði sá gamli að
bragði. „Ég var í siglingum og eitt
sinn drakk ég mig svo stjörnufull-
an að ég svaf hjá páfagauki. Ég
var að velta því fyrir mér hvort
þú værir minn týndi sonur.“
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Ég er ótrúlega
spenntur. Það er búið að vinna að
þessu svo fáránlega lengi að ég
trúi því varla enn að þetta sé að
gerast,“ segir Salvar Halldór
Björnsson, framkvæmdastjóri
fyrstu viðurkenndu boxkeppn-
innar sem hér hefur farið fram
síðan á árinu 1956 – en í kvöld
munu Ísland og Danmörk eigast
við í hnefaleikum.
Salvar segir alla þá sem keppa
fyrir Íslands hönd eiga fullt er-
indi og framtíð hnefaleika á hér-
lendis sé virkilega björt. Salvar á
ættir að rekja, eins og svo marg-
ir Íslendingar, um land allt. For-
eldrar hans eru Björn Halldórs-
son lögreglufulltrúi og Árnína
Guðbjörg Sumarliðadóttir.
„Margir með skrýtin nöfn í fjöl-
skyldunni.“ Salvar er langelstur
þriggja bræðra. Árni Björn og
Egill Birnir eru yngri. Sjálfur er
hann faðir tveggja barna, Sölva
Dór tveggja ára á hann með sam-
býliskonu sinni Silvíu Sölvadótt-
ur og Nínu Dögg sem er fjögurra
ára.
Salvar starfar sem fram-
kvæmdastjóri markaðsfyrirtæk-
is sem ber nafnið Risi. „Þetta er
magnað nafn sem hæfir fyrir-
tækinu vel en við störfum meðal
annars við símasölu og seljum
allt milli himins og jarðar.“
Salvar er mikill áhugamaður
um bardagaíþróttir, hann hefur
keppt í karate og óskráðum bar-
dögum í hnefaleikum. Hann er í
þungavigt líkt og hans eftirlætis
boxari. „Eða, sko, ég var Mike
Tyson-maður en það er eiginlega
búið að eyðileggja hann fyrir
mér. Ég segi bara Tyson þegar
hann var og hét og þá sem
íþróttamaður en ekki karakter.
Önnur áhugamál fyrir utan bar-
dagaíþróttir eru náttúrlega
ferðalög og lestur góðra bóka.
Sígilt svar og maður er ekkert að
breyta því sem virkar.“ ■
Tyson-maður – meðan
hann var og hét
Salvar Halldór Björnsson er framkvæmdastjóri fyrstu viðurkenndu
hnefaleikakeppninnar sem hér fer fram síðan 1956.
SALVAR HALLDÓR BJÖRNSSON
Segir hnefaleikakeppnina hafa verið svo
fáránlega lengi í undirbúningi að hann trúi
því varla enn að þetta sé að gerast.
MIKE TYSON
Salvar hélt upp á Tyson sem íþrottamann,
ekki sem karakter.