Fréttablaðið - 08.03.2003, Síða 39
Kastljósið er með vinsælustusjónvarpsþáttum landsins og
vís vegur til frama er að halda þar
um stjórnartauma eins og sjá
mátti í margívitnaðri könnun
Fréttablaðsins um vinsælustu fjöl-
miðlamennina. Þar var Gísli Mart-
einn Baldursson á toppnum og of-
arlega á lista voru einnig þau Eva
María Jónsdóttir sem og Kristján
Kristjánsson. Útvarpsmenn komu
hins vegar herfilega út úr könnun-
inni en nú kann að vænkast hagur
tveggja úr þeim ranni. Heyrst hef-
ur að þau Sveinn Guðmarsson og
Svanhildur Hólm Valsdóttir, sem
eru í Gettu betur, kunni svona
ljómandi vel við sig í sviðsljósinu
og séu bæði að hverfa af Rás 2 og
í Kastljósið. Eva María mun vera
á leið í fæðingarorlof en hvort
annar þeirra Sigmars Guðmunds-
sonar og Kristjáns sé að hætta eða
hvort um er að ræða sumarafleys-
ingar er ekki vitað.
Akureyringurinn Stefán Frið-rik Stefánsson er einn ötul-
asti talsmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Netinu. Hann heldur
úti sinni eigin heimasíðu þar
sem hann mærir störf flokksins
auk þess sem hann úttalar sig á
Innherjaspjallinu á Vísi.is af
miklum móð. Þá birtir hann
greinar á www.frelsi.is og
www.islendingur.is. Hann hefur
einnig birt sjö greinar á Press-
unni á Strikinu en segir þær
ekki verða fleiri þar sem rit-
stjórinn Ásgeir
Friðgeirsson, fram-
bjóðandi Samfylk-
ingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi,
gæti ekki lengur
hlutleysis. „Hlut-
drægni Pressunnar er algjör og
fer ekki á milli mála. Er slæmt
að Ásgeir geti ekki haldið per-
sónulegu framboði sínu fyrir
utan þennan fréttavef um póli-
tík sem hann var. Pressan er nú
aðeins harðsvíruð maskína einn-
ar skoðunar gegn öðrum.“
Stefáni er mikið niðri fyrirþegar hann gerir grein fyrir
afstöðu sinni á bloggsíðu sinni:
„Er svo komið að ekki er hægt
að taka mark á Pressunni sem
fréttavef heldur áróðursmask-
ínu þingframbjóðanda, nokkurs-
konar bloggsíðu hans í barátt-
unni,“ segir Stefán, sem getur
ekki, samvisku sinnar vegna,
haldið skrifunum á Pressunni
áfram. „Ég skrifaði þar í þeirri
trú að vefurinn væri vettvangur
ólíkra skoðana og umfjöllunar
um stjórnmál frá öllum hliðum.
Þegar ég varð þess áskynja að
vefurinn væri að breytast í
áróðursvef gegn mínum skoðun-
um sá ég mér ekki fært að
skrifa þar. Það er ekki minn
stíll að vera þátttakandi í opn-
um frétta- og fjölmiðlavef sem
traðkar á öllum skoðunum nema
þeim sem ritstjórinn aðhyllist.“
JARÐARFARIR
14.00 Guðfinna T. Guðnadóttir frá
Brautartungu, Lundarreykjadal,
verður jarðsungin frá Lundakirkju.
14.00 Guðmundur Kristinsson frá Ný-
höfn verður jarðsunginn frá Snart-
arstaðakirkju.
14.00 Kristín Hermundsdóttir frá
Strönd, Vestur-Landeyjum, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
14.00 Margrét Elín Ólafsdóttir, Tún-
götu 51, Eyrarbakka, verður jarð-
sungin frá Eyrarbakkakirkju.
14.00 Unnur Þórarinsdóttir frá Miðbæ
verður jarðsungin frá Þingeyrar-
kirkju.
ANDLÁT
Hannes H. Garðarsson, Gaukshólum 2,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 5. mars.
Sigurður Siggeirsson frá Læk, Ölfusi,
lést miðvikudaginn 5. mars.
39
Að gefnu tilefni skal tekið fram að jarð-
göng frá Grundarfirði til Vestmannaeyja
eru ekki á nýrri vegaáætlun.
Leiðrétting
TÍMAMÓT
LAUGARDAGUR 8. mars 2003
Með AVIS kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000
Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging,
vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við
lágmarksleigu 7 daga).Ekkert bókunargjald.
Bretland kr.2.900,- á dag m.v. A flok
Danmörk kr.3.700,- á dag m.v. A flok
www.avis.is
Við
gerum
betur
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Cialis.
Árni Sigfússon.
Adaptation.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.SKAUTAÐ Í KAUPMANNAHÖFN
Það hefur verið skítakuldi í Kaupmannahöfn undanfarið og því hafa borgarbúar fengið ólíkt fleiri tækifæri en Reykvíkingar til að renna
sér á skautum í vetur. Það var fimm stiga frost í borginni í síðustu viku og þá gripu þessar stöllur auk fjölda annarra tækifærið og
skautuðu hringinn í kringum Kóngsins Nýjatorg.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI