Fréttablaðið - 13.03.2003, Qupperneq 8
127 út í kuldann
Það verður ekkert mál að finna
hæfan starfsmann.
Gerður Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri Úti-
lífs, en 128 manns sóttu um verslunarstjórastarf
í búðinni. Morgunblaðið, 11. mars.
Út að pissa
Þar var að vísu merkt WC og ör
sýndi leiðina út úr byggingunni!
Sigrún Gísladóttir fann ekki klósett á Eiðis-
torgi. DV, 11. mars.
Fréttir úr samsærinu mikla
Hann, sem mesta ábyrgð ber á
því að viðhalda trú almennings
á stjórnsýslu og stjórnmálum,
hjó að rótum stjórnkerfis-
ins og fórnaði trúverðug-
leika þess á altari póli-
tískra skammtíma-
hagsmuna.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir um Davíð Odds-
son. politik.is,
10. mars.
Orðrétt 8 13. mars 2003 FIMMTUDAGUR
■ Evrópa
■ Stjórnmál
HEILSA Guðmundur Björnsson,
fyrrum yfirlæknir Heilsustofnun-
arinnar í Hveragerði, hefur fest
kaup á einni glæsilegustu líkams-
og heilsuræktarstöð á landinu;
Mecca Spa við Nýbýlaveg í Kópa-
vogi. Auk yfirlæknisstarfa sinna í
Hveragerði er Guðmundur þekkt-
ur fyrir að hafa skrifað fræga
megrunarbók í félagi við Ásmund
Stefánsson, fyrrum forseta ASÍ:
„Ég er að láta gamla drauma
rætast,“ segir Guðmundur, sem
breytt hefur nafni stöðvarinnar í
Saga-heilsa Spa. „Ég hætti í Hvera-
gerði fyrir þremur árum og leigði
kontór við Laugaveginn. Þar sat ég
fyrst einn, réð síðan hjúkrunar-
konu, svo sjúkraþjálfara og nú er
þetta orðið svona,“ segir hann.
Í Kópavogi ætlar Guðmundur
að reka alhliða heilsumiðstöð og
heilbrigðistengda ferðaþjónustu
með öllu sem því tilheyrir.
Heilsumiðstöðin við Nýbýlaveg er
ein sú best búna í landinu og þar er
einnig sundlaug. Rekstur Mecca
Spa var að komast í þrot og keypti
Guðmundur tæki og tól af lánar-
drottnum og stefnir að því að eign-
ast einnig húsnæðið. Ætlar hann að
safna um sig fjárfestum í því
skyni: „Þetta er gaman. Ég opna al-
veg á næstunni,“ segir hann. ■
LEIGUHÚSNÆÐI Hækkun tekju- og
eignamarka er eins helsta skýr-
ingin á þeirri sprengingu sem
orðið hefur í umsóknum um fé-
lagslegt leiguhúsnæði í Reykja-
vík, að mati Sig-
urðar Helga Guð-
jónssonar, for-
manns Húseig-
endafélagsins.
Umsóknum um
félagslegt leigu-
húsnæði í borginni fjölgaði um
53% milli áranna 2001 og 2002. Í
fyrra sótti 881 um húsnæði en
164 fengu úthlutað íbúð. Þetta
kemur fram í skýrslu um stefnu
í uppbyggingu leiguhúsnæðis í
Reykjavík.
„Þegar fólk með meðaltekjur
á orðið kost á því að sækja um fé-
lagslegt leiguhúsnæði, eins og
reyndin er í dag, þá er eitthvað
að kerfinu,“ segir Sigurður
Helgi. „Það er ekki verið að að-
stoða þá sem þurfa á aðstoðinni
að halda.“
Þann 1. janúar árið 2002 voru
mörkin hækkuð verulega og
máttu árstekjur einstaklinga t.d.
vera 44% hærri en áður og árs-
tekjur hjóna og sambýlisfólks
um 60% hærri. Um síðustu ára-
mót voru mörkin svo aftur hækk-
uð og uppfærð til samræmis við
hækkun á neysluverðsvísitölu.
Sigurður Helgi gagnrýnir
einnig harðlega að Húseigenda-
félagið hafi ekki verið haft með í
ráðum þegar unnið var að gerð
skýrslunnar. Félagið hafi undan-
farin 80 ár gætt hagsmuna leigu-
sala og búi því yfir mikilli
reynslu og þekkingu á húsaleigu-
málum.
„Þrátt fyrir það þótti ekki
ástæða til að leita til félagsins
fyrr en korteri fyrir verklok með
stuttu símtali. Virtist það vera til
málamynda í reddingarskyni. Ég
hef farið yfir þessa skýrslu. Þar
eru engin ný sannindi, engin ný
sýn, engar nýjar lausnir. Mest er
þetta félagsleg froða og lopa-
teygingar.“
Sigurður Helgi segir að
starfshópurinn hafi örugglega
verið ágætlega fær um að fjalla
um húsaleigumál frá félagslegu
sjónarhorni. „Hins vegar skortir
á þekkingu og viðhorf viðvíkj-
andi almenna leigumarkaðinn
sem Húseigendafélagið og fleiri
aðilar hefðu getað bætt úr ef
þess hefði verið óskað. Þess í
stað er slíkri þekkingu afneitað
og úthýst að mestu leyti og er
það miður en þó verst fyrir
skýrsluna og starfshópinn sjálf-
an. Trúverðugleiki og gildi
skýrslunnar hvað varðar al-
menna leigumarkaðinn bíður
hnekki þegar vinnubrögðin eru
svona.“
trausti@frettabladid.is
BJARGAÐ ÚR FANGELSI Glæpa-
flokkur skaut að varðmönnum
fyrir utan
fangelsi í út-
hverfi París-
ar og gerði
göt á varn-
armúrinn
með
sprengjuvörpum til þess að frel-
sa meintan glæpamann. Þetta er í
annað skipti á innan við viku sem
flótti úr fangelsi kemst í fréttir í
Frakklandi og sjá yfirvöld sig nú
tilneydd til að bæta öryggi í fang-
elsum landsins.
KÓKAÍN Í SKEMMTIFERÐASKIPI
Tollgæslan í Southampton í
Englandi fann 20 kíló af kókaíni í
farangri skemmtiferðaskips sem
var að koma frá Suður-Ameríku
og Karíbahafi. Götuverðmæti
efnisins er talið vera ein milljón
punda eða um 125 milljónir ís-
lenskra króna. Þrír menn hafa
verið handteknir vegna málsins.
HÆTTULEGUR LEIKUR Tveir ungir
bræður létu lífið þegar hand-
sprengja sprakk í garðinum fyrir
utan heimili þeirra í borginni
Samac í Bosníu. Drengirnir,
þriggja og sjö ára, voru að leika
sér með sprengjuna þegar hún
skyndilega sprakk í höndum
þeirra. Að sögn lögreglu var
handsprengjan í eigu föður
drengjanna.
SJÁVARÚTVEGUR Líkur eru á því að
veiðiheimildur á skelfiski í Breiða-
firði verði dregnar stórlega saman
fyrir næstu vertíð, þar sem stofn-
inn gengur nú í gegnum niður-
sveiflu. Um hundrað manns starfa
við veiðar og vinnslu á skelfiski í
Stykkishólmi hjá fyrirtækinu Sig-
urði Ágústssyni ehf. og mun fyrir-
tækið sækja á önnur mið ef svo fer
sem horfir með skelina.
„Við krossleggjum fingurna og
vonum að niðursveiflan reynist
skammvinn. Hafrannsóknastofnun
hefur látið að því liggja að engar
veiðar verði leyfðar á skelfiski
næstu vertíð, en rannsóknir í vor
og sumar gætu leitt annað í ljós,“
segir Sigurður Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Um tuttugu Pólverjar hafa
starfað vertíðarbundið við skel-
fiskvinnslu í Stykkishólmi og er
fyrirliggjandi að vinnuafl verður
ekki flutt inn áfram ef ástand
stofnsins skánar ekki. Sigurður
segir að fyrirtækið muni kaupa
eða leigja kvóta ef hlé verður gert
á skelfiskveiði.
„Ef skelin bregst sækjum við
annan veiðiskap Það er þó mikil-
vægt að við fáum að veiða ein-
hvern skelfisk til að viðhalda
mörkuðum og þekkingu á vinnsl-
unni, auk þess sem hægt er að
fylgjast betur með stofninum ef
veiði heldur áfram,“ segir hann.
Ljóst er að brotthvarf skelfisks-
ins og Pólverjanna mun hafa
keðjuverkandi áhrif í bænum, þar
sem bæjarfélagið missir útsvar og
þjónustuaðilar við skelfiskvinnsl-
una verða af viðskiptum. ■
Félagslega leigu-
íbúðakerfið gallað
Formaður Húseigendafélagsins segir hækkun tekjumarka meginorsök
sprengingar í umsóknum um félagslegar leiguíbúðir. Hann gagnrýnir
vinnubrögð starfshóps sem skipaður var til að fjalla um leigumarkaðinn. SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON
Formaður Húseigendafélagsins gagnrýnir
harðlega að Húseigendafélagið hafi ekki
verið haft með í ráðum þegar unnið var að
gerð skýrslunnar.
HÆST HLUTFALL FÉLAGSLEGRA ÍBÚÐA Í EFRA BREIÐHOLTI
Umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði í borginni fjölgaði um 53% milli áranna 2001 og
2002. Í fyrra sótti 881 um húsnæði en 164 fengu úthlutað íbúð. Um 19% allra félagslegra
íbúða í borginni eru í Grafarvogi, eða um 24% allra íbúða í hverfinu. Flestar félagslegar
íbúðir eru hins vegar í Efra Breiðholti.
■
„Mest er
þetta félagsleg
froða og lopa-
teygingar.“
TEKJU- OG EIGNAMÖRK SKIPT EFTIR TÍMABILUM
Eldri mörk 2002 2003
Árstekjur einstaklinga 1.540.000 2.213.000 2.258.000
Árstekjur hjóna/sambýlisfólks 1.925.000 3.099.000 3.162.000
Viðbót v. barna yngri en 20 ára 257.000 370.000 378.000
Eignamörk 1.900.000 2.390.000 2.438.000
Blikur á lofti með skelfiskveiði:
Hundrað störf að
veði í Stykkishólmi
FRÁ STYKKISHÓLMI
Ótti er um umtalsvert atvinnulesyi.
Draumar rætast í Kópavogi:
Læknir kaupir
Mecca Spa
Á NÝBÝLAVEGINUM
Draumaferð úr Hveragerði í Kópavog
með viðkomu á Laugavegi. Guðmundur
Björnsson ásamt rekstrarstjóra sínum,
Kristmanni Hjálmarssyni.
Morð á börnum:
Myrt og
líkin limlest
TEXAS, AP Mikinn óhug setti að íbú-
um Brownsville í Texas þegar
limlest lík þriggja ungra barna
fundust í lítilli íbúð í bænum.
Yngsta barnið, sem var eins árs
gamall drengur, fannst liggjandi
í rúmi og hafði höfuð hans verið
skorið af. Lík hinna barnanna
tveggja lágu í plastpokum á gólf-
inu.
Foreldrar barnanna hafa verið
færðir til yfirheyrslu en rann-
sókn málsins er enn á byrjunar-
stigi. Nákvæm dánarorsök liggur
enn ekki fyrir og eins er óljóst
hvort börnin voru myrt í íbúðinni
eða líkin flutt þangað síðar. ■
AFHENDIR SKIPUNARBRÉF Jón
Baldvin Hannibalsson hefur af-
hent Vairu Vike-Freiberga, for-
seta Lettlands, skipunarbréf sitt
sem sendiherra Íslands í Lett-
landi. Jón Baldvin hefur sem fyrr
aðsetur sitt í Helsinki.