Fréttablaðið - 13.03.2003, Qupperneq 10
DÝR FIÐURFÉNAÐUR
Kjúklingakaupmaðurinn Gulam Mohammad
situr ofan á búri og bíður eftir viðskiptavin-
um í borginni Kabúl í Afganistan. Kjúklingar
eru sannkölluðu munaðarvara í Kabúl og
aðeins á færi efnaðra borgara að hafa slíkt
kjöt á boðstólum enda kosta fuglarnir
sjaldnast undir 500 íslenskum krónum.
10 13. mars 2003 FIMMTUDAGURAFGANISTAN
Frá hugmynd
að fullunnu verki
Rennismíði Hönnun: Gísli B.
STJÓRNSÝSLA Eigendur Heiðarfjalls
á Langanesi telja ríkissaksóknara
ófæran um að gegna embættis-
skyldum í máli þeirra gegn
Bandaríkjunum.
Þeir hafa leitað til
Sólveigar Péturs-
dóttur dómsmála-
ráðherra um að
skipa sérstakan
saksóknara frá út-
löndum í málið.
Á Heiðarfjalli
var radarstöð
Bandaríkjahers
lögð niður fyrir
rúmum 30 árum.
Að sögn eigenda
fjallsins var þar skilið eftir mjög
mikið magn af mengandi úrgangi.
Þennan úrgang vilja þeir að
Bandaríkjamenn fjarlægi eða búi
um á forsvaranlegan hátt.
Bandarísk stjórnvöld hafa
hunsað kröfuna. Íslensk yfirvöld
hafa ekki viljað taka málið upp.
Nú síðast neitaði ríkissaksóknari
að aðhafast í málinu og eru land-
eigendur að kæra þá ákvörðun til
dómsmálaráðherra.
„Nokkuð ljóst er nú orðið að
ríkissaksóknari er ófús eða ófær
um eða hefur ekki þor til að sak-
sækja háttsetta bandaríska emb-
ættismenn. Sérstaklega þar sem
þeir eru erlendir og frá voldug-
asta ríki heims og ímynda menn
sér að þeir séu að koma fram af
kurteisi við hina erlendu aðila og
gera þeim greiða. Embætti sak-
sóknara íslenska ríkisins hefur
brotnað saman. Ennfremur mun
ástæðan vera sú að hagsmuna-
árekstrar íslenskra ríkisins virð-
ast vera í málinu,“ segir í viku-
gömlu bréfi landeigenda til dóms-
málaráðherra.
Landeigendurnir segja að
meðal annars í ljósi ofangreindra
fullyrðinga sinna um stöðu mála
hjá ríkissaksóknara séu lagaskil-
yrði fyrir því að dómsmálaráð-
herra fái nýjan saksóknara til að
koma að Heiðarfjallsmálinu. Sak-
sóknarinn þyrfti að vera útlend-
ur, frá einhverju nágrannaríkja
okkar. Fyrirmynd að þessu sé til
dæmis að finna í sérstakri rann-
sóknarnefnd flugslysa sem nú
rannsakar flugslysið í Skerja-
firði. Útlendingar séu í meiri-
hluta í þeirri nefnd.
„Hin heimildarlausu og ólög-
legu afnot eru sífellt áreiti og yf-
irgangur, valda tjóni og veruleg-
um óþægindum og er brot gegn
mannúð,“ segja eigendur Heiðar-
fjalls um ástandið á landareign
sinni.
„Málið er til skoðunar og úr-
vinnslu í ráðuneytinu. Það er á
þessum tímapunkti ekki hægt að
segja til um hvenær niðurstöðu
er að vænta,“ segir Ingvi Hrafn
Óskarsson, aðstoðarmaður ráð-
herra.
gar@frettabladid.is
SÉR Á BÁTI
Selurinn vinsæli „Tama-chan“ er sáttur við
sín nýju heimkynni í Tama-ánni í Japan og
vill hvergi fara þrátt fyrir að áin sé menguð
og hitastig vatnsins talsvert hærra en á
hans náttúrulegu heimaslóðum.
Sérlundaður selur:
Unir sér vel
í mengaðri á
TÓKÍÓ, AP Mikil reiði greip um sig
meðal íbúa Tókíó þegar dýra-
verndunarsinnar reyndu að fanga
sel sem hefst við í einni af meng-
uðust ám Japans. Selurinn vann
hjörtu þjóðarinnar á síðasta ári
þegar hann villtist frá norðlægum
heimkynnum sínum og endaði í
Tama-ánni, sem er í yfir þúsund
kílómetra fjarlægð frá heimaslóð-
unum.
Selurinn nýtur mikilla vin-
sælda í Japan og hafa leikföng
honum tengd selst eins og heitar
lummur auk þess sem hann hefur
verið gerður að heiðursborgara í
einu af úthverfum Tókíó. Borgar-
búar voru því ekki alls kostar sátt-
ir þegar dýraverndunarsinnar
ákváðu að reyna að flytja selinn
aftur norður á bóginn og fengu
þeir það í gegn að selurinn yrði
látinn í friði. ■
Klónun manna:
Bannað
að veita
einkaleyfi
ALÞINGI Ekki má veita einkaleyfi á
aðferðum við að klóna menn eða
breyta erfðaeiginleikum kyn-
fruma manna, samkvæmt þings-
ályktunartillögu um breytingar á
viðauka við EES-samninginn sem
fjallað var um á Alþingi.
Einnig er bannað að veita
einkaleyfi á notkun fósturvísa í
hagnaðarskyni eða á öðrum upp-
finningum sem stríða gegn alls-
herjarreglu eða siðgæði.
Tilskipunin um lögvernd upp-
finninga í líftækni samræmir
ákvæði um einkaleyfishæfi upp-
finninga á þessu sviði. Með
ákvæðum tilskipunarinnar er
skýrt nánar á hverju er hægt að fá
einkarétt á sviði líftækni. ■
ALÞINGI Hlutfall fanga sem eru
háðir vímuefnum hefur farið vax-
andi. Jón Kristjánsson heilbrigð-
ismálaráðherra sagði á Alþingi í
gær að geðrænn vandi fanga og
fíkniefnavandi væri oft mjög
samofinn. Úrræði um meðferð
þyrftu að taka mið af því.
Katrín Fjeldsted, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, spurði ráð-
herra að því hvort hann teldi að
bæta þyrfti þá áfengis- og vímu-
efnameðferð sem stæði afplánun-
arföngum til boða. Enn fremur
spurði hún hvernig samstarfi
milli heilbrigðisþjónustu og fang-
elsisyfirvalda væri háttað.
Ráðherra sagðist álíta að gott
samstarf væri milli heilbrigðis-
þjónustunnar og fangelsisyfir-
valda, en benti jafnframt á að að-
koma heilbrigðisþjónustunnar að
þessum málaflokki væri í sífelldri
skoðun. Hann sagði að það færðist
í vöxt að fangar fengju heimild til
að ljúka afplánun á meðferðar-
stofnunum. Katrín varpaði þá
fram þeirri spurningu hvort ekki
væri ráðlegra að hefja meðferð
sem fyrst, en ekki bara undir lok
afplánunar. Ráðherra tók undir
það og sagði ráðuneytið vera til-
búið til viðræðna við fangelsisyf-
irvöld um það hvernig þessu væri
best háttað. ■
Óhefðbundnar lækningar:
Áhyggjur
af nefndar-
starfi
ALÞINGI Lára Margrét Ragnars-
dóttir, Sjálfstæðisflokki, hefur
áhyggjur af því að nefnd sem á að
gera úttekt á stöðu óhefðbundinna
lækninga geti ekki skilað af sér á
réttum tíma.
Á Alþingi sagði hún að nefndin
hefði aðeins komið saman tvisvar
til þrisvar síðan hún var skipuð.
Heilbrigðisráðherra sagði nefnd-
ina hafa komið saman seint á síð-
asta ári. Hann vissi ekki annað en
hún myndi skila áfangaskýrslu 1.
apríl og niðurstöðum 1. október. ■
Rætt um fíkniefnavanda íslenskra fanga á Alþingi:
Fleiri fangar
háðir fíkniefnum
LITLA-HRAUN
Heilbrigðisráðherra sagðist álíta að gott
samstarf væri milli heilbrigðisþjónustunnar
og fangelsisyfirvalda, en benti jafnframt á
að aðkoma heilbrigðisþjónustunnar að
þessum málaflokki væri í sífelldri skoðun.
Á HEIÐARFJALLI
„Hin heimildarlausu og ólöglegu afnot
eru sífellt áreiti og yfirgangur, valda tjóni
og verulegum óþægindum og er brot
gegn mannúð,“ segja eigendur Heiðar-
fjalls um ástandið á landareign sinni.
Eigendur Heiðarfjalls á Langanesi segja ríkissaksóknara ófæran um að
taka á máli þeirra gegn bandarískum yfirvöldum um frágang úrgangs á
fjallinu. Þeir vilja að dómsmálaráðherra fái útlendan saksóknara í málið.
SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR
Dómsmálaráðherra hefur einu sinni skipað
sérstakan saksóknara samkvæmt ákvæði
sem sett var árið 2001 inn í lög um með-
ferð opinberra mála. Það var þegar ráð-
herrann skipaði saksóknara sem rannsak-
aði hvernig Magnús Leopoldsson dróst inn
í Geirfinnsmálið.
„Nokkuð ljóst
er nú orðið að
ríkissaksóknari
er ófús eða
ófær um eða
hefur ekki þor
til að saksækja
háttsetta
bandaríska
embættis-
menn.“
Vilja útlendan
saksóknara