Fréttablaðið - 13.03.2003, Qupperneq 20
■ ■ FUNDIR
12.00 Rabbfundur Rannsókna-
stofu í kvennafræðum verður haldinn í
stofu 101 í Lögbergi. Þorgerður Þor-
valdsdóttir kynja- og sagnfræðingur flyt-
ur erindið: Í hár saman - kynjamenn-
ing á hárgreiðslu- og rakarastofum.
12.20 Kristín Jónsdóttir meina-
tæknir flytur erindi á fræðslufundi
Keldna, sem haldinn verður í bókasafni
Keldna. Erindið fjallar um kynsjúkdóma-
bakteríuna Chlamidia Trachomatis.
16.00 Málþing um þjóðernis-
hyggju og Evrópusambandið í Háskóla
Íslands í Lögbergi, stofu 101, í samstarfi
við breska sendiráðið. Aðalfyrirlesari
verður Brendan O’Leary, þekktur og af-
kastamikill fræðimaður á þessu sviði.
Stutt innlegg flytja enn fremur Guð-
mundur Hálfdanarson sagnfræðingur
og Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins.
16.15 Málstofa verður haldin um
Íshafsleiðina milli Evrópu og Asíu í
Háskóla Íslands, húsi VR-II við Hjarðar-
haga, stofu 157. Frummælendur eru
Gestur Ólafsson arkitekt og Þór Jak-
obsson veðurfræðingur.
16.30 Danski bókmenntafræðing-
urinn Dag Heede flytur fyrirlestur í Aðal-
byggingu Háskóla Íslands, stofu 1, þar
sem hann bregður ljósi hinseginfræða á
danska bókmenntasögu. Fyrirlesturinn
fer fram á dönsku og eru allir velkomnir.
20.30 Andstæðingar virkjanafram-
kvæmda á hálendinu verða með ljósa-
gjörning á Austurvelli. Kveikt verður á
einu kerti fyrir hvern alþingismann og
síðan slökkt á 54 kertum, jafnmörgum
og greiddu atkvæði með framkvæmd-
um á hálendinu.
■ ■ TÓNLIST
19.30 Hallfríður Ólafsdóttir
verður vopnuð fjórum flautum á tón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í kvöld. Hún leikur Konsert fyrir
flautur eftir Einojuhani Rautavaara, þar
sem einleikarinn þarf að hafa hraðar
hendur við að skipta um flautu.
20.00 Leikhúskórinn á Akureyri
syngur perlur úr óperum, óperettum og
söngleikjum í Samkomuhúsinu. Af
verkum má nefna La traviata, Lucia di
Lammermoor, Il trovatore, Carmen, Kátu
ekkjunan, Porgy og Bess, South Pacific,
My Fair Lady og Fiðlarann á þakinu.
20.00 Aukasýning Nemendaóperu
Söngskólans á Brúðkaupi Fígarós eftir
Mozart verður í Tónleikasal Söngskólans,
Snorrabúð, Snorrabraut 54. Óperan er
nokkuð stytt í leikgerð Ólafs Guð-
mundssonar leikstjóra. Tónlistarstjóri er
Garðar Cortes og píanóleikari Clive
Pollard.
20.30 B3 tríó heldur tónleika í
sal tónlistarskóla FÍH að Rauðagerði
27 með tónlist allt frá hefðbundnum
orgeldjassi út í blús og fönk. Tríóið
skipa þeir Agnar Már Magnússon
orgelleikari, Ásgeir Ásgeirsson gítar-
leikari og Erik Qvick trommuleikari.
20.30 Litla heimstónlistarhá-
tíðin verður haldin í Salnum í Kópa-
vogi. Fram koma hljómsveitirnar Red
Rum frá Finnlandi, Bardukha frá
Reykjavík og South River Band frá
Ólafsfirði.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður
af Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
20.00 Kvetch eftir uppreisnar-
manninn Steven Berkoff á Nýja sviði
Borgarleikhússins í samstarfi við Á
senunni.
20.00 Nemendaópera Söngskól-
ans í Reykjavík verður með aukasýn-
ingu á Brúðkaupi Fígarós í Snorrabúð,
nýjum tónleikasal skólans að Snorra-
braut 54.
20.00 Leikfélagið Hugleikur sýnir í
Tjarnarbíói leikritið Undir hamrinum eft-
ir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu
Skúladóttur.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Hið árlega Fiðluball efstu-
bekkinga Menntaskólans í Reykjavík
verður haldið í kvöld.
Hljómsveitin Ampop er með síð-
búna útgáfutónleika á Grandrokk.
Hljómsveitirnar Hell Is for Heroes,
Mínus og Brain Police eru með tón-
leika á Gauki á Stöng.
Blúsþrjótarnir eru með Blúskvöld á
Vídalín.
■ ■ SÝNINGAR
Sýning Blaðaljósmyndarafélags
Íslands á ljósmyndum ársins stendur
yfir í Gerðarsafni, Listasafni Kópa-
vogs. Á neðri hæðinni eru auk þess
sýndar ljósmyndir Ólafs K. Magnús-
sonar frá fyrstu 20 árum hans á
Morgunblaðinu.
Jóhannes Geir listmálari sýnir um
70 málverk í Húsi málaranna, Eiðis-
torgi. Rúmlega tuttugu ár eru frá því Jó-
hannes Geir hélt síðast sýningu á verk-
um sínum. Opið 14-18.
16 13. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Fjórar flautur
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói
í kvöld kl. 19:30
Hljómsveitarstjóri: Justin Brown
Einleikari: Hallfríður Ólafsdóttir
Edvard Grieg: Pétur Gautur, úr svítu nr. 2
Einojuhani Rautavaara: Konsert fyrir flautur
- Dansar með vindunum
Robert Schumann: Sinfónía nr. 2
Fös. 14/3 kl. 21, UPPSELT
Lau. 15/3 kl. 21, UPPSELT
Fim. 20/3 kl. 21,
AUKASÝN., nokkur sæti
Fös. 21/3 kl. 21, UPPSELT
Lau. 22/2 kl. 21, nokkur sæti
Fim. 27/2 AUKASÝN., nokkur sæti
Fös. 28/3 kl. 21, UPPSELT
Lau. 29/3 kl. 21, UPPSELT
Fös. 4/4 kl. 21, nokkur sæti
Fim. 17/4 SJALLINN AKUREYRI
Lau. 19/4 SJALLINN AKUREYRI
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
MARS
Fimmtudagur
■ TÓNLEIKAR
Mig langar mikið á tónleikanameð Hell Is for Heroes og
Mínus á Gauknum“, segir Birgir
Örn Thoroddsen, upptökustjóri og
fjöllistamaður. „Þetta eru mjög
góð bönd og þetta ættu að vera
geðveikir rokktónleikar. Svo líst
mér mjög vel á sýningu Finnboga
Péturssonar í Kúlunni í Ásmund-
arsafni og hef mikinn hug á að sjá
hana.“
Val Birgis
BIRGIR ÖRN THORODDSEN
✓
✓
Þetta lístmér á!
Breska hljómsveitin Hell Is forHeroes þykir ein allra bjar-
tasta vonin í bresku rokki nú um
stundir. Hún er rétt nýbúin að
gefa út fyrstu plötuna sína, sem
hefur fengið afbragðsgóða dóma.
Þessi öfluga hljómsveit er nú
komin hingað til lands og ætlar að
spila á tónleikum á Gauki á Stöng
í kvöld.
Þarna verða einnig tvær ís-
lenskar hljómsveitir, Mínus og
Brain Police, þannig að óhætt er
að búast við heldur betur kröftug-
um tónleikum.
„Við í Mínus vorum í viðræð-
um við Hell Is for Heroes um að
túra með þeim úti. Þá slógu þeir
til og skipulögðu eina tónleika hér
í leiðinni,“ segir Frosti, gítarleik-
ari Mínus. „Síðan datt reyndar
upp fyrir túrinn okkar með þeim,
en þeir héldu fast við sínar áætl-
anir um að koma hingað. Þeir
voru líka mjög spenntir fyrir
því.“
Hell Is for Heroes var stofnuð
fyrir um það bil þremur árum og
vakti strax mikla athygli fyrir
öfluga tónleika. Þeir komust fljótt
á samning hjá EMI og eru nú
orðnir ein af stærstu hljómsveit-
unum í Bretlandi.
„Fyrsta platan þeirra kom svo
út nú í febrúar, ári eftir að hún
var tekin upp. Þeir hafa verið að
gefa út nokkrar smáskífur með
lögum af henni á síðasta ári til
þess að byggja upp stemningu.“
Mínus er líka nýbúin að taka
upp plötu sem kemur út seint í
apríl eða byrjun maí.
„Við vorum að klára upptökur í
þessari viku,“ segir Birgir. „Það
er verið að mixa hana núna. Með
því að fá Hell Is for Heroes hing-
að erum við líka að bjóða upp á
vænni pakka fyrir erlenda blaða-
menn sem eru að koma hingað til
að taka viðtöl við okkur út af nýju
plötunni.“
gudsteinn@frettabladid.is
Helvíti fyrir
hetjur einar
MÍNUS
Mínus kemur fram í kvöld ásamt Brain Police á tónleikum með bresku hljómsveitinni Hell
Is for Heroes á Gauki á Stöng.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU SKÁLDVERKIN Í VERSL-
UNUM PENNANS-EYMUNDSSONAR
Arnaldur Indriðason
MÝRIN
Mary Higgins Clark
ENDURFUNDIR
Lawrence Millman
KAJAK DREKKFULLUR AF ...
Isabel Allende
AFRÓDÍTA
Karen Blixen
GESTABOÐ BABETTE
Sidney Sheldon
HIMININN HRYNUR
Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
Arundhati Roy
GUÐ HINS SMÁA
Marcel Proust
Í LEIT AÐ GLÖTUÐUM TÍMA
Michel Houellebecq
ÖREINDIRNAR
Mest seldubækurnar
Það fer venju samkvæmt nokk-uð fyrir glæpum á sölulista
Pennans-Eymundssonar og sem
fyrr er það Arnaldur Indriðason
sem ber höfuð og herðar yfir aðra
höfunda í þeirri grein. Hann er
með tvær kiljur á listanum þessa
vikuna, Mýrin er enn á toppnum
og Grafarþögn er í sjöunda sæti.
Mary Higgins Clark fylgir Arn-
aldi eftir í öðru sætinu og gamli
jálkurinn Sidney Sheldon, sem er
unnendum spennusagna bæði á
bókum og í sjónvarpi að góðu
kunnur, er í sjötta sætinu.
Á menningarlegri nótunum
eru svo Proust, Blixen og
Allende, og hinn bersögli franski
rithöfundur Michel Houellebecq
dúkkar allt í einu upp með Ör-
eindirnar frá árinu 2000. Hann
hreyfði við einhverjum með
hinni klámfengu Áform um jólin
en þessi bók er bæði kraftmeiri
og skemmtilegri.