Fréttablaðið - 13.03.2003, Page 22
Ásmundur Ásmundsson myndlistar-
maður sýnir steypuverk í Gallerí
Hlemmi. Hluti verksins er myndband,
sem er samvinnuverkefni Ásmundar,
kvikmyndagerðarmannsins Bradley
Grey og tónlistarmannsins Péturs Ey-
vindssonar.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum.
Hann sýnir þar eingöngu ný málverk.
Franski myndlistarmaðurinn Serge
Comte sýnir í Nýlistasafninu. Hann er
búsettur hérlendis en hefur að mestu
sýnt erlendis, einkum í París, þar sem
hann hefur átt velgengni að fagna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
valið verk eftir marga helstu myndlistar-
menn landsins á sýninguna Þetta vil ég
sjá í Gerðubergi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
valdi tíu listamenn til þátttöku í sýningu,
sem nefnist Að mínu skapi, og stendur
yfir í Baksalnum í Galleríi Fold.
Tilkynningar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is
18 13. mars 2003 FIMMTUDAGUR
STÓRA SVIÐ
PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Frumsýning fim. 20/3 kl. 20 UPPSELT
2. sýn fim. 27/3 kl. 20 gul kort
3. sýn fim. 3/4 kl. 20 rauð kort
4. sýn sun. 6/4 kl. 20 græn kort
5. sýn fim. 10/4 kl. 20 blá kort
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed Wubbe
5. sýn. sun. 16/3 kl. 20 blá kort
Sun. 23/3 kl. 20
Laun 29/3 kl. 20
ATH: Aðeins 4 sýningar eftir
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fös. 14/3 kl. 20
Lau. 15/3 kl. 20
Fös. 21/3 kl. 20
Lau. 22/3 kl. 20
Fös. 28/3 kl. 20
Lau. 5/4 kl. 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Sun. 16/3 kl. 14
Sun. 23/3 kl. 14
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÝJA SVIÐ
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Lau. 15/3 kl. 20
Sun. 16/3 kl. 20
Fös. 21/3 kl. 20
Fös. 28/3 kl. 20
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Í kvöld kl. 20
Fös. 14/3 kl. 20
Sun. 23/3 kl. 20
15:15 TÓNLEIKAR - CAPUT OG BENDA
Lau. 15/3 kl. 15:15
RED RUM TÓNLEIKAR
Írsk-frönsk-kanadísk-finnsk danskvæði og söngvar
Matti Kallio og félagar
Sun. 16/3 kl. 16:00
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Fös. 14/3 kl. 20
Lau. 22/3 kl. 20
Lau. 29/3 kl. 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LITLA SVIÐ
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau. 15/3 kl. 14
Lau. 22/3 kl. 14
Lau. 29/3 kl. 14
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau. 15/3 kl. 20
Fös. 21/3 kl. 20
Mið. 26/3 kl. 20
Miðasalan, sími 568 8000
Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
GRANDROKK 10 ÁRA!
Fimmtudagur 13. mars
Útgáfutónleikar Ampop
kl. 22:30 / 500 kr. inn
– – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – -
Föstudagur 14. mars
New Icon Records
Live: ILO, Blake og Funky Moses (bassi)
Dj’s: Tommi White, Lewis Copeland (Plank),
Buckmaster (gus gus) og Vj Optimus.
Frá kl. 21:00 - 04:00 / 700 kr. inn (+drykkur)
– – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – -
Laugardagur 15. mars
Artimus Pyle (hardcore frá U.S.A.)
+ gestir. kl. 23:00 / 700 kr. inn
– – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – -
20 ára aldurstakmark
WWW.GRANDROKK.IS
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Ljós-hraði – fjórir íslenskir samtímaljós-
myndarar, 28. feb. - 4. maí 2003
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10 - 16. Opnunartími sýninga virka
daga 12 - 19 og 13 - 17 um helgar.
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
HAFNARHÚS
Penetration (frá 15.3.), Hugarleiftur, Erró
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
Helgi Þorgils, Sveitungar, Kjarval
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
Finnbogi Pétursson, Ásmundur Sveinsson
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið
er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og
föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hóp-
um eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í
síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Ráðstefna: Grettir Sig. og bara hlær...
Barnabókaráðstefna lau. 15. mars kl. 11.
Sýning: Ingibjörg Sólrún velur
verk á sýninguna Þetta vil ég sjá!
Sýning í félagsstarfi:
Ríkarður Ingibergsson
Sýningar opnar frá kl. 11-19
mán.-fös., kl. 13-17 lau.- sun.
Ókeypis aðgangur.
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545
Nýtt í bóksafninu Gerðubergi
Nettengdar tölvur fyrir almenning.
Upplýsingar í síma 557 9122
www.borgarbokasafn.is
www.bokmenntir.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009
Síðbúnir útgáfutónleikar
■ TÓNLEIKAR
AMPOP
Þeir Birgir Hilmarsson og
Kjartan Ólafsson hafa
fengið Þorstein Ólafsson
og Nóa Stein Einarsson til
liðs við sig og ætla að
kynna plötuna sína á
Grandrokk í kvöld.
Rafdúettinn Ampop er orðinnað fjögurra manna hljóm-
sveit. Þeir gáfu út plötuna Made
for Market í desember og verða
með tónleika á Grandrokk í kvöld.
„Það má segja að þetta séu síð-
búnir útgáfutónleikar,“ segir
Birgir Hilmarsson, sem bæði
syngur og plokkar bassa. „Við
erum líka að fara í tveggja vikna
Bretlandstúr í maí. Þá verður
platan einnig komin út þar. Svo
erum við að kynna nýjan tromm-
ara á þessum tónleikum. Við höf-
um alltaf verið með trommuleik-
inn bara á segulbandi, en nú erum
við í fyrsta sinn komnir með
trommara á tónleikum. Hann heit-
ir Nói Steinn Einarsson.“
Eins og nafnið gefur til kynna
fetar Ampop einhvers konar ein-
stigi milli ljúfrar ambient-tónlist-
ar og melódískrar popptónlistar.
Platan þeirra hefur fengið glimr-
andi dóma víðast hvar, en Birgir
segir svolítið erfitt að skilgreina
tónlistina sem þeir spila.
„Íslendingar misskilja alltaf
orðið popp. Þeir taka það alltaf
fyrir gamla sveitaballapoppið, en
í raun og veru er bara átt við tón-
list með grípandi melódíum.“ ■
Ég skora áþjóðina að
gera sér ferð á
Kjarvalsstaði
og skoða sýn-
ingu Helga
Þorgils Frið-
j ó n s s o n a r “ ,
segir Benedikt
Gestsson, for-
maður Mynd-
listarakademíu Íslands. „Það er
alveg ljóst að hann hefur verið í
miklum ham síðustu tvö til þrjú
árin og ef fer sem horfir mun
hann sá miklum og merkum fræ-
jum í íslenska myndlistarsögu.“
Mittmat
Franski myndlistarmaðurinnSerge Comte hefur búið hér á
landi í tíu ár. Hann hefur ekki lát-
ið mikið fyrir sér fara hérlendis
en er orðinn býsna virtur í lista-
heiminum í París og víðar, þar sem
hann er reglulega með sýningar.
Stjórnendur Nýlistasafnsins við
Vatnsstíg eru að minnsta kosti
töluvert upp með sér af því að
hann skuli nú vera með einkasýn-
ingu þar.
„Ég kom hingað til lands fyrst
og fremst til þess að fá frið til þess
að vinna,“ segir Serge Comte. „En
svo ferðast ég mikið út til að sýna
það sem ég er að gera.“
Sýningin hans lætur ekki mikið
yfir sér, ekki frekar en listamað-
urinn. Hann lifir og hrærist
greinilega í heimi tölvunnar og
internetsins og notar ýmsar að-
ferðir til þess að ná fram sams
konar áferð og punktabygging
tölvumynda.
Til dæmis perlar hann myndir
eins og börnin og býr til tvívíða
mynd úr legókubbum. Útkoman er
myndir sem eru áferðarfallegar
úr fjarlægð en verða grófgerðari
eftir því sem nær dregur. Sjón-
varps- og tölvukynslóðin vill horfa
á heiminn úr fjarlægð, en hættir
að sjá þegar nær kemur.
Á sýningunni eru meðal annars
ljósmyndir og vídeóverk og tónlist
eftir listamanninn hljómar undir.
„Þetta verk er svolítið feimið,“
segir hann og bendir á lítinn leysi-
geisla sem laumar sér eftir gólfinu
þannig að maður tekur ekki eftir
því nema fyrir tilviljun. „Verkin
mín eru svolítið varfærin, þau eru
hrædd við að vera of nærgöngul.
En þau gætu komið á óvart.“
gudsteinn@frettabladid.is
SERGE COMTE
Myndin af konunni á
veggnum er gerð úr
„perlum“ eins og
börnin leika sér að.
Serge sýnir í í Nýlista-
safninu.
Perlar eins
og börnin
■ MYNDLIST