Fréttablaðið - 13.03.2003, Page 24
Stjórnvöld í Kína hafa beðið TheRolling Stones um að sleppa
nokkrum lögum á tónleikadagskrá
sinni þegar þeir
halda tónleika í
landinu í næsta
mánuði. Ástæð-
an er sú að text-
ar laganna
þykja of svæsn-
ir þar sem vísað
er í kynlíf. Roll-
ingarnir hafa
þannig lofað að
taka ekki lögin
„Brown Sugar“,
„Honky Tonk Women“, „Beast of
Burden“ eða „Let’s Spend the
Night Together“. Sveitin gat svo
sem átt von á þessu þar sem lög-
unum var einnig kippt út af safn-
plötunni „40 Licks“ þegar hún var
gefin út í landinu.
The Beastie Boys hafa gefið útlag á heimasíðu sinni til þess að
mótmæla fyrirhuguðum stríðs-
átökum Bandaríkjanna gegn Írak.
Lagið heitir „World Gone Mad“ og
er það fyrsta nýja lagið frá sveit-
inni í fimm ár. Liðsmenn taka það
fram að lagið sé ekki „óamerískt“
eða stuðningsyfirlýsing við mál-
stað Saddam Hussein. Það sé ein-
ungis mótmæli gegn óréttmætu
stríði. Þeir segja að ef þjóð þeirra
fari í stríð gegn Írak komi það
ekki til með að leysa neinn vanda.
Það hafi einungis í för með sér að
þúsundir óbreytta borgara komi til
með að týna lífi.
20 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
LORD OF THE RINGS bi. 12 ára kl. 4SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK kl. 8 í Lúxus
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10
I SPY bi. 12 ára kl. 8
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 4
THE RING kl. 5.45, 8 og 10.20
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 b.i.16.ára
kl. 6 og 9CATCH ME IF YOU CAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 10.15THE RING MAN WITHOUT A PASTkl. 6, 8 og 10
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Það er offramboð á góðum mynd-um í bíó þessa dagana og hætt
við að fólk sjái ekki skóginn fyrir
trjánum en Adaptation. er án efa
einn áhugaverðasti sprotinn í flór-
unni. Raunveruleika og skáldskap
er tvinnað skemmtilega saman í
eina allsherjar blekkingu sem
áhorfandinn kokgleypir áreynslu-
laust og langar í meira.
Myndin segir frá handritshöf-
undinum Charlie Kaufman sem
fær það vandasama verkefni að
laga bók um brönugras að hvíta
tjaldinu. Það er vitaskuld hægara
sagt en gert að skrifa bíómynd þar
sem ekkert markvert gerist og að-
alpersónan stendur óbreytt eftir í
lokin. Sagan af þessum hremming-
um handritshöfundarins verður þó
á einhvern magnaðan hátt að frá-
bærri bíómynd enda verður allt
sem hann ætlar ekki að gera að
raunveruleika í myndinni.
Meginkostur myndarinnar er að
listræna blekkingin um að sagan sé
sönn gengur fullkomlega upp enda
fara hér saman frábært handrit,
styrk og frumleg leikstjórn og síð-
ast en ekki síst pottþéttir leikarar.
Cage hefur ekki verið betri í
áraraðir, Meryl Streep er traust að
vanda og Chris Cooper er rós í
hnappagat allra þeirra mynda sem
hann kemur nálægt.
Þórarinn Þórarinsson
Umfjöllunkvikmyndir
Bíómynd um blóm,
eða þannig sko
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i.12
CATCH ME IF YOU CAN kl. 8
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Velgengni „The Pianist“ hefurverið pólska leikstjóranum
Roman Polanski súrsæt. Langt er
síðan hann fékk slíka viðurkenningu
en hátindur ferils hans var á árun-
um 1968-1979. Hann fékk þrjár til-
nefningar til Óskarsverðlauna fyrir
leikstjórn á því tímabili, fyrir mynd-
irnar „Rosemary’s Baby“, „China-
town“ og „Tess“. Eftir það féll hann
í ónáð eftir að hafa viðurkennt að
hafa haft mök við stúlku undir lög-
aldri.
Vinsældir „The Pianist“ hafa
þess vegna rutt allri fortíð leikstjór-
ans upp á yfirborðið. Með forsögu
hans er stórmerkilegt að hann hafi
fengið fjórðu tilnefningu sína til
Óskarsverðlauna fyrir leikstjórn og
nánast útilokað að hann vinni.
Myndin „The Pianist“ er meðal ann-
ars tilnefnd sem „besta myndin“.
Myndin er gerð eftir endurminn-
ingum pólska píanóleikarans Wlad-
yslaw Szpilman (leikinn af Adrien
Brody) og fjallar um það hvernig
hann lifði af helför nasista. Szpil-
man er gyðingur sem var uppalin í
gettóum Varsjár. Hann og öll fjöl-
skylda hans voru handtekinn af nas-
istum. Fjölskylda hans var flutt í út-
rýmingarbúðir en fyrir heppni náði
hann að komast sleppa. Hann segir í
bókinni að þeir einstaklingar sem
höfðu bein í nefinu eða sýndu styrk
gegn nasistum hafi einfaldlega ver-
ið drepnir fyrstir.
Móðir Polanski lét lífið í útrým-
ingarbúðum nasista og segist leik-
stjórinn í raun hafa undirbúið gerð
myndarinnar frá barnæsku. Sjálfur
er Polanski alinn upp í gettóum
Varsjár en hann náði að flýja áður
en handtökur nasista hófust.
Það er svolítið kaldhæðnislegt að
myndin sé sögð hans persónulegasta
frá upphafi því hún er sú fyrsta í
mörg ár þar sem hann kemur ekkert
nálægt handritaskrifum.
CHICAGO bi. 12 ára kl. 8 og 10.30
ADAPTATION.
Leikstjóri: Spike Jonze.
Leikarar: Nicholas Cage, Meryl Streep,
Chris Cooper.
Fréttiraf fólki ■ KVIKMYNDIR
Píanóleikarinn
óbrjótanlegi
Á morgun verður mynd Roman Polanski „The Pianist“ frumsýnd. Myndin fékk
gullpálmann á Cannes hátíðinni í fyrra og er tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna.
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 8.6 / 10
Rottentomatoes.com - 95% = Fresh
Entertainment Weekly - A-
Los Angeles Times - 5 stjörnur
AÐRAR FRUMSÝNINGAR
UM HELGINA
Thunderpants
25th Hour
Maid in Manhattan
NOEL GALLAGHER
Er um þessar mundir á tónleikaferðalagi
með Oasis í Þýskalandi.
Noel Gallagher:
Mótmæli
eru tímasóun
Noel Gallagher, aðallagahöfundurOasis, ætlar ekki að sameinast
tónlistarmönnum og mótmæla fyrir-
huguðum árásum á Írak.
Gallagher segist ekki hlynntur
árásum á Írak en að breski Verka-
mannaflokkurinn sé svo háður
Bandaríkjunum að mótmælin séu til-
gangslaus.
„Það verður hvort eð er stríð,“
sagði Noel í samtali við þýska dag-
blaðið Der Tagesspiegel. „Í hvert
sinn sem íhaldssamur hálfviti, sem
veifar Biblíu, nær völdum í Hvíta
húsinu – hvort sem það er Bush, fað-
ir hans eða Reagan – þá er farið í
stríð.“ ■
■ FÓLK
biggi@frettabladid.is
THE PIANIST
Kvikmyndin er byggð
á sannri sögu pólska
píanóleikarans Wlad-
yslaw Szpilman.