Fréttablaðið - 13.03.2003, Page 29
25FIMMTUDAGUR 13. mars 2003
WOODY ALLEN
Nýtt leikrit eftir þennan kunna kvikmynda-
gerðarmann verður tekið til sýninga hjá
Atlantic Theater Company í New York.
Verkið nefnist „Writers Block“ eða Ritstífla
og byggir á safni einþáttunga. Leikararnir
Bebe Neuwirth, sem flestir þekkja sem
Lilith, hina kaldlyndu fyrrum eiginkonu
Frasiers í samnefndum sjónvarpsþáttum,
og Paul Reiser, sem gerði það gott í þátt-
unum Mad About You, leika í sýningunni.
VERKFALLSLOKUM FAGNAÐ
Verkfalli tónlistarmanna á Broadway lauk í
vikunni, við mikinn fögnuð Michaels
Bloomberg, borgarstjóra New York, þannig
að hjónin Constantine Kitsopoulos and
Lynne Cohen geta því væntanlega látið að
sér kveða í La Boheme. Constantine er
hljómsveitarstjóri en Lynne leikur á óbó.
Vorbókaflóð Bjarts skellur áí dag með útkomu neonbók-
arinnar Hin feiga skepna sem
segir frá menn-
ingarrýni á sjö-
tugsaldri. Hann
er andstæðingur
hjónabands og
talsmaður
frjálsra ásta en
tilvera hans fer
á annan endann
þegar hann fell-
ur fyrir rúmlega tvítugri stúlku
af kúbverskum ættum og í kjöl-
farið fylgir uppgjör við kynlífs-
dýrkun Vesturlanda. Hin feiga
skepna er eftir Philip Roth sem
er almennt talinn einn fremsti
núlifandi rithöfundur Banda-
ríkjanna en hann hefur að sama
skapi verið afar umdeildur.
Rúnar Helgi Vignisson, rithöf-
undur, þýddi bókina.
Stofnun Árna Magnússonar hef-ur gefið út Ljóðmæli 2, annað
bindi í fræðilegri heildarútgáfu á
verkum Hallgríms Péturssonar
(1614-1674) í umsjón Margrétar
Eggertsdóttur, Kristjáns Eiríks-
sonar og Svanhildar Óskarsdótt-
ur. Í bókinni eru 38 tækifæris- og
heilræðakvæði, þar á meðal
nýárssálmar, brúðkaupskvæði,
erfiljóð, ferðasálmar, ölkvæði og
heillaóskir. Verk Hallgríms Pét-
urssonar hafa ekki áður verið
gefin út í heild, auk þess sem út-
gáfan er óvenju umfangsmikil
því að baki henni liggur könnun á
öllum handritum sem varðveita
texta eignaðan skáldinu, en þau
eru fjölmörg enda Hallgrímur
með ástsælustu skáldum þjóðar-
innar.
Bókin Þjóðerni í þúsund ár? íritstjórn Sverris Jakobssonar
er komin út hjá Háskólaútgáf-
unni. Ungir fræðimenn af ýmsum
sviðum hug- og félagsvísinda
takast í bókinni á við spurningar
sem tengjast íslensku þjóðerni og
sögu þess. Meðal þess sem tekið
er til athugunar eru sjálfsmyndir
fyrir daga nútíma þjóðernis-
hyggju, mótun þjóðernis og hug-
myndir Íslendinga um stöðu sína
meðal þjóða heimsins.
NÝJAR BÆKUR
Pondus
eftir Frode Øverli
Ég verð að
finna mér
nýja vini...
ÞÚ MÁTT EKKI
YFIRGEFA MIG,
ELSKAN!
ÉG VIL GANGA MINN
VEG, ÞÚ VILT GANGA
ÞINN VEG...
einhverntíma
mætumst
við á miðri
leiiiið...
borgarstjóra-frúin
nýja
Margrét Baldursdóttir
7dagskrásjónvarpsinsnæstudaga
Davíð
í réttum
og röngum
litum
borðar þú
nógu hollan
mat?
Þitt
eintak
Viku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu
birta
konur
trúa frekar
á drauga
karlar sem
kaupa kynlíf
14 . T I L 20 . MARS 2003
ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 86 .000 E INTÖK
Nýtt tímarit um fólkið í landinu
Kemur út á morgun