Fréttablaðið - 13.03.2003, Page 31
Margir þeirra sem rýna í at-burði undanfarinna daga í
leit að skýrum línum eiga erfitt
þessa dagana.
Það á þó ekki
við um Björn
Bjarnason,
borgarfulltrúa
og alþingis-
mann. Og
villuráfandi
sauðum til
hjálpar bendir
Björn á Pál
Vilhjálmsson
„Samfylkingarmann“ sem ritaði
grein í Mbl. í síðustu viku undir
fyrirsögninni „Atlaga að Davíð“.
Björn segir að Páll útskýri þetta
best allra og
tíðindum sæti
hve spjall-
þáttamenn
ljósvakanna
hafi gert lítið
með útlegg-
ingu Páls. Víst
er að Hannesi
Hólmsteini
Gissurarsyni
hefur í ljósi
þessa ekki þótt verra að hafa
þennan óvænta skoðanabróður
með sér í Silfri Egils um helgina.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að Samfylkingarmenn velti
því fyrir sér hvort þeir þurfi and-
stæðinga með Pál innan flokks -
þó framámenn þar neiti að láta
hafa nokkuð eftir sér um það
mál. Ekki er langt síðan hann
reyndist flokknum afar erfiður
ljár í þúfu í tengslum við bréf-
kosningu þar sem hugur flokks-
manna til Evrópustefnu flokksins
var kannaður, en þá var Páll ein-
mitt mjög hávær í gagnrýni sinni
á hvernig að því var staðið og
fann tiltækinu allt til foráttu.
Eins og lesa má annars staðar íblaðinu er hópur fólks að
kanna jarðveginn fyrir hugsan-
legt framboð í vor. Meðal þeirra
sem mynda hópinn má finna þrjá
fyrrverandi þingmenn, Guðmund
G. Þórarinsson, sem sat á þingi
fyrir Framsókn, Inga Björn Al-
bertsson, sem sat á þingi fyrir
Borgaraflokkinn, Sjálfstæðis-
flokkinn og Frjálslynda hægri-
menn, og Stefán Benediktsson,
sem sat á þingi fyrir Bandalag
jafnaðarmanna og Alþýðuflokk-
inn.
Fleira fólk er að finna á listan-um. Þar má nefna Flosa Ólafs-
son leikara, myndlistarmennina
Baltasar og
Kristjönu
Samper, box-
spekúlantinn
og tónlistar-
manninn
Bubba
Morthens,
Sigurð A.
Magnússon
rithöfund,
Valdimar H.
Jóhannesson framkvæmdastjóra
og Bárð G. Halldórsson, fyrrum
formann Samtaka um þjóðareign.
Hópurinn er að setja upp heima-
síðuna nu.is og einnig ku vera
hægt að bæta sér í hópinn með
því að hringja í Gulu línuna og
skrá sig þar.
MÓTMÆLI Bókin Hringavitleysu-
saga eftir Elísabetu Jökulsdóttir
er nýkomin út. Höfundur segir að
hér sé á ferðinni „fyrsta villitrú-
arritið á Íslandi“ en hér leikur hún
sér með byggingu Kárahnjúka-
virkjunar og leitast við að skýra
söguna að baki hennar með að-
ferðum þjóðsögunnar og táknsög-
unnar og bregða þannig nýju ljósi
á hana.
„Þetta er í þessum þvörukerl-
ingastíl þar sem allt getur gerst,“
segir Elísabet, sem vill ekki úti-
loka að sagan muni hreyfa við ein-
hverjum þeirra sem haft hafa
frumkvæði að framkvæmdunum.
„Þetta er galdrasaga og eins og
gengur og gerist með skáldskap
gerist eitthvað innra með lesand-
anum. Þetta er lifandi efnasam-
band sem lesandinn gengur í sam-
band við þannig að það byrjar eitt-
hvað að vaxa innra með honum þó
að það gerist ekki endilega einn,
tveir og þrír.“
Sagan er nýkomin út og selst,
að sögn Elísabetar, eins og heitar
lummur og það eru ekki síður
fylgismenn virkjunarinnar sem
kaupa hana þó andstæðingarnir
séu vissulega stór og sterkur
markhópur. Einhverjar persónur
ættu að koma lesendum kunnug-
lega fyrir sjónir og nægir þar að
nefna Íslensku sveitastelpuna,
Nornina og forneskjuna. Skessan
Háspennumöst og Disney-barnið
eru svo hins vegar ekki jafn kunn-
ugleg. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hringavitleysusaga:
Fyrsta villutrúarritið
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
„Þegar manni er svona mikið niðri fyrir og
eitthvað íþyngir manni getur verið gott að
nota skáldskapinn til að fá fjarlægð á hlut-
ina og sjá þá í öðru ljósi.“
DARYL HANNAH
Var gestur á frumsýningu myndarinnar
The Hunted í Los Angeles fyrr í vikunni.
William Friedkin, sem gerði garðinn fræg-
an með The Exorcist á sínum tíma, leik-
stýrir myndinni, sem skartar eðalleikurun-
um Tommy Lee Jones og Benicio Del
Toro í aðalhlutverkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
27FIMTUDAGUR 13. mars 2003