Fréttablaðið - 22.04.2003, Page 1

Fréttablaðið - 22.04.2003, Page 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 22. apríl 2003 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 14 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD PERSÓNA Aldrei unnið í banka AFMÆLI Enginn aldur ÞRIÐJUDAGUR 92. tölublað – 3. árgangur bls. 28 DEILUR Segist sakaður um rasisma bls. 30 ÍRAK Jay Garner, fyrrum hershöfð- ingi, kom til Bagdad í gærmorgun til að kanna eyðilegginguna af völd- um stríðsins í Írak. Verkefni Garn- ers er að hafa umsjón með upp- byggingu í Bagdad fyrir hönd Bandaríkjanna, en hann hefur mætt andstöðu Íraka sem vilja sjálfir stjórna uppbyggingu í land- inu. Garner segir að sitt fyrsta verk verði að tryggja vatn og raf- magn í borginni. Hann mun heim- sækja vatnshreinsistöðvar, orkuver og sjúkrahús og fyrirhugað er að fjölga í starfsliði hans um 450 manns næstu daga. Garner í Bagdad MENNING Vika bókarinnar hefst í dag. Fræðsluráð Reykjavíkur af- hendir í Höfða í dag barnabóka- verðlaun í 31. skipti. Veitt eru tvenn verðlaun, annars vegar fyrir frumsamda barnabók og hins vegar fyrir þýðingu á barnabók. Vika bókarinnar MYNDLIST Eyvindur P. Eiríksson opnar sýningu ljóðmyndverka með flutningi ljóða og tónlistar í Lóu- hreiðri, Laugavegi 61, klukkan 16.00. Fram koma m.a. Erpur Þ. Ey- vindarson, G. Rósa, Særós Mist og Ketill Larsen. Ljóðmyndaverk í Lóuhreiðri bls. 4 ÞETTA HELST Það tók dómara aðeins þrjármínútur að gefa út morðákæru í Pensacola. bls. 6 Sókn Frjálslynda flokksinsheldur áfram. Hvað veldur? bls. 8 Ríkisendurskoðun kannarembættisfærslur Þorfinns Ómarssonar síðustu daga hans hjá Kvikmyndasjóði. bls. 2 Fleiri kjósendur viljaríkisstjórn núverandi stjórnarandstöðuflokka en áframhald ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. bls. 4 REYKJAVÍK Fremur hæg austlæg átt. Skýjað með köflum. Hiti 5 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skýjað 10 Akureyri 3-5 Skýjað 8 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 7 Vestmannaeyjar 3-8 Skýjað 8 ➜ ➜ ➜ ➜ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk- urinn mælist með 3,8 prósentum minna fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins nú en fyrir viku og er með 35,2 prósent. Samfylkingin missir einnig fylgi og mælist nú með 29,1 prósents fylgi. Það er 2,0 prósentum minna en fyrir viku. Þetta kemur fram í skoðanakönn- un Fréttablaðsins sem gerð var á laugardag. Framsóknarflokkurinn bætir mest við sig, fer úr 8,9 prósentum í 11,8 prósent. Frjálslyndi flokkur- inn bætir enn við sig, mælist nú með 12,8 prósent, sem er nokkuð meira en fyrir viku, en þá mældist fylgi hans 10,5 prósent. Vinstri grænir mælast nú með 9,5 prósent en voru með 7,4 prósent fyrir viku. Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkur 23 þingmenn, Samfylking 19, Frjálslyndir átta, Framsóknarflokkur sjö og vinstri grænir sex. Steingrímur J. Sig- fússon segir niður- stöðuna vera í áttina. „Ég hef ágæta tilfinn- ingu fyrir stöðunni,“ sagði hann. „Þessar tölur gefa til kynna að þeir sem vilja hnekkja veldi Sjálfstæðisflokks- ins verða að spýta í lófana,“ segir Össur Skarphéðinsson. „Þetta fer fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Guðmundur G. Þórarinsson, Nýju afli, sagðist eiga von á meira fylgi. „Við fáum ekki að vera með í um- ræðuþáttum. Við þurfum að heyr- ast,“ sagði hann. „Við erum glað- beitt.“ „Ég hef ekki fundið annað en mjög jákvæð- an anda í okkar garð og við höfum hingað til ver- ið í góðri sókn,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðar- son, Sjálfstæðisflokki. „Við höfum trú á að við eigum eftir að sækja mikið á á næstunni, hversu góð vísbending þetta er skal ég ekki fullyrða um,“ sagði Halldór Ásgrímsson, for- maður Framsóknarflokksins. Skoðanakönnunin var gerð á laugardag. Hringt var í 1.200 kjós- endur sem skiptast jafnt á milli kynja og kjördæma eftir fjölda kjósenda. 26,2 prósent sögðust óákveðin eða svara ekki, sem er lægra hlutfall en áður. Niðurstaða úr síðustu tveimur könnunum er á bls. 2. Stóru tapa fylgi Samfylkingin mælist undir 30 prósentum og Frjálslyndir mælast aftur þriðji stærsti flokkurinn. Framsókn sækir á. Óákveðnum fækkar. Ríkis- stjórnin fellur samkvæmt þessum niðurstöðum. FLENSA „Ég aflýsti ferðinni,“ segir Unnur Guðjónsdóttir hjá Kína- klúbbi Unnar um fyrirhugaða hópferð til Kína. Unnur ætlaði að fara ásamt níu ferðalöngum til Kína 8. maí. „Á meðan fréttir um flensuna voru bara frá Hong Kong og Guangdong, sem eru einu svæðin sem Alþjóðaheilsustofnunin hefur varað við, fannst mér engin ástæða til að hætta við ferðina,” segir Unnur. Unnur segir nýjar fréttir frá Peking um að Kínverjar hafi ekki gefið upp réttar tölur varðandi lungnabólgufaraldurinn og alla umfjöllun í fjölmiðlum valda uggi hjá fólki. „Aðeins 200 manns hafa látist úr faraldrinum og 96 pró- sent sem fá flensuna læknast. Mér finnst ekki hægt að tala um pest í þessu sambandi, en umræðan er þannig að mér fannst best að ræða við mitt fólk sem reyndar vildi allt fara,“ segir Unnur. Unnur segir að þó tvær og hálf vika séu þar til brottför átti að vera hafi þetta átt að vera skemmtiferð og því kannski ekk- ert spennandi fyrir fólk að leggja af stað og vera uggandi. „Síðustu tvo daga hafa fréttir frá Peking verið þannig að mér fannst betra að tala við mitt fólk og heyra í því hljóðið. Öllum kom saman um að fara inn í haustferðina sem ráð- gerð er fimmta september,“ segir Unnur. ■ Kínaklúbbur Unnar bregst við lungnabólgunni: Hættir við Kínaferðina T0MBÓLA Á VESTURGÖTUNNI Mjór er mikils vísir. Krakkarnir vilja leggja sitt af mörkum til að gefa til góðs málefnis. Þrátt fyrir fórn- fýsina létu þessar stelpur það eftir sér að gæða sér á ís í vorblíðunni. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá febrúar 2003 18% D V 90.000 eintök 73% fólks lesa blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á þriðjudögum? 63% 79% Halldór Ásgrímsson skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður Kjóstu stöðugleika NIÐURSTAÐAN Prósent Þingmenn B 11,8 7 D 35,2 23 F 12,8 8 N 1,3 0 S 29,1 19 T 0,7 0 U 9,5 6 GARNER VIÐ KOMUNA TIL BAGDAD Garner er ætlað að stjórna uppbyggingu í Bagdad og undirbúa jarðveginn fyrir stjórn heimamanna. Engar dagsetningar hafa þó verið nefndar um hvenær Írökum verður veitt vald yfir borginni. Garner kominn til Bagdad: Í óþökk Íraka UPPBYGGING Jay Garner, fyrrum hershöfðingi, kom til Bagdad til að kanna eyðilegginguna af völd- um stríðsins í Írak. Verkefni hans er að hafa umsjón með uppbygg- ingu í Bagdad fyrir hönd Banda- ríkjanna, en hann hefur mætt and- stöðu Íraka sem vilja sjálfir stjórna uppbyggingunni. Leiðtogi Kúrda, Jalal Talabani, segist ekki viðurkenna útlendinga sem yfir- menn uppbyggingar og hópur kenndur við Shia-múslima vill enga samvinnu við Bandaríkja- menn og neitar að mæta til við- ræðna undir stjórn Garners. Bandaríkjamenn segjast ekki viðurkenna Mohammed Mohsen al-Zubaidi, sem fyrr í mánuðinum hélt því fram að hann hefði verið valinn borgarstjóri í Bagdad. „Við vitum ekkert um hann annað en að hann hefur sjálfur sagst vera nýr borgarstjóri,“ segir Barbara Bodine, fyrrum sendiherra í Jemen og talsmaður Bandaríkja- hers í Írak. „Við þekkjum hann ekkert og okkur vitanlega hafa ekki farið fram neinar kosningar þar sem hann var kosinn borgar- stjóri.“ Garner segir sitt fyrsta verk vera að tryggja vatn og rafmagn í borginni. Hann sagðist ekki vilja nefna nein tímamörk um hversu langan tíma hann yrði í Írak. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.