Fréttablaðið - 22.04.2003, Side 14
14 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Matthew Upson:
Vill halda í
Dugarry
FÓTBOLTI Matthew Upson, varnar-
maður Birmingham, hefur hvatt
Frakkann Christophe Dugarry til
að vera áfram hjá félaginu eftir
þessa leiktíð.
Dugarry kom til Birmingham í
janúar sem lánsmaður frá Bord-
eaux í Frakklandi. Samningur kap-
pans við Bordeaux rennur út í
sumar og hefur Dugarry þegar
gefið í skyn að hann vilji leika eitt
ár í viðbót með Birmingham.
„Það yrði frábært ef Christophe
yrði áfram hjá okkur,“ sagði Up-
son. „Hann skapar mikið af mark-
tækifærum fyrir sjálfan sig og
leggur upp færi fyrir aðra líka.“ ■
FÓTBOLTI Búist er við hörkuviður-
eign á Spáni þegar Valencia tekur
á móti Internazionale í síðari
viðureign liðanna í 8 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Internazionale vann fyrri leik-
inn í Mílano 1:0 fyrir tveimur vik-
um með marki Christian Vieri.
Valencia átti meira skilið í
leiknum og sagði Rafael Benítez
þjálfari eftir leikinn: „Við gerðum
allt betur en Inter, nema að
skora.“ Héctor Cúper, þjálfari Int-
er, sagði hins vegar: „Ég er ekki
alveg sáttur við leik okkar, en við
unnum og það er það sem telur.“
Tyrkinn Emre Belözoglu hjá
Inter og David Albelda hjá Val-
encia voru reknir af velli í fyrri
leiknum og taka því út leikbann í
kvöld. Auk þess verður Inter án
varnarmannsins Francesco Coco,
sem meiddist á mjöðm í leik lið-
anna í Mílanó, og Fabio
Cannavaro, sem meiddist í leik
gegn AC Milan fyrir tíu dögum.
Sigurvegarinn í leik Valencia
og Inter mætir Ajax eða AC Milan
í undanúrslitum. ■
FÓTBOLTI Barcelona og Juventus
eigast við í síðari leik liðanna í 8
liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í kvöld.
Bæði lið áttu erfitt með að
skapa færi á hálum Delle Alpi-
vellinum fyrir tveimur vikum og
var leikurinn ekki mikið fyrir aug-
að. Juventus var þó sterkari aðil-
inn og telst Barcelona hafa sloppið
vel frá leiknum.
Radomir Antic, stjóri
Barcelona, sagðist eftir leikinn
fyrst og fremst vera ánægður með
úrslitin en ekki hvernig þau náð-
ust. „Við spiluðum ekki besta leik
okkar á leiktíðinni en úrslitin sem
við náðum voru afar hagstæð.“
Barcelona lá töluvert til baka í
leiknum og kom það nokkuð á
óvart. „Ég er viss um að við mun-
um sjá allt annað lið á Nou Camp.
Þar að auki munu 100 þúsund
manns styðja við bakið á okkur.“
Liðið sem kemst áfram í kvöld
mætir Real Madrid eða Manchest-
er United í undanúrslitum keppn-
innar. ■
ÍSHOKKÍ
Tommy Salo, markvörður Edmonton
Oilers, ver skot frá Brenden Morrow
(Dallas Stars) í leik liðanna í átta liða úr-
slitum vesturdeildarinnar í síðustu viku.
Íshokkí
HOLLENDINGAR EIGAST VIÐ
Hollendingarnir Marc Overmars (til vinstri) og Edgar Davids berjast í leik Barcelona og
Juventus þann 9. apríl. Leikurinn, sem endaði með jafntefli, var háður á Delle Alpi leik-
vangnum á Ítalíu.
FYRRI VIÐUREIGNIR
BARCELONA OG JUVENTUS
1970-1971 Barcelona - Juventus 1:2 1:2
1985-1986 Barcelona - Juventus 1:0 1:1
1990-1991 Barcelona - Juventus 3:1 0:1
FYRRI LEIKUR LIÐANNA
Juventus - Barcelona 1:1
1:0 Paolo Motero (16.), 1:1 Javier Saviola (78.)
Meistaradeild Evrópu:
Allt annað Barcelona-
lið á Nou Camp
AP
/M
YN
D
MARKI FAGNAÐ
Hernan Crespo (til vinstri), Christian Vieiri og Sergio Conceicao, leikmenn Inter, fagna
marki Vieri gegn Valencia í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni.
FYRRI VIÐUREIGNIR VALENCIA
OG INTERNAZIONALE:
1961-1962 Valencia - Internazionale 2:0 3:3
2001-2002 Internazionale - Valencia 1:1 0:1
FYRRI LEIKUR LIÐANNA
Internazionale - Valencia 1:0
Christian Vieri (14.)
Meistaradeild Evrópu:
Hörkuviðureign
fram undan
AP
/M
YN
D