Fréttablaðið - 22.04.2003, Side 18

Fréttablaðið - 22.04.2003, Side 18
18 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR BOLTINN SLEGINN Argentínumaðurinn Agustin Calleri slær tennisboltann af miklu afli í leik gegn Sví- anum Magnus Norman í fyrstu umferð Godo-tennismótsins sem hófst í Barcelona í gær. Calleri vann leikinn í tveimur lotum, 6-2 og 7-5. Tennis Frá Reykjavík Frá Garðabæ Smáralind 13 62 / T A K T ÍK OPIÐ kl. 13 -18 alla daga Síðustu dagar Síðustu dagar Síðustu dagar Hlíðasmára 13 Kópavogi                                         !"#$%&'()*+,) -  .  $/&-#0  1 /&&&  2    !"#$%% $&'() *+ !"#),-. $&'() *+ !"#),.. %+/ 0+1 +2 /    ++3  4+1   /5  *  -  3.4   5  #*&&"678   %+ 9:;   $%'(&&&&) -  .  $/&-#'* #0  1 <&&&      7="#$,&&)+&&) -  .  $/&-0  1 /&&&  2  FÓTBOLTI Íslendingaliðinu Lokeren hefur gengið vel í belgísku úrvals- deildinni í vetur. Félagið er í 3. sæti og keppir við Anderlecht um næst efsta sætið sem gefur jafn- framt keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu. Lokeren hefur aðeins einu sinni náð 2. sæti deildarinnar en það var árið 1981 þegar Arnór Guðjohnsen lék með félaginu. Rúnar Kristinsson er einn fjög- urra Íslendinga hjá Lokeren. Hann fór frá KR til Örgryte í Sví- þjóð haustið 1994, þaðan til Lil- leström í Noregi og loks til Lokeren árið 2000. Að sögn Rúnars er munurinn á knattspyrnuiðkun hérlendis og í hinum löndunum mikill en mestu viðbrigðin voru að flytja frá Ís- landi til Svíþjóðar. „Hraðinn og harkan á æfingum var meiri og samkeppnin meiri. Æfingar voru einnig fleiri og erfiðari. Það tók mig heilt ár að venjast því. Norð- menn æfa samt mest allra, miklu meira en Svíar og Belgar.“ Nýlega gerði Rúnar samning til tveggja ára við Lokeren. Er hann farinn að horfa eitthvað lengra fram í tímann? „Nei. Ég er mjög ánægður með tveggja ára samning. Það er sá tími sem ég tel mig geta verið í þessu í viðbót. Ég hugsa aðeins þessi tvö ár fram í tímann en framhaldið fer eftir því hvernig manni líður og hvernig liðinu gengur. Það er alltaf hægt að vera eitt og eitt ár í viðbót ef áhugi er fyrir hendi.“ Leikmenn Lokeren koma frá mörgum löndum. Tólf þeirra eru heimamenn en níu eru frá ýmsum löndum Evrópu og þrettán frá Afríku. „Að undanförnu hefur enginn Belgi leikið með liðinu,“ segir Rúnar, „því besti maður liðsins [Davy de Beule] hefur verið meiddur. Markvörðurinn er Sló- veni, fjórir leikmenn íslenskir en aðrir koma frá ýmsum löndum Afríku.“ Byrjunarlið Lokeren gegn Mouscron fyrir hálfum mánuði var t.d. skipað leikmönnum frá fimm löndum: Mladen Dabanovic (Slóveníu), Ibrahima Conté (Gíneu), Patrice Zéré (Fílabeins- ströndinni), Lezou Doba (Fíla- beinsströndinni), Mamadou Couli- baly (Fílabeinsströndinni), Arnar Þór Viðarsson, Arnar Grétarsson, Marel Baldvinsson, Papy Kimoto (Kongó), Sambegou Bangoura (Gíneu), Rúnar Kristinsson. Hvernig er leikstíll þessa fjöl- þjóðlega liðs? „Við spilum mjög góðan fót- bolta, engar kýlingar eða neitt slíkt. Við reynum að spila boltan- um frá markmanni, upp í gegnum miðjuna og fram á senterana. Við erum með frekar teknískt lið og það hefur fleytt okkur langt. Vörnin er eingöngu skipuð Afr- íkumönnum sem er óvenjulegt. Mörgum hefur þótt það skrítið hvað okkur hefur gengið vel því oft eru þeir taldir taktískt slakari en Evrópumennirnir. Þeir hafa ekki fengið jafn mikla þjálfun og kennslu á yngri árum og Evrópu- búar og þurfa oft lengri tíma til að komast inn í hlutina. En þjálfarinn [Paul Put] hefur náð að vinna úr því og okkur hefur gengið betur að verjast í vetur en í fyrra.“ Sem stendur er Lokeren í 3. sæti og getur náð 2. sætinu. Hvernig líst Rúnari á lokasprett- inn? „Þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur en Anderlecht hefur líka gengið vel. Við erum enn í baráttunni um 2. sætið sem gefur sæti í Meistaradeildinni. Við spil- um við Anderlecht á sunnudag og eins og staðan er nú gæti það orð- ið úrslitaleikurinn um 2. sætið.“ Nái Lokeren öðru sætinu er sá möguleiki fyrir hendi að félagið dragist gegn KR, gamla félaginu hans Rúnars. „Það væri ekki leiðinlegt en við erum ekki farnir að horfa svo langt. Það eru enn fimm umferðir eftir og við stefnum að því að ná Evrópusæti, hvort sem það verð- ur í Meistaradeildinni eða UEFA- bikarkeppninni. Þriðja sætið gef- ur sæti í UEFA-bikarnum og við ætlum fyrst og fremst að halda því og sjáum til hvort við náum ekki að stríða Anderlecht og næla okkur í 2. sætið.“ obh@frettabladid.is WayneRooney, hinn 17 ára gamli leik- maður Ev- erton, hefur verið sakað- ur um að hafa hrækt að áhorfend- um í leik liðsins gegn Liverpool á laugardag. Lögreglu- rannsókn er hafin á atvikinu. Liverpool vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu. DavidBeckham, leikmaður Manchester United, vill ekki útiloka að hann gangi til liðs við Real Madrid. „Eins og ég hef sagt: aldrei að segja aldrei,“ sagði Beckham aðspurður um orðróminn. Áður hafði Alex Ferguson lýst því yfir að bæði Beckham og Ryan Giggs verði áfram hjá United. FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Chelsea í 4:1 sigri liðsins á Everton á Stamford Bridge í gær, en þá voru átta leikir háðir í ensku úrvalsdeildinni. Vonir Chelsea um að leika í Meistaradeildinni á næstu leiktíð jukust til muna með sigrinum því á sama tíma gerði Newcastle, helstu keppinautar þeirra um sætið, 1:1 jafntefli við Aston Villa. Jóhannes Karl Guðjónsson lék ekki með Villa vegna meiðsla. Newcastle datt niður í fjórða sæti deildarinn- ar með jafnteflinu, á meðan Chelsea skaust í þriðja sætið. Liverpool, sem er í 5. sæti, vann Charlton 2:1 með því að skora tvö mörk á síðustu tveimur mínútum leiksins. Guðni Bergsson og félagar í Bolton gerðu markalaust jafntefli við Blackburn Rovers og eru enn í harðri fallbaráttu. Birmingham tryggði sæti sitt í úrvalsdeildinni með 3:2 sigri á Southampton og Tottenham vann Lárus Orra Sig- urðsson og félaga í WBA með sömu markatölu. West Ham vann afar mikilvæg- an 1:0 sigur á Middlesbrough og á enn möguleika á að halda sér uppi í deildinni. Loks vann Manchester City lið Sunderland, sem þegar er fallið, með þremur mörkum gegn engu. ■ AP /M YN D ■ Fótbolti MARKI FAGNAÐ Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki sínu ásamt félögum sínum í Chelsea. Hasselbaink, Grønkjær og Zola skoruðu hin þrjú mörk liðsins. Enski boltinn: Mark frá Eiði Smára AP /M YN D RÚNAR Rúnar Kristinsson er margreyndur lands- liðsmaður í knattspyrnu. Hugsar ekki um hvort hann mætir KR Lokeren stefnir að sæti í Evrópukeppni og örlögin gætu hagað því þannig að Rúnar Kristinsson leiki gegn sínu gamla félagi í Meistaradeildinni. RÚNAR KRISTINSSON (f. 5. september 1969) DEILDARLEIKIR OG MÖRK KR 1987-1994 126 21 Örgryte 1995-1997 59 13 Lillestrøm 1997-2000 73 14 Lokeren 2000-2003 72 23 Samtals 330 71 LANDSLEIKIR OG MÖRK A-landslið 97 3 U21 landslið 10 3 U19 landslið 11 1 U17 landslið 18 9 Samtals 136 16 LEIKIR LOKEREN 27.4. Anderlecht (2) h 4.5. Bergen (9) ú 11.5. Club Brugge (1) h 17.5. Lierse (4) ú 25.5. Sint-Truiden (5) h LEIKIR ANDERLECHT 27.4. Lokeren (3) ú 4.5. Beerschot (15) h 10.5. Lommel (16) ú 17.5. La Louvière (12) h 25.5. Beveren (10) ú

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.