Fréttablaðið - 22.04.2003, Qupperneq 22
Jæja, loksins kemur ný og ferskstelpurokkplata í plötubúðirnar.
The Kills leika alvöru töffararokk
sem sækir áhrif sín til P. J. Harvey
og The Velvet Underground og á
því fullt erindi í bandarísku rusl-
rokkbylgjuna sem nú þegar hefur
fært okkur The White Stripes, The
Strokes, Hot Hot Heat frá Kanada
og hina dönsku The Raveonettes.
Blúsáhrifin eru þó mun sterkari
hjá The Kills en öðrum sveitum úr
sömu bylgju. Eins og hjá áður-
nefndum sveitum er notkun tölva
hjá The Kills líklegast harðbönnuð.
Þessi skemmtilegi dúett er
mannaður bandarísku stúlkunni
VV (réttu nafni Alison Mosshart)
sem var áður í pönksveitinni
Discount frá Flórída og Bretanum
Hotel (réttu nafni Jamie Hince).
Þau hófu samstarf sitt á því að
senda kassetur með lagabútum á
milli sín sem þau hljóðrituðu söng,
gítar og trommur ofan á og sendu
til baka. Þessi vinnuaðferð reyndist
þeim of tímafrek og fluttist VV því
til Bretlands, þaðan sem sveitin
starfar núna.
Gítarpælingar á þessari plötu
eru afbragð. Lagasmíðar eru hress-
andi og platan vinnur á við hverja
hlustun. Sem frumraun er þetta
mjög vel af sér vikið. Það virðist
vera að myndast ný kynslóð rokk-
ara sem leggur meiri áherslu á
lagasmíðar en úthugsaðar útsetn-
ingar. Það hljómar eflaust
skemmtilega, en The Kills er
sprelllifandi sveit.
Birgir Örn Steinarsson
Sharon Osbourne sagði í viðtali ámiðvikudag að hún hefði óttast
að hún væri kjálkabrotin eftir
slagsmálin sem hún lenti í á veit-
ingahúsi í Los Angeles í síðustu
viku. Konan sem Osbourne lenti í
slag við heitir Renee Tab og vinn-
ur sem umboðsmaður í glæsibæn-
um. Osbourne, sem segist þurfa að
fara í róttæka tannaðgerð eftir at-
burðinn, hefur kært konuna fyrir
líkamsárás. Umboðskonan hefur
líka kært Sharon fyrir líkamsárás.
Leikarinn Russell Crowe hafðivíst svo mikl-
ar áhyggjur af
því að fjölmiðlar
myndu spilla
brúðkaupi hans
og Danielle
Spencer að hann
skrifaði fréttatil-
kynningarnar
sem sendar voru út að athöfninni
lokinni sjálfur. Fyrir brúðkaupið
reyndi hann að fá yfirvöld til þess
að samþykkja að banna flugum-
ferð yfir búgarði sínum á meðan
athöfninni stóð en án árangurs.
22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR22
SHANGHAI KNIGHTS kl. 3 og 5.30
CONFESSIONS. bi 14 kl. 10.40
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6
MAID IN MANHATTAN kl. 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6
THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50 og 8
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4
CRADLE b.i. 16 kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10Sýnd kl. 8 og 10.40 - bi 14
Sýnd í lúxus kl. 4, 6.30 og 9.30
Sýnd kl. 6 og 9 b.i. 14
kl. 46 og 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
kl. 5.45 og 10THE CORE
kl. 10.15ADAPTATION
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 b.i. 16
Sýnd í lúxus kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
THUNDERPANTS kl. 2 og 4
25th HOUR kl. 10.10
4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6, 8 og 10
NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 2, 4 og 6
Umfjölluntónlist
Madonna heitir réttu nafniMadonna Louise Veronica
Ciccone og fæddist í bænum
Rochester í Michigan í Bandaríkj-
unum þann 16. ágúst árið 1958. Hún
fluttist til New York árið 1977 með
þann draum í maganum að gerast
ballettdansari. Hún komst snemma
í diskódanshóp og steig með honum
sín fyrstu skref í poppinu árið 1979.
Þá var hún ráðin sem dansari og
bakraddasöngkona fyrir The Pat-
rick Hernandez Revue sem átti
diskóslagarann „Born to Be Alive“
löngu eftir að diskóið var dautt. Í
laginu má auðveldlega greina rödd
Madonnu í bakröddunum.
Eftir nokkur stutt ævintýri með
hljómsveitum ákvað Madonna að
vinna sjálfstætt og komst á samn-
ing hjá Sire-útgáfunni árið 1982.
Fyrstu tvær smáskífur hennar,
„Everybody“ og „Physical Attract-
ion“, fengu ekki brautargengi í út-
varpi en urðu báðar vinsælar á
dansgólfum næturklúbbanna.
Fyrsta breiðskífa Madonnu hét
einfaldlega „The First Album“ og
kom út í september árið 1983.
Þriðja smáskífa hennar, „Holiday“,
komst svo mánuði eftir það á topp
40 vinsældalistans í Bandaríkjun-
um. Fjórða smáskífan, „Border-
line“, varð fyrsta lag Madonnu til
þess að komast inn á topp tíu list-
ann.
Hún steig skrefinu lengra með
annarri breiðskífu sinni, „Like a
Virgin“, sem kom út í lok árs 1984,
og hóf strax að markaðssetja sig
sem kyntákn að eigin frumkvæði.
Notkun hennar á krossum og kaþ-
ólskum talnaböndum fór sérstak-
lega fyrir brjóstið á þeim allra við-
kvæmustu. Madonna komst svo al-
mennilega í heimspressuna þegar
lag hennar „Like a Virgin“ sló í
gegn. Framhaldið af ævintýrinu
ættu flestir að þekkja.
Madonna hefur haft beittar
skoðanir á hlutunum og aldrei setið
á þeim. Hún hefur oftast tjáð skoð-
anir sínar í gegnum tónlist sína og
barist fyrir aukinni víðsýni og
breyttri heimsmynd, hvort sem
hún er að berjast gegn andlegri
heftun í kynlífs- og trúarmálum,
eins og á níunda og tíunda áratugn-
um, eða friðsælari lausnum í
heimsmálum og hugarfarsbreyt-
ingum í leit manna að lífsgæðum
eins og nú.
biggi@frettabladid.is
Fréttiraf fólki
Leikarinn Will Smith segist ekkihafa mætt á Óskarsverðlauna-
afhendinguna
vegna þess að
honum hafi
ekki fundist
það við hæfi að
skemmta sér á
meðan banda-
rískir hermenn
væru í miðjum
stríðsátökum.
Hann segist
einnig vera
afar ánægður að vera ekki í for-
setastólnum þessa dagana.
Hin kasólétta söngkona Ms.Dynamite bætti verðlaunum á
arinhillu sína á miðvikudaginn er
hún var valin söngkona ársins í
Bretlandi af hlustendum Capital
FM-útvarpsstöðvarinnar. Á einu
ári hefur hún m.a. unnið Brit,
Mofo og
Merc-
ury-
verð-
launin.
Cold-
play og
strákasveitin Blue voru á meðal
verðlaunahafa á hátíðinni.
Mikið hefur verið skrifað umkvikmyndastjörnuna Tom
Cruise í nýsjálenskum blöðum
þessa daganna.
Ástæðan er sú
að hann er þar
við tökur á
myndinni „The
Last Samurai“
sem gerð er af
leikstjóranum
Edward Zwick.
Leikarinn hef-
ur alltaf haft
það orð á sér
að vera einstaklega vinalegur.
Hann var m.a. spurður að því í út-
varpsviðtali hvort hann væri ekki
orðinn hundleiður á því að vera
alltaf svona vinalegur? Spurningin
kom svolítið flatt upp á leikarann.
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 10THE PIANIST
kl. 8.151. APRÍLL
kl. 8CHARLOTTE GREY
■ TÓNLIST MADONNA
Segist hafa fundið hamingj-
una í fyrsta skiptið á ævinni.
Orðin tveggja barna móðir og
ábyrgðarfull húsfrú.
Konan sem breytti heiminum
Í dag kemur út níunda hljóðversbreiðskífa Madonnu, „American Life“. Drottning
poppsins er 44 ára, hefur setið í hásæti sínu í ein 20 ár og krúnan virðist ekki vera
byrjuð að halla á höfði hennar.
Sprelllifandi
frumraun
THE KILLS: KEEP ON YOUR MEAN SIDE