Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 2
2 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR “Já, enda alvön eftir að hafa unnið á spítölum í mörg ár.“ Heilbrigðisyfirvöld hafa hvatt fólk til að þvo sér oft um hendurnar til að forða smiti vegna Hong Kong- lungnaveikinnar. Sérstaklega á það við um þá sem heilsa mörgum með handabandi eins og frambjóðendur í kosningaslag. Guðrún Ögmunds- dóttir er í framboði. Spurningdagsins Guðrún, þværðu þér oft um hendurn- ar? Ríkissjónvarpið og Stöð 2: Skeytin fljúga KOSNINGAR Að sögn Elínar Hirst, fréttastjóra á RÚV, gerði RÚV Stöð 2 tilboð um að samtengjast útsendingu Ríkissjónvarpsins á lokaumræðum stjórnmálaforingj- anna, í bréfi sem hún sendi í kjöl- far umleitana stjórnmálaflokkana um sameiginlega útsendingu. Til- boðið fól í sér að slík samtenging yrði Stöð tvö að kostnaðarlausu. Í svari Karls Garðarssonar, fréttastjóra á Stöð 2, sem hann sendi frá sér í gær, kemur fram að lítill vilji sé fyrir slíku af hálfu stöðvarinnar. „Um leið og við af- þökkum rausnarlegt boð viljum við bjóða betur,“ segir í svarinu. „RÚV er velkomið að samtengjast kosningasjónvarpi Stöðvar 2. Slík samtenging yrði RÚV að kostnað- arlausu og myndi örugglega spara tug milljóna af skattpeningum okkar.“ Elín Hirst segir fréttastofu RÚV ekki ætla að taka því gagntil- boði. „Það gengur einfaldlega ekki upp,“ segir hún. „Við erum með fréttir í loftinu þegar þeir sýna sinn þátt. Það er því ekki einu sinni hægt að velta því fyrir sér.“ ■ GEIR HAARDE Kjósið núverandi stjórn til áframhaldandi öndvegis, segir fjármálaráðherra. Geir Haarde: Vill blátt áfram Davíð STJÓRNMÁL Geir Haarde fjármála- ráðherra sagði á kosningafundi í Háskóla Reykjavíkur í gær að ábyrgð ungs fólks væri mikil. „Þið getið ráðið úrslitum um það þjóðfélag, sem þið eigið eftir að starfa í, í kosningum núna,“ sagði ráðherrann og bætti því við að úrslit einna kosninga gætu haft áhrif í áratugi. Geir sagði að kjósa ætti til „áframhaldandi öndvegis í stjórn landsins þá menn sem hefðu haft forystu um þann árangur sem náðst hefur. Ég mæli með for- manni Sjálfstæðisflokksins sér- staklega. Þetta segi ég við ykkur blátt áfram.“ ■ Hafnarfjörður: Féll niður sex metra VINNUSLYS Sautján ára piltur slas- aðist í vinnuslysi í gærmorgun. Pilturinn var að vinna upp á palli þegar hann féll niður sex metra á steinsteypt gólf. Hann var fluttur á slysadeild Landspítal- ans í Fossvogi. Slysið átti sér stað í steypustöð við Hraunhellu í Hafnarfirði skammt frá Álver- inu í Straumsvík. ■ Salan á ÍAV: Kvarta und- an nefndinni EINKAVÆÐINGARNEFND „Ég veit hvað er á bak við þetta en get ekki tjáð mig um það að svo stöddu,“ sagði Snorri Hjaltason, eigandi Trésmiðju Snorra Hjaltasonar ehf., en fyrirtækið hefur ásamt JB Byggingafélagi ehf. harmað ákvörðun fram- kvæmdarnefndar um einkavæð- ingu að ganga til viðræðna við AV ehf. um kaup á hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum. Snorri og JB gerðu tilboð í 39,86% hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum hf. Forsvarsmenn félaganna telja að brotið hafi verið gegn söluskilmálum útboðsins með því að ganga til samninga við að- ila sem eru í stöðu fruminnherja hjá Íslenskum aðalverktökum. Jafnræðis hafi ekki verið gætt þar sem trúnaðarstarfsmenn fyrirtækisins og stjórnarmaður, sem voru meðal bjóðenda, hafi búið yfir vitneskju og haft að- gang að upplýsingum langt um- fram almenna bjóðendur: „Samningi um byggingu 100 íbúða fyrir Náttúrulækningafé- lagið og framkvæmdir við stál- pípuverksmiðju í Helguvík og jarðvegsframkvæmdir í tengsl- um við það verk. Það er eitthvað sem hefði haft áhrif á mat al- mennra bjóðenda við tilboðs- gerð,“ segir Snorri. ■ Skotið á óbreytta borgara: Vaxandi andúð ÍRAK, AP Andúð og reiði óbreyttra borgara í Írak í garð her- námsliðsins óx enn þegar banda- rískar hersveitir hófu skothríð á íraska borgara sem stóðu fyrir mótmælum í bænum Fallujah, skammt vestur af Bagdad. Talið er að minnsta kosti þrettán Írak- ar hafi látið lífið í skotárásinni og um 75 særst. Á meðal hinna látnu voru þrír drengir undir ell- efu ára aldri. Fregnir af atburðinum hafa verið mjög misvísandi. Í fréttum sjónvarpsstöðvarinnar Al- Jazeera var því haldið fram að bæjarbúar hefðu kastað steinum að skólahúsi þar sem bandarísk- ar hersveitir hafast við. Banda- ríski herinn hefur aftur á móti gefið út þá yfirlýsingu að vopn- aðir menn úr röðum mótmæl- endanna hafi skotið að hermönn- unum. Er því haldið fram að fólkið hafi verið að mótmæla veru hernámsliðsins í bænum. Að sögn bæjarbúa var um að ræða skólabörn sem vildu koma þeirri ósk sinni á framfæri að bandarískir hermenn yfirgæfu skólahús bæjarins svo kennsla gæti hafist að nýju. Forstöðumaður ríkissjúkra- húss bæjarins segir að skotið hafi verið að björgunarfólki sem reyndi að koma hinum særðu til aðstoðar. ■ Mynd Hrafns Gunnlaugssonar líkt við tölvuleik: Hrafn gleðst vegna gagnrýni ÚTVARPSRÁÐ Kristín Halldórsdótt- ir, fulltrúi Vinstri grænna í út- varpsráði, gagnrýndi mjög „heimildarmynd“ Hrafns Gunn- laugssonar, „Ísland í öðru ljósi“ á fundi Útvarpsráðs í gær. „Ég hlýt að láta það koma fram hér að þessi mynd er ekki fram- bærileg sem heimildarmynd, hún lýtur engum lögmálum um gerð heimildarmynda. „Ísland í öðru ljósi“ er fyrst og fremst tölvu- leikur höfundar með hugmyndir sínar... og ágæt sem slík, en í henni fer lítið fyrir sýn annarra á málin..,“ segir í bókun Kristínar í gær. Þá gagnrýndi hún að Sjónvarp- ið keypti réttinn til sýningar að myndinni óséðri. „Það mun vera mjög óvenjulegt og nánast aldrei gert,“ segir í bókun Kristínar. Hrafn Gunnlaugsson kvik- myndaleikstjóri sagðist í gær „fagna þessum skilningi“. Hann segir það hárrétt athugað að þarna sé ekki um að ræða heim- ildarmynd enda hafi aldrei verið lagt upp með slíkt. „Ég gleðst djúpt í hjarta mínu yfir þessum djúpa skilningi,“ seg- ir Hrafn. Hann segist hafa fengið mjög lágt verð fyrir myndina hjá RÚV. ■ Tvennar lokaum- ræður á sama tíma Leiðtogar stjórnmálaflokkana verða, samkvæmt dagskrá sjónvarpsstöðv- anna, í lokaumræðum á báðum stöðvunum á sama tíma kvöldið fyrir kjördag. Ekki er vilji hjá stöðvunum til sameiginlegrar útsendingar. KOSNINGAR Ríkissjónvarpið og Stöð 2 hafa sent frá sér dagskrá fyrir föstudagskvöldið 9. maí, sem er kvöldið fyrir kjördag. Í þeim kemur fram að lokaumræður formanna stjórnmálaflokkanna, sem í báðum tilvikum eru sagðar verða í beinni útsendingu, munu skarast í um 40 mínútur. Sú staða er því komin upp að samkvæmt dagskránum, sem stöðvarnar gerðu án samráðs sín á milli, þurfa formennirnir að rök- ræða sína á milli á tveimur stöðum á sama tíma. Í alþingiskosningum undanfar- inna ára hafa stöðvarnar tvær sent út lokaumræðurnar í sameiginlegri útsendingu. Ekki er vilji fyrir því að þessu sinni, hvorki af hálfu Stöðvar 2 né RÚV. „Við erum ekki hrifin af slíku fyrirkomulagi,“ segir Elín Hirst, fréttastjóri fréttastofu Sjón- varpsins. „Þetta eru tvær mismun- andi fréttastofur með mismunandi áherslum. Þetta er eins og ef Frétta- blaðið og Morgunblaðið ættu að gefa út sameiginlegt kosningablað daginn fyrir kjördag.“ Í sama streng tekur Karl Garð- arsson, fréttastjóri Stöðvar 2. „Við höfðum ekki áhuga á því að senda út sameiginlega,“ segir hann. „Við ræddum ekki einu sinni um það.“ Hann bendir á að fyrir sveita- stjórnarkosningarnar fyrir ári hafi sjónvarpsstöðvarnar ekki heldur sent út sameiginlegar umræður. Meginkrafan um sameiginlega útsendingu kemur frá flokkunum sjálfum. Fyrr í vetur sendu fram- kvæmdastjórar flokkanna frétta- stjórunum bréf þar sem þeir fóru fram á að möguleiki á slíkri útsend- ingu yrði kannaður. Markmiðið, af þeirra hálfu, var að koma í veg fyr- ir að flokkarnir yrðu settir í bobba og formennirnir þyrftu að vera á of miklum þeytingi á milli stöðvanna eða væri jafnvel gert að mæta á sama tíma, eins og gerðist að þessu sinni. Sú lausn hefur orðið ofan á í þessu máli að Stöð 2 hyggst nú taka upp sínar umræður fyrr um dag- inn. Það breytir ekki því að báðar stöðvarnar hyggjast senda út um- ræðurnar samkvæmt útgefinni dagskrá, á Stöð 2 frá 19.00 til 20.15 og á RÚV frá 19.35 til 21.10. Sam- kvæmt því munu því leiðtogarnir rökræða, frammi fyrir áhorfend- um, í um 40 mínútna skeið á tveim- ur sjónvarpsstöðvum í einu, að því tilskildu að þeir samþykki allir þá tilhögun. gs@frettabladið.is HRAFN GUNNLAUGSSON Ánægður með gagnrýni. KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR Óánægð með heimildarmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Ísland í nýju ljósi. ELÍN HIRST Lokaumræða stjórnmálaleiðtoganna er á dagskrá Ríkissjónvarpsins frá kl. 19.35 til 21.10. KARL GARÐARSSON Stjórnmálaleiðtogarnir munu taka lokaumræðuna á Stöð 2 frá kl. 19.00 til 20.15.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.